Tíminn - 07.09.1978, Qupperneq 3
Fimmtudagur 7. september 1978
3
Formaður kaupmannasamtakanna:
Verslunin þolir ekki
lækkaða álagningu
— vonast eftir góðri samvimra við viðskiptaráðherra
HEI— „Á þessu stigi er ekki gott að gefa miklar
upplýsingar um það hvað rætt var”, sagði Gunn-
ar Snorrason er Timinn spurði hann tiðinda af
fundi forystumanna kaupmannasamtakanna
með viðskiptaráðherra i fyrradag.
„Ég á von á þvi, að i fram-
haldi af þessum fundi komum
við til með að ræða um gömlu
verðlagsákvæðin og framtfðina
i verölagsmálum. Ég vona að
það verði góð samvinna við við-
skiptaráðherra i sambandi við
þau mál.”
Gunnar var spurður um
hvernig honum litist á stefnu
stjórnarinnar i verðlagsmálum.
Hann sagði, að ef farið væri út i
það að nota hina svokölluðu 30%
reglu i kjölfar gengisfellingar-
innar núna, eins og gert hefur
verið áður, mundu kaupmanna-
samtökin mótmæla þvi. Þau
teldu álagninguna komna þaö.
neðarlega núna, en hún hefði
farið silækkandi frá árinu 1974,
, að þessi regla gæti ekki passaö I
dag, þótt hún hefði kannski ein-
hvern tima gert það. Núna væri
langt i frá aö verslunin þyldi
lækkaða álagningu, og sagöist
Gunnar telja, að strax þyrfti aö
endurskoða þessi mál, þvi aö
rekstrarkostnaður i verslun
sem öðrum fyrirtækjum stór-
hækkaði.
Þá sagöi Gunnar, að það
hefðu oröið sér vonbrigði að
ákveðnum hluta af nýjum lög-
um um verðlagsmál frá siöasta
þingi ætti nú að fresta. Annaö
mikið mál væri niöurfelling
söluskatts af allri matvöru. Það
virtist kannski i fljótu bragöi
vera þaö sem kaupmenn raun-
verulega vildu, aö losna við inn-
heimtu söluskattsins. En reynd-
in yrði þó sennilega sú, aö þetta
yrði stórum meira starf, hjá
smásöluversluninni en áöur,
vegna þess að t.d. i blandaðri
kjörbúð yrðu hreinlætisvörur og
fleira ekki undanþegið sölu-
skattinum. Þvi fylgdi, að vinnan
við allar skýrslugeröir mundi
stóraukast og verslunin mundi
koma til með að þurfa að leggja
i ptóraukinn kostnað, vegna
þessarar innheimtu af þeim fáu
söluskattsskyldu vörum sem
eftir væru. Frá þessu væru ein-
stöku undantekningar, þar sem
væru litlar verslanir með mat-
vöru eingöngu, þetta væri aö
sjálfsögðu mjög gott fyrir þær.
ag NEYTENDASftMTÖKIN ERU
«*»?»■■ HRGSMUNASAMTÖK
"í .-yVi'f OKKAR ALLRfl
PL- GANCID í SAMTÖKIN
g==k. SÍMI 21666
...•.. „T
- ;
legt
auglýs-
inga-
skilti...
HR — Þetta hressilega aug-
lýsingaskilti, á myndinni hér fyr-
ir ofan, rákumst við á niðri við
Hallærisplan fyrir skemmstu. Er
það frá Neytendasamtökunum og
hafa þrjár ungar myndlistarkon-
ur málaö það. Við látum hér fljóta
með mynd af þvl og minnum I
leiöinni á að Neytendasamtökin
eru hagsmunasamtök okkar allra
eins og segir á skiltinu.
14—15 SKIP
FLOTANUM
Lögbann á
í ÍSLENSKA
— veröa ekki teki
nema erlendis
AM — Þarna stendur
Bæjarfoss, minnsta skip
Eimskipafélagsins, á
þeim minnsta af þremur
vögnum i slippnum i
Reykjavik, en fjær sjá-
um við Langá á stærsta
vagninum.
Guðmundur H. Sigurðsson,
yfirverkstjóri hjá Slippfélaginu
sagði okkur að niu af skipum
Eimskips yrðu ekki tekin I slipp
hérlendis og alls væru það 14-15
1 í slipp
skip, sem svo væri ástatt um i
flotanum nú. Hann sagði, að
stærsti vagninn gæti tekiö 2400
þungatonn og skip sem væru 75
metra löng. Þessi vagn væri 13.40
metrar á breidd milli vinnupalla
en yfirleitt væru 75 metra löng
skip um þaö bil 13 metra breið,
svo þetta samræmdist all vel. Á
Akureyri er þessu svipað farið, en
segja má, aö þar sem ekki eru
pallar á þeirra vagni, sem tak-
marka breiddina, geti þeir tekið
breiðari skip, ef svo ber undir.
Slippfélagið i Reykjavik hf. er
nú orðið 76 ára, svo sem fram
kom i frétt hér i blaðinu um dag-
inn. Mönnum hjá Slippfélaginu
þótti rétt að benda blaðamanni á,
að I þessari frétt var sagt að
„Slippurinn” væri orðinn 76 ára,
og mætti skilja þaö svo að
dráttarbrautirnar væru orönar
þetta gamlar. Þær eru að sjálf-
sögðu miklu yngri og er skylt að
þetta komi fram hér. (Timamynd
Róbert)
Fiat-menn röðuðu bflum upp, þannig að ekki var hægt aö steypa kantsteina meðan beðiö var eftir lög-
reglunni. Mynd:Tryggvi
framkvæmdir
á lóðamörkinn
ATA —Nágrannakrytur og deilur
um lóðamörk hafa iöngum staðið
hjarta tslendingsins nær. t gær
blossuðu upp deilur á lóöamáli á
Siðumúlanum. Málinu lyktaöi
með lögbanni og afskiptum lög-
reglunnar.
Deiluaöilar eru eigendur hús-
annanúmer 35 (Fiat-umboðið) og
37 við Siðumúla. Eigendur númer
37 ætluðu aö láta steypa kant-
steina á lóðamörkum en sam-
kvæmtkvöðhjá Reykjavikurborg
er þessi framkvæmd ólögleg.
Hafsteinn Halldórsson skrif-
stofustjóri hjá Daviö Sigurðssyni
h.f., sagði í samtali við Timann aö
með þessari framkvæmd heföi
innkeyrsla aö baklóð Fiat-um-
boðsins veriö minnkuð um helm-
ing. Borgarverkfræðingur haföi
komiö á staðinn og sagt, aö eig-
endur 37 mættu afmarka bila-
stæöi sin meö kantsteinum en
ekki steypa kantsteina í inn-
keyrsluna.
Þessum fyrirmælum borgar-
verkfræðings höfðu eigendurnir
ekki farið eftir og ætluðu aö
steypa kantstein upp inn-
keyrsluna. Var nú lögregla kölluð
á vettvang og borgarverk-
fræðingur setti lögbann á verkiö.
Hafsteinn sagði að þaö væri
kvöð hjá Reykjavikurborg, aö
ekki sé átt viö veginn milli hús-
anna, þannig að hægt sé að nýta
baklóðirnar. Ef vegurinn er
helmingaöur þá er ekki eftir
nema ein akrein aö bDasölu og
verkstæöi umboðsins. Þetta
myndi skapa mikil vandræði og
beinlinis hættu á vetrum, þegar
hált er.
Málið er nú komiö i hendur lög-
fræðinga. A meöan veröur ekkert
frekar aöhafst i kantsteina-
framkvæmdum á lóöinni þeirri.