Tíminn - 07.09.1978, Side 6
6
Fimmtudagur 7. september 1978
r
Útgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Auglýsinga-
stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og' auglýsingar Slöumúla 15. Simi
86300.
Haraldur Ólafsson skrifar:
Spenna eykst á Svalbarða
Sovétmenn setja upp radarstöð i trássi við Norðmenn
Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00:
86387. Verö i lausasölu kr. 100.00. Askriftargjald kr. 2.000 á
mánuöi.
Blaöaprent h.f.
V____________________________________________)
Þeir slá
saman höndum
Það hefur vakið nokkra athygli nú að undan-
förnu að það er eins og tiltekinn hluti af þingflokki
Alþýðuflokksins sé kominn á flugstig í nýja kosn-
ingabaráttu. Virðist þó hreint ekki ljóst hvers kon-
ar kosningar um er að ræða, og má vera að um
fram allt annað sé það á döfinni að fólk fái sem
minnst tækifæri til að gleyma þessu liði um stund
meðan tekist er á við alvarleg vandamál þjóðar-
búsins.
Þessi hópur stjórnmálamanna hefur tekið sér
það fyrir hendur að ástunda stjórnmálastörf eins
og kvikmyndastjörnur hegða einkalifi sinu eða it-
urvaxnir hnefaleikakappar orða yfirlýsingar sinar
hver um annan áður en stigið er inn i hringinn og
pústrar taka við af gapuxalegum fúkyrðum.
Þetta kimilega viðundur i sjónleikasal islenskra
stjórnmála hefur almenningur getað haft sér til
afþreyingar undanfarnar víkur, meðan beðið var
ákveðinnar niðurstöðu um myndun ábyrgrar
rikisstjórnar.
Eftir að Alþýðuflokkurinn er orðinn aðili að
rikisstjórn heldur skopleikurinn auðvitað áfram.
Það er aðeins nýr þáttur sem hefst, og eru leik-
tjöldin nú siður Morgunblaðsins.
Þinglið Alþýðuflokksins, ásamt keppinautum
nokkrum úr Alþýðubandalaginu eru Morgunblað-
inu mikill fengur og liðsauki á þessum siðustu og
verstu timum eins og þeir eru taldir á ritstjómar-
skrifstofum þess.
Ekki er Sjálfstæðismönnum sist dillað fyrir þá
sök að þeir finna að þeir þurfa ekki annað en slá
saman höndum að sið höfðingja á fyrri tið og þá
hlaupa hirðfiflin þegar fram á gólfið og hefja
fjöllistasýningar sinar um hæl.
Það var einmitt löngum vinsælt athæfi i höllum
að hirðfiflin atyrtu hvert annað með herfilegum og
neyðarlegum hætti gestum og höfðingjum til
skemmtunar og yndisauka.
Það hefur nefnilega hver sinn smekk um slika
hluti eins og flest annað.
Að undanförnu hefur verið timi auglýsinga-
mennsku og stóryrðaglamurs i islenskum stjórn-
málum. Það er greinilega ásetningur þingliða Al-
þýðuflokks og Alþýðubandalags, að minnsta kosti
nokkurra úr báðum flokkum, að halda þessu
gamni áfram. Hugsunarhætti þeirra virðist þann
veg farið að þeir haldi að hér sé um að ræða ein-
hvers konar upplýsingaskyldu stjórnvalda við al-
menning.
Allur almenningur veit hins vegar að hér er
aðeins um að ræða fleipur og geipan. Og almenn-
ingur þreytist á slíku áður en varir.
Sumt bendir vissulega til þess að ekki þurfi
meira en rosalegan strigakjaft til þess að komast i
álit meðal íslendinga og hljóta traust þeirra meira
að segja til æðstu metorða i landinu. Sé svo til
lengdar i raun og veru, verður það vist að teljast
enn ein sönnunin á sérkennilega stórkarlalegri
kimnigáfu þjóðarinnar, og er þá ekki að undra
heldur hve erfitt okkur hefur löngum reynst að
komast að skynsamlegu samkomulagi um undir-
stöðuatriði t.d. i efnahagsmálum.
JS.
Siöustu atburöirnir á Sval-
baröa hafa valdiö miklu
fjaðrafoki I Noregi. Rétt
fyrir siöustu mánaöamót
komust fréttamenn frá
Tromsö aö þvi, aö Sovét-
menn hafa sett upp hreyfan-
lega radarstöö I grennd viö
flugvöll sinn viö Kapp
Heer-flugstööina. Þessar
framkvæmdir höföu aö visu
ekki fariö fram hjá sýslu-
manninum norska, sem er
fulltrúi norsku stjórnarinnar
á eyjunum. Hann haföi bara
ekki taliö, aö radarstöö þessi
skipti máli. Næst gerist þaö,
aö sovésk eftirlitsflugvél
hrapar á eyjunni Hopen,
einni af Svalbaröaeyjunum.
Dularfullt flugslys
Ekki er meö vissu vitaö hve
margir voru meö vélinni, sem
fórst, en Norömenn fundu sjö
lik þegar þeir komu að flak-
inu.
Sovétmenn hafa enga grein
gert fyrir feröum flugvélar-
innar, sem talin er vera eftir-
litsflugvél og er hlutverk
hennar aö fylgjast meö kaf-
bátum og skipaferöum á út-
hafinu. Hún er af svipaöri
stærö og Orion-vélarnar, sem
notaöar eru af Norömönnum
sjálfum, og Islendingar
þekkja vel, enda hafa þær
stundar eftirlitsflug frá Kefla-
vikurvelli um árabil.
Norskar radarstöövar uröu
ekki varar viö feröir vélarinn-
ar, enda ná þær ekki til flug-
véla, sem fljúga lágt yfir Sval-
baröa. Liklegt er, aö fylgst
hafi veriö meö vélinni úr
bandariskum njósnahnöttum.
Knut Frydenlund, utanrikis-
ráöherra Norðmanna, hefur
gert litið úr þessum atburöi og
visar á bug aö Sovétmenn hafi
viljandi veriö aö rjúfa loft-
helgi Noregs. Hér hafi verið
um slys aö ræöa. Aörirnorskir
stjórnmálamenn eru annarrar
skoöunar, og telja ekki útilok-
aö, aö vélin hafi veriö send til
njósna inn yfir norskt yfir-
ráöasvæði.
Allt I einu var
komin radarstöð
Hin nýja radarstöö við
Barentsburg hefur þó oröiö
Norömönnum meira áhyggju-
efni. Samkvæmt aljóðasátt-
málanum frá 1925 fara Norö-
menn meö lögsögu á Sval-
baröa, en tilteknum þjóöum
(alls um 40) er heimilt aö nýta
þar málma. Algerlega er
bannaö aö hafa þar hernaðar-
mannvirki af nokkrutagi. Þaö
atriöi hafa Norömenn haldiö i
heiöri og Sovétmenn einnig, en
þessar tvær þjóöir eru einar
um aö nýta kolanámurnar á
eyjunum. Norömenn telja, aö
Brot úr
Hopen
flaki sovésku eftirlitsflugvélarinnar, sem fórst á
Sovétmönnum hafi borið aö
láta vita um radarstööina,
enda sé hún svo kraftmikil, að
meö henni sé unnt aö fýlgjast
með öllum ferðum i lofti yfir
eyjunum.
Þessir siöustu viöburðir
vekja harkalega athygli á
hinni viökvæmu stööu Sval-
barða og hve erfitt Norömönn-
um er að eiga svo öflugan
granna sem Sovétrikin eru.
Samkvæmt sáttmálanum um
Svalbarða gilda norsk lög á
svæöinu. Sýslumaöurinn
norski er æösta yfirvald á
staönum. Hann hefur þaö hlut-
verk aö sjá um, aö lögum sé
fylgt og reglur i heiöri haföar.
Þaö hefur oröiö æ tiöara á
undanförnum árum, aö Sovét-
menn hafi hunsaö reglur og
lög Norðmanna. Sem dæmi
má nefna, aö þeir láta ekki
skrá farartæki sin á eyjunum,
þeir sjá sjálfir um jxistsam-
göngur milli Sovétrikjanna og
Svalbaröa, og þeir hafa ekki
látib skrá orkuver sitt viö Bar-
entsburg. Allt er þetta and-
stætt norskum lögum.
Samstjórn Norðmanna
og Sovétmanna?
Willy Ostereng, forstööu-
maöur Fridtjof Nansen-stofii-
unarinnar, er manna kunnug-
Dugi ekki sigöin verö ég aö nota hamarinn!
astur Svalbarða og öllu, sem
þar fer fram og hefur farið
fram. 1 tilefni af þessu siðustu
viöburðum lætur hann svo um
mælt i viðtali við norska blaðiö
Nationen, að svo liti út sem
Sovétmenn séu þeirrar skoö-
unar, að yfirráö Norömanna
yfirSvalbarðaséu takmörkuö.
Þeir reyni að fara aö eigin
reglum á þeim svæðum, sem
þeir búa, en fylgi reglum
Norömanna annars staöar á
eyjunum. Þetta sé hugsanlega
liöur i marg itrekuðum til-
raunum þeirra til aö fá Norð-
menn til að hef ja viöræður um
samstjórn þessara tveggja
þjóöa á Svalbarða. Norðmenn
hafa til þessa algerlega visaö
á bug öUum slikum hugmynd-
um, enda eru þær ekki i sam-
ræmi við sáttmálannum Sval-
barða frá 1925.
östereng fellst ekki á, að
uppsetning sovésku radar-
stöðvarinnarséótvirætt brotá
sáttmálanum. Hins vegar geti
auðvitaö slik radarstöö haft
hernaöarlegt gildi, og þaö sé
auösætt brot af Sovétmönnum
aötilkynna Norömönnum ekki
um framkvæmdina. Sovét-
menn hafa hvaö eftir annað
mótmælt framkvæmdum
Norbmanna við flugstööina
viö Longyearbyen, þar sem
flestir Norðmenn búa, en ekki
látiö vita um svipaöar fram-
kvæmdir við Barentsburg.
Johan Jörgen Holst, sem er
háttsettur i varnarmálaráöu-
neytinu norska hefur manna
mest varað við þvi aö sett
veröi sameiginleg
norsk-sovésk stjórn á Sval-
barða. Telur hann þaö brot á
Svalbarðasáttmálanum, sem
gerir ráö fyrir þvi,' að öll aö-
ildarrikin, sem undirrituðu
hann eigi kröfu til samskonar
réttinda þar.
Oryggismál þjóöa viö
noröanvert Atlantshaf og
Noröur-lshafiö eru tengd og
allt, sem á þessu svæöi gerist
snertir þau öll. Þaö er þvi rik
ástæba fyrir Islendinga aö
fylgjast rækilega meö öllu,
sem fram fer á Svalbarða,
sem og öðrum svæöum á
noröurhjara heims. Þegar
öryggis- og sjálfstæðismál ís-
lands eru metin verður ekki
sist að kanna hvaö er aö ger-
ast og hvaö getur gerst á Sval-
baröa. h.ó.