Tíminn - 09.07.1978, Page 2
2
ll'iiUIÍ
Sunnudagur 9. júll 1978
/" ......... ' ...... ' ...........
Dufgus
ODDHÖLSGÆRURNAR
Þeir sem eru orðnir háðir dópinu láta sjaldan aftra
sér frá þvi aö ná I það og skiptir þá litlu máli um kostn-
aðinn. Þess vegna lætur Visir sig ekki muna um aö
kosta mann og bll austur að Oddhóli I von um óhróöur
um Sambandisl. samvinnufélaga. Og ólafur á Oddhóli
bregzt ekki, hann á ymislegt I pokahorninu. Og mi hef-
ur tiöarandinn breytztfrá þvi sem áður var, nú er sá
beztur, sem fer með minnstan sannleik. Aður fyrr létu
menn jafnan litið á sér bera ef þeir vissu litið og skildu
fátt, eða urðu að athlægi ella. Nú er tiöarandinn
þannig, að eftir fáu er fremur leitað en að menn skilji
litiö og viti fátt. Aö sjálfsögðu verður það að fylgja meö
að fávizkan og skilningsskorturinn beinist i rétta átt. 1
þvi bregzt ólafur á Oddhóli ekki.
Gærur Ólafs.
ólafur segir I viðtalinu viö Vlsi: „Sérstaklega er
þetta helviti hart, þar sem ég gat upp á eigin eindæmi
selt gærur til Danmerkur i fyrra, en viöskiptaráðu-
neytið neitaöi mér”. —En þaö mun hafa verið vegna
þessaöSambandið þurfti á þessum gærum að halda að
ég fékk ekki útflutningsleyfið”. — Sambandið er orðið
rlki i rikinuog viðerumlltil dýr á búinuþeirra, mokum
fyrir þá sklt og gefum dýrum þeirra”. Svo mörg eru
þau orð.
Við þetta er það að sjálfsögðu að athuga, að Sam-
bandið hefur aldrei „þurftá gærum Ólafs á Oddhóli að
haldá' og hefur engin afskipti af þeim haft. Og Sam-
bandiö mun ekki hafa nein afskipti af gærum hans
nema þvi aðeins að hann óski eftir þvl sjálfur. Þab er
alveg með óllkindum, ab maðurinn skuli ekki vita vib
hverja hann hefur viðskipti.
Þaö er einnig óskiljanlegt hvernig manninum getur
dottið i hug að bera þaö á borð fyrir fólk, að hann sé að-
einslitiö dýrá búiSambandsins. Sambandiö hefur ekki
nokkur minnstu afskipti af afuröum búsins á Oddhóli,
þar eru engin tengsl á milli. Sambandiö annast ekki
sölu á neinum afurðum frá þvi búi og er þaö óviðkom-
andi á allan hátt. ólafur á Oddhóli er frjáls aö öllum
sinum viðskiptum af Sambandsins hálfu og mun vafa-
laust verða það framvegis. Dylgjur Ólafs I garð Sam-
bandsins eruþvi vægast sagt lltt smekklegar og heyra
raunar undir hreinan rógburð.
Útflutningur á óunnum gærum.
En hvers vegna fær Ólafur á Oddhóli ekki útflutn-
ingsleyfi fyrir óunnum gærum? Svarið við þeirri
spurningu ætti að vera hverjum þeim sem eitthvað
hefur fylgzt með þjóðmálum á tslandi undanfarin ár
augljóst. Gærumálin hafa sannarlega ekki legið I lág-
inni á undanförnum árum. Það hefur verið stefna
þriggja siðustu rikisstjórna að fullvinna allar gærur
innanlands. Ef menn hafa eitthvað við þá stefnu að
athuga, þá eru stjórnmálaflokkarnir og rikisstjórnir
rétti aðilinn til þess að beina gagnrýni að.
A atvinnuleysisárunum 1968 og 1969 beindist athygli
stjórnvalda og raunar þjóðarinnar I heild að því að
finna Ieiöir til þess að auka atvinnu. Eitt af þvf sem at-
hyglin beindist að var skinnaiönaðurinn. Talið var eöli-
legt að stuöla að þvi, að allar gærur yrðu unnar innan-
lands. I samræmi viö það ákvað Samband ísl. sam-
vinnufélaga i samráði við þá sláturleyfishafa, sem
hafa falið þvl gærusölu að efla skinnaiðnað sinn unz þvl
marki væri náð, að Sambandið fullynni hér innanlands
allar gærur, sem það fengi til sölumeðferðar. Þessi
ákvörðun var tilkynnt opinberlega og á þeim tíma
komuengarathugasemdir fram við þessa stefnu, en þá
var rétti tlminn til gagnrýni ef menn voru þessari
stefnu mótfallnir. Sambandiö hefur slðan unnið að
þessu verkefni þannig að nú er þessu marki náð, en
ekkert þar umfram.
Hitt er svo annað mál, að tslendingar hneigjast mjög
til óhófsá mörgum sviðum efnahagsmála og fleiri aðil-
ar hugðust fara inn i skinnaiðnaðinn og nutu til þess
fulls stuðnings stjórnvalda, og frá þvl er skemmst að
segja að ekki var linnt látum fyrr en afkastageta
skinnaiönaöarins var orðin nokkrum hundruðum
þúsunda gærum meiri en þær gærur sem fyrir hendi
eru. Þegar svo var komið skipti engum togum að gerð
var sú krafa,aðSambandið gæfi öðrum eftir til vinnslu
hluta af þvi magni, sem það hafði til meðferðar, og
ekki linnti brigzlum um einokunartilhneigingu þegar
það hugðist standa viöstefnu sina, sem þó var I algjöru
samræmiviö viljaogstefnumið stjórnvalda, þegar hún
var mörkuð, og raunar alls almennings I landinu. Þetta
er ástæðan fyrir þvl, að tregt er um að fá útflutnings-
leyfi fyrir óunnum gærum og þetta ætti að vera öllum
ljóst. Þaö er stefna stjórnvalda að gærur séu unnar
innanlands.
Og svo er það Aiþýðubandalagið.
En Ólafur á Oddhóli vill fá aö flytja út sínar gærur og
hann er ekki vonlaus um að það takist. Það ráö, sem
hann telur að einna helzt muni duga er að kjósa
Alþýðubandalagið. Nú vill svo til að Alþýðubandalagið
hefur sína gærustefnu. Það hefur tekið upp stefnu
þriggja slðustu rlkisstjórna um að fullvinna allar gær-
ur innanlands og kallar það Islenzka atvinnustefnu.
Traust Ólafs á Alþýöubandalaginu hlýtur þvl að
byggjast á þvl, a6 það svíki þetta stefnumið sitt. Það
má vel vera að hægt sé að treysta þvl að Alþýðubanda-
lagið svfki öll sinstefnumið en ég held að það verði að
vona að jafnvel því sé vart að treýsta.
Forseti alþjóðahreyfingar Kiwanismanna, Maurice Gladman. heimsótti tsland 23. mai siðastliðinn. ViO
þetta tækifæri tók forseti tslands, hr. Kristján Eldjárn, á móti Maurice Gladman og Islenzkum framá*
mönnum Kiwanishreyfingarinnar.
A myndinni, sem tekin er viö það tækifæri, er talið frá vinstri: óiafur Jensson, umdæmisstjóri Kiwanis
á tsiandi, forseti tslands, dr. Kristján Eldjárn, Maurice Giadman og Páil H. Pátsson, einn af frumherj-
um Kiwanis á tslandi.
Bændur — Bændur
Við framleiðum nælonhólka
í ótal stærðum
fyrir heyblásara
Póstsendum um allt land.
^eflayerfiH
Eyjagötu 7
Símar 1-33-20 og 1-40-93
nii! Nýkomið:
Islensinfr A mzmticL-ív
Reiðbuxur stretch 13.900.—
flauel 14.900.—
Pískar frá 1.290— - 1.690—
ístöð, margar tegundir,
frá kr. 2.190- 10.900-—
Kappreiðassxmu u iL iiti.i
fjaðrir nr. 3V2- 4l/2 -
Einnig tannraspar frá 13.895
Enskir
Areentískir
20.370 Hnakkar
vönduð vara
Allar járningarvörur, hamrar, hnykkingartengur, hnífar, sex
tegundir af naglbítum, nasamúlar, krossmúlar o.fl. o.fl.
II jkl A C! Tþ kl HP sérverslun hestamannsins
IJLKJJLíjfTLkJi KJMX I Lóuhólar 2-6. Sími 75020