Tíminn - 14.12.1978, Page 2
2
Fimmtudagur 14. desember 1978
ERLENDAR FRETTIR
umsjón:
Kjartan Jónasson
Italir
með í
gjaldeyr-
iskerfið
BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR ■ AKUREYRI
Róm/Reuter — Allt Utlit var
fyririftalska þinginui gær, afi
samþykkt yröi aöild aö hinu
nýja sameiginlega gjaldeyris-
kerfi Efnahagsbandalagsrlkj-
anna, þrátt fyrir harövftuga
andstööu Kommiinistaflokks-
ins. Samþykki ttalir aö ganga
til samstarfsins kann þaö aö
leiða til þess, aö trland geri
siikt hiö sama og Bretland
standi þá eitt bandalagsrikj-
anna utan gjaldeyriskerfisins.
Valgeir Sigurðsson:
UM MARGT AÐ SPJALLA
( þessari fjölbreyttu og skemmtilegu
bók, birtast 15 viötalsþættir Valgeirs
Sigurðssonar blaðamanns við
merka, núlifandi Islendinga, sem allir
hafa eitthvað sérstakt, fræðandi og
skemmtilegt (pokahorninu. Viðmæl-
endur Valgeirs eru: Einar Kristjáns-
son, Hannes Pétursson, Indriði G.
Þorstensson, Kristján frá Djúpalæk,
Rósberg G. Snædal, Broddi Jó-
hannesson, Eysteinn Jónsson, Guð-
rún Ásmundsdóttir, Jakob Bene-
diktsson, Sigurður Kr. Árnason,
Anna Sigurðardóttir, Auður Eiríks-
dóttir, Auöur Jónasdóttir, Stefán Jó-
hannsson, Þorkell Bjarnason. I bók-
inni birtast myndir af öllum viðmæl-
endum Valgeirs, og í bókarlok er
mannanafnaskrá.
Verð kr. 6.480.
Þjóðsagnasafn Odds Björnssonar
ÞJÓÐTRÚ
OG ÞJÓÐSAGNIR
Sígild og góð bók í nýrri og aukinni
útgáfu. Bók, sem ætti að vera til á
hverju íslenzku heimili, ungum sem
öldnum til ánægju.
Verð kr. 9.600.
Erlingur Davíðsson:
NÓI BÁTASMIÐUR
Endurminningar Kristjáns Nóa Krist-
jánssonar, sem í daglegu tali gengur
undir nafninu Nói bátasmiður. Hann
er mjög sérstæður persónuleiki sem
gaman er aö kynnast. Hér segir Nói
bátasmiður frá ýmsum atvikum lið-
innar ævi, hefir sérstök orðatiltæki á
hraðbergi og kallar ekki allt ömmu
sína.
Verð kr. 6.840.
Sidney Sheldon:
ANDLIT f SPEGLINUM
(fyrra var það „Fram yflr mlðnættl"
og nú kemur „Andllt í speglinum '.
Þessi nýja ástarsaga eftir Sidney
Sheldon er þrungin hröllvekjandi
spennu sem heldur lesandanum
hugföngnum allt til óvæntra sögu-
loka. Metsöluhöfundurinn Sidney
Sheldon kann þá list að gera sögur
sínar svo spennandi að lesandinn
stendur þvi sem næst á öndinni
þegar hámarkinu er náð . . .
Hersteinn Pálsson þýddi.
Verð kr. 6.600.
SKOÐAÐ í SKRfNU
EIRfKS A HESTEYRI
Jón Kr. ísfeld bjó til prentunar.
Eiríkur (sfeld á Hesteyri í Mjóafirði
fæddist 8. júlí 1873. Á yngri árum
sínum skráði hann mikið af þjóðsög-
um og ævintýrum, sem birtast í
þessari bók.
Bókin skiptist í eftirfarandi kafla:
Dularfull fyrirbrigði — Óvættir —
Reimleikar, svipir o. fl. — Ævintýri —
Sögur ýmiss efnis — Draumar —
Slitur úr Dagbók.
Þetta er kjörin bók fyrir þá sem unna
þjóðlegum, islenskum fróðleik.
Verð kr. 6.480.
Ragnar Þorsteinsson:
SKIPSTJÓRINN OKKAR
ER KONA
Hér kemur hressileg íslenzk sjó-
mannasaga, 10. bókin eftir hinn
ágæta rithöfund Ragnar Þorsteins-
son, sem kunnur er fyrir sínar raun-
sönnu lýsingar á sjómennsku hér við
land. Hér segir frá svaðilförum og
mannraunum og björgun úr sjávar-
háska. En jafnframt er þetta hugljúf
ástarsaga.
Verð kr. 4.200.
Ingibjörg Sigurðardóttir:
ÓSKASONURINN
Sumir rithöfundar hjóta margvíslegr-
ar viðurkenningar og verðlauna fyrir
ritstörf sín. Aðrir njóta hylli almenn-
ings. Ingibjörg Sigurðardóttir á sér
stóran hóp lesenda, sem fagnar
hverri nýrri skáldsögu frá hennar
hendi.
Verð kr. 4.200.
Þorbjörg frá Brekkum:
STÚLKAN
HANDAN VIÐ HAFIÐ
Óttar hefur örðið fyrir mikilli ástar-
sorg og ætlar sér svo sannarlega
ekki að láta ánetjast á ný. En þegar
Sandra kemur óvænt eins og nýr
sólargeisli inn í líf hans, þá blossar
ástin upp. Þau reyna að bæla niður
ofsalegar og heitar tilfinningar sínar
og verða að berjast við margskonar
erfiðleika áður en hin hreina og
sanna ást sigrar að lokum.
Verð kr. 4.200.
— Ferðaáætlun Cyrusar Vance breytt í skyndi
og hann snýr aftur heim til Washington
fyrr en áætlað var
Jerúsalem-Kairó/Reuter — Cyrus Vance utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna átti i gær tveggja stunda
fund með Menachem Begin, forsætisráðherra
ísraels um möguleika á undirritun friðarsamnings
milli israels og Egyptaiands um næstu helgi.
Að fundinum loknum sagði
Vance við fréttamenn, að ágrein-
ingur væri milli hans og Begins
varðandi nýjar tillögur sem hann
hefði sjálfur komið fram með.
Eftir öllum sólarmerkjum að
dæma hefur Sadat Egyptalands-
forseti aftur fallist á þessar tillög-
Hvað er hann nú að brugga?
ur Vance, þvi haft var eftir hon-
um I gærdag, er hann var spurður
um álit sitt á þvl hvort unnt yrði
að undirrita friðarsamning um
helgina svo sem ráö er fyrir gert i
Camp David sáttmálanum, að
hann gæti sagt til um hvort sllkt
yrði unnt strax og Vance kæmi til
baka frá ísrael.
Utanríkisráðherra Israels,
Moshe Dayan, sagöi I gær eftir
fundinn með Vance, að leiðtogar
Israels mundu ræða hinar nýju
tillögur sem Vance heföi komið
með frá Egyptalandi þá um
kvöldið. Þeir mundu siðan eiga
annan fund með Vance i dag.
Þetta er i fullu samræmi við
yfirlýsingar þess efnis, að Vance
mundi dveljast I ísrael fram til
föstudags, en stuttu siðar var gef-
in út tilkynning um að Vance
mundi strax I dag hverfa aftur til
Egyptalands eftir stuttar viðræð-
ur við Begin.
Akvörðun þessa efnis var tekin
I samráöi eða eftir fyrirskipun
Carters Bandarikjaforseta og til-
kynnt um hana eftir að Vance
hafði átt 15 minútna simtal við
forsetann. Mun Vance ræða viö
Sadat Egyptalandsforseta I dag
og dvelja I Kairó I nótt, en fljúga
til Bandarikjanna strax I fyrra-
málið. Engar skýringar voru
gefnar á þessari breyttu áætlun. I
Bandarikjunum var aðeins sagt,
að Vance heföi þýðingarmiklum
málum að sinna I Washington.
Engin svör fengust um, hvort
þessa breyttu áætlun mætti taka
til marks um .að samkomulag
hefði náðst eða að tilraunir til
sliks hefðu alveg farið út um
þúfur.
Líbýumenn
vilja hækka
olíuverðið
Abu Dhabi/Reuter — A fundi
arabiskra olIuUtflutningsrlkja I
gær lagði ollumálaráöherra
Libýu mikla áherslu á að rikin
hækkuðu verulega verð á oliu
sinni, ogsagði hannaö sUkt væri
I fylista samræmi við markaðs-
lögmál. Olia hefði lækkað að
undanförnu og fengist minna
iyrir hana að raunviröi en T
janúar 1977 er hún var siðast
hækkuð, á sama tima og eftir-
spurn hefur aukist, sagði ráð-
herrann. Þá er og haft eftir hon-
um, að Libýumenn kjósi aö
miöa verö oliu viö annan gjald-
miðii en dollarann, þar sem
gengissig hans hefur haft þau
áhrU að raunverð oliunnar hef-
ur lækkað að undanförnu.
Mesti skaði
sem skærulið-
ar hafa valdið
— sagöi Ian Smith um eyöileggingu hálfs
eldsneytisforða landsins
Salisbury/Reuter — Ian Smith,
forsætisráðherra Ródesiu,
viðurkenndi I gær, aö atburöur
sá þegar skæruliöar sprengdu I
loft upp mikinn hluta
eldsneytisbirgða landsins i
fyrradag, væri einhver hinn
versti fyrir afkomu landsins
sem skæruliðar hefðu átt sök á
frá upphafi.
Sagði Smith, aö vonlaust væri
aö fara meö slikt I felur. Hér
væri um mikiö áfall aö ræða og
nær helmingur gifurlegra olíu-
birgða landsins brunnar, en tal-
iö er aö þær nemi 78 milljónum
litra aö verömæti um 18 milljón
bandarískra dala.
Enn logaði i gær i oliunni 48
klukkustundum eftir að spreng-
ingin varö, og talið er að eldur-
inn geti logað enn i nokkrar vik-
ur, en slökkviliö haföi þó náð aö
hefta útbreiöslu hans og koma i
veg fyrir hættu af frekari
sprengingum.
Eitthvaö
seyði í
fríðarviðræðunum?