Tíminn - 25.06.1978, Síða 13

Tíminn - 25.06.1978, Síða 13
Sunnudagur 25. júni 1978 13 Kosningar og s tj órnmálamenn Þegar Sjálfstæðismenn biðu ósigur i kosningunum 1927, sagði einn flokksbróöir þeirra: „Þaö var ekki von á öðru, þvi aö foringjunum sýndust allir hundarnir vera mata- dorar”. „Þaö er ekki til svo litil spýta, að honum takist ekki að gera úr henni axarskaft”, varð manni að orði um klaufskan stjórnmálamann.- St jórnmálamaður nokkur var aö haida ræðu á póli- tiskum fundi. Þá grfpur annar stjórnmálamaður fram f fyrir honum og segir: „Þetta er ekki rétt”. „Vist er þetta rétt,” svaraöi hinn. „Ég ætti nú að vita það, ég var ráðherra þá”. „Satt er það, þitt var rikið en hvorki mátturinn né dýrð- in.” Kunnur menntamaöur fór niður i þinghús til aö hlusta á ræður þingmanna. Þegar hann kom heim til sin, var hann spuröur hvernig honum heiði geðjast aö þingmönn- unum. „Vel”, svaraði hann. „Þeirtala mikiö og þeir tala hátt og meiraer ekki hægt að heimta af þingmönnum.” Sr. Þórarinn Böövarsson i i Görðum hafði svo mikið fylgi f sinu kjördæmi, að eitt sinn bauö hann sig fram með syni sinum og náðu þeir báðir kosningu. Sumum stórbændum i kjördæminu likaði þó fram- boð þeirra beggja miðlungi vel, og var Guðmundur á Auðnum einn meðal þeirra. Þá var kosið opinberlega. „Hvern kjósið þér?” spurði kjórstjóri Guðmund á Auðnum. „Sr. Þórarin Böðvarsson”, svaraði Guðmundur og þagnar. „Annan verðið þér aö kjósa með honum”, segir þá kjörstjóri. „Ætli það sé ekki bezt að folaldiö fylgi merinni”, var svar Guðmundar. Þjóðkunnur áhugamaöur, sem var að halda þrumandi ræðu á alþingi um nauðsyn- ina á þvi að reisa spitala, endaði hana á þessa leiö: „Ég vona, að allir geti verið sammála um það, að það er eitt, sem ekki má spara og þaö eru mannslff- in.” Magnús Torfason var i framboði á Isafirði móti sr. Siguröi Stefánssyni i Vigur. A kosningafundi var eitt sinn sr. Stefán búinn að tala og ennfremur Sigurður sonur hans. Þegar svo Magnús hóf mál sitt. tekur annar sonur sr. Siguröar fram í niðri i sal. Þá varð Magnúsi að oröi: „Það litur út fyrir, að það ætli að verða erfitt fyrir mig að tala hér, fyrst talar faðir- inn, svo sonurinnog nú heyri ég f heilögum anda niðri i salnum”. 1 alþingiskosningunum 1900 var tekizt á um valtýzk- una svokölluöu. i hópi áköfustu stuöningsmanna Valtýs Guðmundssonar voru Skúli Thoroddsen og sr. Sig- uröur Stefánsson i Vigur. Hannes Hafstein var and- vígur tillögum Valtýs um stjórnskipunarmáliö. Hann bauð sig fram i Isafjaröar- sýslu móti Skúla Thorodd- sen. Tveir þingmenn voru kosnir i isafjarðarsýslu. Hannes Hafstein var kjör- stjóri og fór þá kosning fram I heyranda hljóði. Komu kjósendur alls staöar aö úr sýslunni til isafjarðar. SÚ saga er sögð, að margir hafi veriö i vanda og ekki kunnað við annað en kjósa sýslu- mann. „Hverja kjósið þér, Guðmundur minn?” spurði sýslumaður hikandi kjós- anda sem allir vissu, að fylgdi Valtýingum. „Skúla Thoroddsen” var svarið. „Og hvern annan?” „Égheld ég verði aö reyna yöur, sýslumaður”. KOSNINGAGETRAUN RAUÐA KROSSINS Lárus Sveinsson trompetleikari ÉG SPÁI: Fjöidi þingmanna er verður Alþýðubandalag 11 /3 Alþýðuflokkur 5 / Framsóknarflokkur 17 /b Samtök frjálsl. og vinstri manna 2 / Sjálfstæðisflokkur 25 -33 Aörir flokkar og utanflokka 0 o Samtals 60 6o Svona einfalt er að vera með. Klippið þessa spá út og berið saman við aðrar sem birtast. VIÐ VERÐUM VIÐ ALLA KJÖRSTAÐI. LÍTIÐ VIÐ HJÁ RAUÐA-KROSSINUM. ENGIN ALDURSMÖRK. RAUÐI KROSS ÍSLANDS HJÁLPARSJÓÐUR f Uttl . tonu Dagana 30. júní - 9. júlí. Sýningar kl. 18 og 21 virka daga og kl. 15 og 18 um helgar. Forsala aðgöngumiða er í hjólhýsi í Austurstræti og í Laugardalshöll kl. 13-17. Miðapantanir í símum 29820 og 29821 milli kl. 13 og 17. Verð miða fer eftir staðsetningu sæta Bestu sæti: kr. 3.700.-. Betri sæti: kr. 3.300.-. Almenn sæti: kr. 2.700.-. ★ TAKMARKAÐAR SÝNINGAR - TAKMARKAÐIR MIÐAR Heimsfræg skemmtiatriði, sum þeirra hafa aldrei sést hér á landi áður meðal annars eru: MÓTORHJÓLAAKSTUR Á HÁLOFTALÍNU, LOFT- FIMLEIKAR, KING KONG - APINN MIKLI, ELD- GLEYPIR, HNÍFAKASTARI, STJÖRNUSTÚLKUR, AUSTURLENSKUR FAKÍR, STERKASTI MAÐUR ALLRA SIRKUSA, SPRENGFYNDNIR TRÚÐAR OG FJÖLMÖRG FLEIRI SKEMMTIATRIÐI. Sölubörn óskast 50 FERÐAVINNINGAR FKRÐAHAPPDRÆTTI FULLTRÚARÁÐS FRAMSOKNARFELAGANNA í REYKJAVÍK 1. — 5. Ferðir ti' Irl.inds verðmæti 126.000 Samt. 630 000 6. —35. — Cosla Del Sol — 122.900 — 3.687.000 36. —40. — Jugoslnviu — 116.400 — 582.000 41 -50 — Irlands * — 84.500 — 845.000 Vinmngaverðmæti alls 5.744.000 Nr. 580307 Til að selja happdrættismiða Fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í Reykjavík Góð sölulaun Vinsamlegast gefið ykkur fram við skrifstofuna Rauðarárstíg 18

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.