Tíminn - 17.08.1978, Side 1

Tíminn - 17.08.1978, Side 1
Fimmtudagur 17. ágúst 1978 —177. tölubiað—62. árgangur Vilja læknar ekki geðdeildina á lóð Landspitalans? Sjá bak Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300; Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 Lúðvík Jósepsson: AFTEKUR EKKI MYNDUN NÝSKÖPUNARSTJÓRNAR Slegist á Bessa HEI — Forseti Islands kvaddi Lúövik Jósepsson á sinn fund kl. 151 gær og fór þess á leit að hann hefði eins fljótt og unnt væri við- ræður viö aðra stjórnmálaflokka um myndun meirihlutastjórnar. „Nú er að tala við hina flokk- ana”, sagöi Lúövik. „Grundvöll- urinn er að það takist samkomu- lag milli okkar og Alþýðuflokks- ins”, sagði hann. Þá sagði hann einnig ljóst, að þar sem um myndun meirihlutastjórnar væri að ræða, þá yrði eölilega að kanna afstööu Framsóknarflokksins og fá úr þvi skorið hvort hann væri til viöræðu um myndun vinstri- stjórnar, þvi Lúövik telur vinstri- stjórn eölilegasta möguleikann. Hinsvegar sagöist hann heldur ekki fortaka aö litiö yröi á mögu- leika á myndun nýsköpunar- stjórnar. Lúövik sagði aö flokknum hefði aö undanförnu borist fjöldi af skeytum og bréfum, þar sem þess værifariðáleit.aöþeir reyndu að Mikili fjöidi fjölmiðlamanna beið að Bessastöðum i gær og spenna I hópnum að vita hver hefði nú veriö kvaddur á fund forseta. Menn flykktust siðan aö er Lúðvik Jósepsson renndi i hlaðið. Hann sagði sýni- legt að mikili áhugi væri fyrir sér, þvi fleiri hefðu nú fengiö aö reyna stjórnarmyndun en hann. Timamynd: Tryggvi. M Forseti lsiands, Kristján Eldjárn og Lúðvik Jósepsson á Bessastöð- um i gær. Timamynd: Tryggvi. leysa þann hnút i launa- og kjara- málum sem staðið hefði i langan tima óleystur. Ekki vildi Lúðvik um það segja, hvorthann yröiforsætisráðherra, — sagöi að ef hann gæti myndað meirihlutastjórn, sem heföi þau úrræöi er hann væri ánægður meö, setti hann ekki fyrir sig þótt hann yrði ekki sjálfur forsætis- ráðherra. Aö siðustu var hann spuröur hvort hann væri bjart- sýnn á aö þessi fimmta tilraun tækist, og sagðist hann ekki geta veriö bjartsýnn, en þaö væri þó nokkur von. Olafur Jóhannesson: Þeir hljóta að vera sammála um eitthvað — annars færi Lúðvík ekki að fitja upp á þessu HEI —Það er sjálfisagt að Lúð- vik fái að gera þessa tilraun sagði Ólafur Jóhannesson eftir þing- flokks- og framkvæmdastjóra- fund i gær, er hann var spurður um álit á tilraun Lúöviks til stj ór nar my nd una r. Hvort Ólafur teldi að eitthvað hefði þokast i samkomulagsátt með Alþýðuflokki og Alþýðu- bandalagi, sem ætti að gera þessa tilraun auöveldari, svaraði hann: ,,Ég skil tilmæli Lúðviks til min svoleiðis, að þeir hljóti aö vera sammála um eitthvað. Hann færi ekki að fitja upp á þessu öðru- visi.” „Mérfinnst vel koma til greina aö mynda vinstri stjórn”, sagði Tómas Árnason. Um hvort hann teldi það mundu ganga betur i annarri tilraun svaraði hann: „Viö skulum vona að það hafi orðið einhverjar breytingar fyrst menn vilja stofna til viöræðna á nýjan leik”. „Égvona að þeirhafi báöir lært eitthvaö og að viljinn sé meiri núna”, sagði Steingrimur Her- mannsson. „Ég held lika aö það hafi verið mikill þrýstingur á báða flokkanna frá ýmsum, sem vilja mjög ákveðið vinstri stjorn og ég trúi þvi og finnst það liggja i loftinu aö þeir muni vera tilbún- ir að slaka á sinum úrslitakröf- um. — En framsóknarmenn — hafa þeir lært? „Við höfumailtaf verið á réttri leið”. Stengrimur var þá beðinn aö skýra hvernig á þvl stæði aö Framsóknarflokkurinn væri tal- inn hægri flokkur I viðræöum við Sjálfstæðisflokkinn en vinstri flokkur i viöræöum við Alþýðu- bandalagiö. Steingrimur sagði: „Þetta er auövitaö tóm vitleysa þvi við er- um hvorki hægri né vinstri flokk- ur — okkar stefna erbeint áfram, Fram sóknar stef na ”. Guðmundur G. Þórarinsson sagðist telja að Framsóknar- flokkurinn ætti aö taka þátt i viö- ræðum um vinstri stjórn. En, sagði hann, við eigum skilyröis- laust að fá aö vita áður, um hvað þeir eru sammála. Slðah, að ef viö náum ekki fram okkar grund- vallaratriðum, sem viö höfum þegar lagt fram, þá tel ég ekki koma til greina að Framsóknar- flokkurinn fari i rikisstjórn sagði Guðmundur. Isbjörninn hluthafi í stærsta mjölvinnsluskipi stöðum heims Kaupverðið 14 milljónir dollara AM — „Við erum reyndar minnsti aðilinn I þvi hlutafélagi, sem stofnað hefur verið um þessi kaup, en hinir hluthafarnir eru seljendur skipsins, norska fyrir- tækið Sigurd Herlofsson og bresk- ir aöilar Sime Darby. Kaupverð skipsins var alls 14 milljónir bandarikjadollara”, sagði Vilhjálmur Ingvarsson I viötali viö blaðið I gær, en isbjörninn er hinn islenski aðili að kaupunum. Eins og Timinn skýrði frá i gær mun rekstur þessa stærsta mjölbræðsluskips i heimi nú aö nokkru færast á islenskar hendur og sagði Vilhjálmur að leyfi hefði fengist til kaupanna hjá islensk- um stjórnvöldum. Vilhjálmur lagði áherslu á að Isbjörninn heföi ekki gengist und- ir neinar ábyrgðir vegna kaup- anna og ennfremur að ekki mætti skilja þetta samþykki stjórnvalda á þann hátt, að skipið fengi aukiö ráðrúm til að stunda vinnslu hér við land um fram það sem veriö heföi, að allt væri það háö leyfi islenskra yfirvalda frá einum tima til annars. Skipið þegar afhent Þá sagði Vilhjálmur aö kaupin hefðu formlega farið fram t'yrir þrem mánuðum og að skipiö væri nú að loðnuvinnslu i Barentshafi. Hvað veiðar framvegis snerti, mundu verkefni skipsins fara eft- ir þvi að vonum hvar veiði væri fyrir hendi og leyfi fengjust til veiða. Svo sem fram kom i frá- sögn blaðsins i gær mun greiösla á eftirstöövum fara eftir afla skipsins, en helmingur kaup- verösins var greiddur út og kvað Vilhjálmur þá greiðslu aö mestu hafa farið fram með lántökum. Á meðan Lúðvik var á fundi með forseta lslands á Bessastöðum i gær biðu þar fyrir utan nokkrir óþreyjufullir strákar úr Hafnar- firði sem sögðust hafa ætlað að banka upp á hjá forseta, en þar var þá upptekið. Leiddist piltum biðin og styttu sér stundir i hörku- slagsmálum utan við forsetabú- staðinn. Þegar Lúövik kom af fundi forseta voru blaöamenn svo uppteknir við að taka hann tali, aö þeir fylgdust ekki meö hvernig erindi piltanna lyktaði á forseta- setrinu. Timamýnd: Tryggvi.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.