Tíminn - 09.07.1978, Page 28
28
Sunnudagur 9. júll 1978
Anthon Mohr:
Árni og Berit
barnatíminn
Ævintýraför um Kyrrahafið og Suður-Ameríku
FERÐALOK
þarna kyrr eins og þau
hefðu verið veidd i
gildru.
Utast i hringnum var
stórt qg föngulegt karl-
dýr. Berit gekk þangað
og ætlaði að klappa þvi,
en hún gættiþess ekki að
hundur húsbóndans var
rétt á hælum hennar, en
dýrin höfðu séð hundinn
og voru lafhrædd. Ekki
datt þeim i hug að reyna
að flýja, þvi þau héldu
að þau væru i tjóðri.
Þetta föngulega karldýr
beitti þvi eina vopninu,
sem það hafði yfir að
ráða. Það lagði
kollhúfur og frisaði
stórri gusu beint framan
i Berit, en ekki hundinn
sem það hræddist.
Berit reyndi ekki að
klappa fleiri lamadýr-
um.
2.
Grainger hafði aldrei
minnzt á Machu Picchu,
eða ferðaáætlun þangað,
siðan kvöldið, sem þeir
voru á Sólareyju i
Titicaca-vatninu.
Fjallgangan hafði tekið
allan hug Árna svo han
hann hafði alveg gelymt
Machu Picchu.
Við kvöldverðarborðið
hóf Grainger aftur máls
á þessu ferðalagi.
Margt, sem Grainger
sagði nú um þennan
stað, hafði Árni aldrei
heyrt fyrr, og hann
undraðist, hvaðan
Grainger hefði alla sina
vizku. Árna minnti, að
Grainger hefði verið
litlu fróðari en aðrir um
Machu Picchu, kvöldið,
sem þeir ræddu um
þennan merkilega stað á
Sólarey. En þegar Árni
áttaði sig betur, þá
mundi hann eftir þvi, að
Wilson og Grainger
höfðu alltaf setið saman
i sama járnbrautarklefa
alla leiðina, og á þeirri
leið hafði hann náð i all-
an þennan visdóm hjá
sinum sprenglærða
ferðafélaga og vini.
Nú var Grainger svo
hrifinn af þessum stað,
og hann sagði svo lifandi
og fjörlega frá, að Berit
fannst sem hún væri
komin i þennan forna
Inkabæ og farin að
skoða þar fqrnar rústir
og gamlar minjar. Hún
vaknaði úr þessum
fornminjadraumi við
það, að umtalsefnið
breyttist snögglega.
„Já, það er þá fast-
raðið, að við förum
þangað öll. Þá fáum við
að sjá þetta allt. Ég hef
þegar sent skipstjóran-
um á „Sunbeam”
skeyti, þar sem ég lagði
svo fýrir, að hann sigldi
skipinu gegnum
PANAMA SKURÐINN
TIL Iquitos við
Ainason-fljótið. Þar á
hann að fá leigðan
vélbát, sem getur siglt
upp eftir fljótinu til
Ucayali eða Urubamba.
Sinchi og Mayto hafa
lofað að vera með
okkur, og og þeir ætla að
útvega okkur múlasna
til ferðarinnar i Uru-
bamba-dalnum. Fyrstu
40 kilómetrana getum
við farið héðan með
járnbraut, og siðan
langa leið á bifreiðum.
Ef skipstjórinn getur
útvegað véibát, get ég
hugsað að við verðum
um borð I „Sunbeam”
eftir svo sem hálfan
mánuð. Ég hlakka eins
og barn til þessarar
ferðar”, sagði hann að
siðustu.
Árni varð ekki siður
undrandi en Berit, er
hann heyrði þessa ferða-
áætlun. I fjallgöngunni
hafði hann algerlega
gleymt Machu Picchu.
Árni leit á Berit og
sagði:
„Heyrðu systir! Mér
eru þetta jafn ókunnar
fréttir sem þér” og
reyndi að vera sannfær-
andi, en af tilliti systur
sinnar gat hann ráðið
það, að hún trúði honum
alls ekki. Henni var
kunnugt um það, hve
fljóthuga og ævintýra-
gjarn bróðir hennar var,
og Grainger hafði lika
sagt, að þetta væri fast-
ráðið. Nei, svona gat
þetta ekki haldið áfram
lengur.
Annars átti Berit erfitt
að taka af skarið með
þessa ferð, þar sem hún
hafði tekið að sér að
annast Lindu og
Grainger ætlaðist til, að
hún kæmi með I þessa
ferð. Það var heldur
ekki eftirsóknarvert að
snúa aftur til Lima og
biða þar eftir skipsferð
til Hawaii. Grainger
hafði áætlað, að ferðin
til Iquitos, gegnum
frumskógana, tæki að-
eins hálfan mánuð, og
þar beið þeirra hið
ágæta skip, „Sunbeam”,
búið öllum þægindum.
Jú, liklega yrði hún að
slást i förina, en þó að-
ems með einu skilyrði,
að Grainger sigldi frá
Iquitos beina leið til
Hawaii.
Þetta var fljótlega
samþykkt af Grainger.
Hann ætlaði einmitt
beina leið heim frá
Brasiliu. Ferðaáætlun
hans og systkinanna féll
þvi i þetta sinn alveg
saman. En þó grunaði
Berit það, að Grainger
myndi vera ljúfari á öll
loforð, af þvi að hann
vildi að hún yrði sem
lengst með Lindu.
3.
Snemma morguns
hinn27. júni fóru þau frá
Cuzco með morgunlest-
inni. Þá var stjórnin i
Perú, einmitt að byrja á
jarnbrautinni frá Cuzco
i Urubambadalinn.
Stjómin vonaði að inn-
flytjendur kæmu nógir i
dalinn, þegar járnbraut-
in væri komin.
I Urubambadalnum er
hægt að rækta bæði
kakó, sykurreir o.fl.,
Þegar járnbrautin væri
komin, yrði greið leið
milli Cuzco og Iquitos. A
þessu ári voru aðeins 40
kilómetrar lagðir af
þessari járnbraut.
Þar sem járnbrautin
endaði kom ferðafólkið
að merkilegum búgarði.
Þessi „búgarður” var
sérkennilegt loðdýrabú,
og eru enn þann dag i
dag örfá loðdýrabú
þeirrar tegundar i ver-
öldinni. Að útliti voru
þessi loðdýrabú lik refa-
görðum á Islandi. Þessi
loðdýr nefnast á máli
Perú-búa „Chinchilla”
(Chinchilla er dýrateg-
und skyld kaninum og
hérum. Ekkert nafn á
þessari dýrategund er til
á íslenzku. Aðeins til i
Andesfjöllum).
Berit fékk að skoða
þessi merkilegu loðdýr i
búrum sinum. Þar hlupu
þau fram og aftur með
léttum, mjúkum hreyf-
ingum. Feldur þessara
dýra er silkimjúkur. Á
baki og hliðum eru hárin
um fjögra sentimetra
löng, og þau eru svo
mjúk, að þau leggjast
slétt og fagurlega á
hvorn veginn sem þau
eru strokin. Við hárrót-
ina eru hárin blágrá, en
um miðjuna eru breiðir
hvitir hringir á hverju
hári, en i broddinn eru
þau dökkgrá. Þessar
litabreytingar valda þvi,
að feldurinn fær sér-
kennilegan silfurgráan
blæ. Kviðurinn og fætur
eru hvitir.
Wilson sagði Berit að
feldur þessara dýri væri
dýrasta tegund, sem
þekktist i heiminum.
Þetta er ekki eingöngu
af þvi, að feldur þeirra
er svo fallegur, heldur
lika vegna þess að þessi
dýr eru svo fágæt, og
var feldur þeirra svo
eftirsóttur, að þeim
hafði nær verið útrýmt.
(Aðal heimkynni þess-
ara dýra eru i
Andesfjöllunum, og um
aldamótin siðustu var
allmikið til af þeim. Um
1920 voru þau alfriðuð i
Perú og Boliviu. Nú er
reynt að fjölga þessum
dýrum og ala þau i búr-
um, en talið er óvist að
þetta takist).
Frá járnbrautarstöð-
inni var haldið áfram i
bifreiðum á leið niður i
Urubambadalinn. Slétt-
an var jáfnstrjálbyggð
og gróðurlaus sem fyrr.
Napur vindurinn næddi
umhásláttuna, og Berit
var helköld og þær stöll-
ur báðar i opnum
bilnum.
Hér uppi á hásléttunni
var Urubamba vatnslitil
á, sem seig silalega um
MARGFALDUR
SIGURVEGARI!
SIMCA 1508 er bíllinn sem farið hefursigurförallt
frá því að hann var kjörinn bíll ársins 1976 og varð
fyrstur í næturrallinu í okt. 1977.
Þetta er bíllinn sem vandlátir bifreiðakaupendur
vilja eignast.
Fimm dyra framhjóladrifinn fjölskyIdubíll.
ö Ifökull hf.
Ármúla 36 - 84366
Sölumenn Chrysler-sal 83330/83454.