Tíminn - 09.07.1978, Blaðsíða 27
Sunnudagur 9. júli 1978
27
Gerrv Raffertv. Megas. Melchior
Stjörnuhrap
i hljómplötudómi um hina nýju plötu
Tom Robinson Band í síðasta Nútíma urðu
þau mistök að það varð stjörnuhrap, þ.e.
eina stjörnu vantaði í dóminn. Aðeins voru
birtar f jórar stjörnur, en hið rétta er að
, Power in the Darkness"átti að fá FIMM
STJÖRNUR og er því hér með komið á
framfæri.
Þá verður sú breyting gerð á hljóm-
plötudómum í framtiðinni að greint verð-
ur á milli íslenzkra og erlendra hljóm-
platna og notuð misjöfn einkunnagjöf, því
Vað það hefur sýnt sig að nær ómögulegt
hefur verið að nota sama mælikvarða á
gæði þessara hljómplatna. Erlendar
hljómplötur munu halda sinni stjörnugjöf,
en íslenzku hljómplöturnar verða vegnar
og metnar í ramm-íslenzkum bókstöfum,
frá A og niður í D og einnig verður notaður
+ og h-, eins og hefur tíðkazt í stjörnu-
gjöfinni hingað til.
Með þessu er vonazt til að hljómplötu-
dómarnir verði sjálfum sér samkvæmari
og gefi réttari mynd af okkar áliti á gæð-
um viðkomandi hljómplatna.
-ESE
Gerry Rafferty- City to City
United Artists - UAS 30104
/Fálkinn
Nafnift Gerry Rafferty var til skamms tima nær
óþekkt hér á landi. Þó voru nokkrir sem könnuöust viö
hann frá þvf aö hann var I SteelersWheel, en þaö var þó
ekki fyrr en landinn sá Gery Ráfferty i sjónvarpinu á
dögunum flytja hiö gullfallega lag sitt „Baker Street”,
sem hefur veriö mjög ofarlega á vinsældalista i Banda-
rikjunum aö undanförnu og má segja aö Rafferty sé nú
á hvers manns vörum þessa dagana.
City to City er önnur sólóplata Raffertys og flokkast
tónlistin á henni undir „soft rock”, þó meö aöeins
country áhrifum. Lögin eru vel flest mjög hugljúf og
faileg og gerir Rafferty þeim mjög góö skil. Honum til
aöstoöar eru valdir hijóöfæraleikarar, flestailir
session-menn, sem munu vera frekar litt þekktir hér-
lendis.
Þegar City to City er skoöuö ofan f kjölinn, þá veldur
þaö fyrst nokkrum vonbrigöum aö flest laganna á plöt-
unni viröast standa „Baker Street” nokkuö langt aö
baki hvaö gæöi og melódiu varöar, en ef henni er gefiö
tækifæri til þess aö fá aö snúast á fóninum I nokkur
skipti i viöbót kemur i Ijós aö gæöamunurinn er ekki
eins mikill og leit út fyrir I fyrstu. Ekki er hægt aö
nefna nein einstök lög önnur en „Baker Street”, sem
skera sig úr, þvi aö City to City er öll mjög jafngóö og
loka útkoman er sú aö þetta er hin þægilegasta plata
áheyrnar og hin vandaöasta i alla staöi. _ESE
★ ★ ★ ★ +
Megas - Nú er ég
klæddur og
kominn á ról
Iðunn - 004
Ég hef áöur látiö þau orö falla, aö hvergi ættu „full-
oröin börn” eins gott og á Islandi, því aö hér hefur hver
barnaplatan komiö út á cftir annarri og flestar hafa
þær átt þaö sameiginlegt, aö gæöi þeirra hafa veriö
nokkru meiri en almennt gerist um aörar islenzkar
hljómplötur.
Þessi orö eiga vel viö um nýjustu plötu meistara
Megasar. „Nú er ég klæddur og kominn á ról”, þvi aö
hún er engin undantekning frá þessari „reglu” nema
siöur sé. Ég vil fyrst nefna undirleikinn, sem er i einu
oröi sagt frábær og er þá ekki djúpt tekiö I árinni, en
hann annast þau Guöný Guömundsdóttir, konsert-
meistari Sinfóniuhljómsveitar tslands og Scott Gleckl-
er, sem leikur á bassa i sömu hljómsveit. Auk þess aö
sjá um undirleikinn þá eiga þau skötuhjúin drjúgan
þátt I útsetningu laganna á plötunni, sem skipt er I
fjóra þætti og m.a. sá Scott Gleckler aö öllu leyti um
útsetningu fjóröa þáttar.
Svo aö vikiö sé aö þætti Megasar, þá kemur hann
sterkur út að vanda og fer létt meö aö syngja þessi
gömlu barnalög, þó aö mismunandi séu. Um lögin á
Melchior - Silfur-
grænt Ilmvatn
Iðunn - 007
Silfurgrænt Ilmvatn er fyrsta hljómplata hljóm-
sveitarinnar Melchior, en reyndar er hér ekki um neitt
byrjendaverk, þvi aö Melchior er oröin nokkuö gömul i
hettunni og sjóuö I þessum bransa og m.a. eru nokkur
laganna á plötunni allt aö f jögra ára gömul.
Svo vikið sé að innihaldi Ilmvatnsins þá verður ekki
annað sagt en aö hér er á ferðinni gagnrýnin plata, og
fá herinn og málmblendiverksmiðjan bróðurpartinn af
gagnrýninni, svo og þjóðfélagið i heild. Tónlist
Melchiormanna er góð. Lögin eru falleg og undirleikur
góður. Ef á að finna framlagi Melchior eitthvaö til
foráttu, er það helzt það að karlraddirnar eru ekki
nógu góðar, en Kristin Jóhannsdóttir skilar sinu hlut-
verki vel. Þá vil ég minnast á skemmtilegan óbóleik,
sem gefur plötunni ferskan blæ og frábrugöna öðrum.
Þaö hefur verið sagt um Melchior að hún væri Spil-
verksleg en hvort það er nú satt eða ekki, þá er Melchi-
or a.m.k. jafngömul spilverkinu og hefur veriö aö
þróast I gegnum árin og þvi væri e.t.v. réttast að segja,
A+
plötunni þarf ekki aö fjölyröa.þau þekkja allir, þó vil ég
nefna lagiö „t bólinu”, eftir Scott Gleckler, en þaö lag
er byggt upp á upphafsstefum allra annarra laga á
plötunni og lýsir þaö hugrenningum ungs drengs um
liðinn dag (en platan fjallar aö segja má um einn dag
frá morgni til kvölds I llfi drengs). Þetta lag er sér-
staklega smekklega unniö og ásamt hinum myndar
þaö eina órjúfanlega heild, einn dag, eitt andartak,
eitt... — ESE
MELCHIOR
að þetta væri Melchiorstill. En hvaö um það. Þetta
framlag Melchior gefur góð fyrirheit og gerir þær
kröfur til hljómsveitarinnar aö hæsta plata verði enn
betri og þá jafnframt með nýrra efni.
—ESE