Tíminn - 01.10.1978, Side 27

Tíminn - 01.10.1978, Side 27
Sunnudagur 1. október 1978 27 -'•3S'' Dúmbó og Steini - Steinar 025 Dömufrl sem er önnur stóra plata Dumbó og Steina er eins og hin fyrri ætluö fyrir óskalagaþætti útvarpsins og fjörug partý þar sem heilinn er ekki brotinn um „smáatriöi” eins og texta og annaö inni- hald laganna sem leikin eru. Sem slik er Dömufri ágætis plata og stendur vel fyrir sinu, jafnvel miöaö viö fyrri plötuna. En fyrir þá sem vilja eitthvaö meira en afþreyingartónlist af „ódýrari” geröinni, er Dömufri ekki rétta platan. Eins og áöur segir þá tekst Dumbóum ágætlega upp aö þessu sinni viö þaö aö hafa ofan af fyrir þeim sem kunna aö meta tónlist sem þessa. Lögin eru tólf aö tölu og þar af heimingurinn islenskur. Þau lög sem sérstaklega vekja athygli eru „Óskadraumur;’ Finnboga Gunnlaugssonar og „Halló Apabróöir” eftir Hauk Ingibergsson og Bjartmar Hannesson. Reyndar má segja aö islensku lögin séu friskari hluti þessarar piötu, þvi aö hinar útjöskuöu gömlu erlendu lummur sem þarna er boöiö upp á eru orön- ar hálf myglulegar. Þá eru textarnir einnig skömm- inni skárri viö Islensku lögin. Dömufri var hljóörituö I Hijóörita I Hafnarfiröi og um vélstjórn sáu James Kay, Garöar Hansen og Siguröur Bjóla Garöarsson. Leikstjóri var Baldur Már Arngrimsson og umslagiö sem trúlega er þaö besta viö plötuna var gert af Pétri Halldórssyni. —ESE Dömufrí 10 c.c. - Bloody Tourists Mercury 9102 503 /Fálkinn Enginn veit hvaö átt hefur fyrr en misst hefur. Þetta máltæki og sú hugsun sem liggur á bak viö þaö á mjög vel viö um bresku hljómsveitina 10 c.c., þvi aö þaö leikur enginn vafi á þvi aö hún hefur ekki boriö sitt barr eftir aö Kevin Godley og Lol Creme hættu i henni fyrir tveim árum siöan. Þeir Eric Stewart og Graham Gouldman sem eft- ir uröu I hljómsveitinni hafa þó allan þennan tima reynt af veikum mætti aö halda I forna frægö, en sannleikurinn er sá aö árangur hefur ekki oröiö sem erfiöi. A þessum tveim árum sem liöin eru siöan þeir Godley og Creme hættu, hefur 10 c.c. sent frá sér tvær súdióplötur, „Deceptive Bends” og „Bloody Tourists”, sem hér er til umfjöllunar. Þessar plötur eru aö mörgu leyti ágætar, en þegar þær eru miöaöar viö meistaraverk 10 c.c. „The Original Soundtrack” og „How Dare You”, þá fer af þeim mesti glansinn, reyndar á maöur bágt meö aö sætta sig viö aö þær séu ekki betri en raun ber vitni. Af tvennu „illu” þá er þó „Bioody Tourists” skömminni skárri, þó aö sjaldan örli á þeim frum- leika sem var aöalsmerki 10 c.c. hér áöur fyrr. Þaö viröist sem svo aö þeir Stewart og Gouldman séu þurrausnir og aö öll þeirra sköpunargáfa sé I iág- marki. A „Bloody Tourists” t.a.m. þá er veriö aö hjakka á sömu gömlu lögunum sem geröu garöinn frægan fyrir 2-3 árum og þá sjáldan er eitthvaö frumlegt og nýtt heyrist á plötunni þá er þaö fyrir áhrif nýrra liösmanna i hljómsveitinni. Meö þessu er ekki sagt aö „Bloody Tourists” sé léleg plata, en fyrir þá sem kunnu aö meta t.d. „How Dare You” þá er „BT” ekkert til aö hrópa húrra fyrir. Þó aö hér sé ekki fariö sérstaklega vinsamlegum oröum ★ ★ ★ ★-!- um þessa nýju plötu 10 c.c„ þá veröur aö unna hljómsveitinni sannmælis og geta um þaö sem vel er og á ég þar viö hljóöfæraleikinn, en hann er alltaf fyrsta flokks, eins og hljómsveitin sjálf var, þegar tvöfaldi dúettinn Godley--Creme og Stewart-Gould- man voru upp á sitt besta. —ESE Shakespearos á hljómleikum I Red Cow — eöa Strangiers eins og islendingar þekkja þá. DIESEL Viö útvegum dieselvélar og fylgihluti til ísetningar í ýmsar geröir bifreiöa. Frekari upplýsingar gefur HAFRAFELL HF VAGNHÖFÐA 7, SÍMI 85211 Skrifstofustarf Viljum ráða á næstunni fulltrúa til að annast undirbúning fyrir tölvuvinnslu i sambandi við launagreiðslur, (ekki göt- un). Laun samkvæmt 11. launaflokki rikisstarfsmanna. Umsóknir á þar til geröum eyöublööum, sem fást hjá undirrituöum, þurfa aö berast fyrir 12. október n.k. Vegagerð rikisins, Borgartúni 7, Reykjavik. Hreingerningar Stór verslun i Reykjavik óskar eftir starfskrafti til hreingerninga og tiltekta i verslun og fleira. Vinnutimi frá 8-4,30. Umsóknir er greini frá aldri og fyrri störf- um óskast lagðar á Timann fyrir 5/10 n.k. merkt 1294. RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður Hjúkrunarfræðingar og fóstrur óskast aö Geödeild Barnaspitala Hringsins, Dalbraut 12. Uppiýsingar veitir hjúkrunarstjóri i sima 84611. Reykjavik, 1.10. 1978. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5, Simi 29000.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.