Tíminn - 14.12.1978, Síða 5
Fimmtudagur 14. desember 1978
MINNING
Ingimundur Gíslason
— frá Brúnstöðum
F. 7. sept. 1905.
D. 3. des. 1978.
13. des. var tíl moldar borinn
Ingimundur á Brúnastööum, eins
og hann ávallt var nefndur nú
oröið af kunnugum, en áöur Ingi-
mundur frá Suöur-Nýjabæ.
Hann.var sonur hjónanna Glsla
Gestssonar og Guörúnar
Magnúsdóttur, er bjuggu allan
sinn búskap i Suöur-Nýjabæ i
Þykkvabæ, en eru nú vistmenn á
Elli- og hjukrunarheimilinu
Grund. Hann á 101 aldursári, en
hún á 93.
Ég hef ekki 1 hyggju aö rekja
ætt Ingimyndar lengra en þetta,
en mig langar til aö minnast
mannsins sjálfs I fáum oröum.
Fátt ýtir jafn óþyrmilega viö
okkur jaröarbörnum og þaö, er
einhver ættingi eöa vinur er burt
kallaöur frá okkur meö svipleg-
um hætti sem þú og fleiri. Þá
fyrst rönkum viö viö okkur og
skiljum, hversu mikill sannleikur
er fólginn í ljóölinum stórskálds-
ins:
Svo örstutt er bil milli
bliöuogéls,
og brugöist getur lániö frá
morgni til kvelds
Já.kæribróöir, þessar ljóölinur
flugu gegnum hug minn er ég
frétti andlát þitt. Fyrir aöeins fá-
um dögum vorum viö hjónin
gestir ykkar hjónanna á hinu
myndarlega og fallega heimili
ykkar. Vist er, aö þá óraöi okkur
ekki fyrir þvi aö þetta yröi okkar
siöasta samverustund I þessulifi.
En svona er llfiö. Þaö er vist best
aö þaö sé eins og þaö er, aö viö
vitum sem minnst um feröina
miklu, sem viö förum öll.
Kæri bróöir, ég veit mæta vel,
aö þú kærir þig aldrei um hrós
eöa skjall, þaö var fjarri þér.
Aöeins raunveruleikinn skipti þig
máli svoaöég vonaaö ég fari ekki
út i þá sálma. Enég get ekkilátiö
hjá llöa aö þakka þér fyrir þann
velvilja, er þú sýndir, þegar viö
vorum aö byggja kirkjuna á þln-
um æskuslóöum, enda hygg ég aö
hugur þinn hafi dvaliö þar oftar
en flesta grunar. Ekki get ég fariö
fram hjá bóndanum I sjálfum þér.
Hann skipaöi ekki svo litiö sæti I
lifi þinu. Þaö var ekki veriö aö
gefast upp, þótt á móti blési,
heldurhaldiö áfram.þvlallt hlaut
aö lagast aftur. Þetta er einmitt
hugarfar islenska bóndans. Ekki
get ég gengiö fram hjá þvl aö
minnastá þaö, hvemikiö yndi þú
haföir af hestunum þlnum. Þaö
var sannarlega mikil natni og
alúö, sem þú sýndir þeim. Þú átt-
ir ávallt fallega og góöa hesta
þina búskapartlö. Og mikiö var
aö gera ef þú gafst þér ekki tlma
til aö leggja viö og fá þér sprett,
oft meö kunningjum og vinum,
enda voru þeir orönir margir.
gaman var aö lita heim aö Brún-
stööum, þegar allt var fullt af
fólki og hestum, enda kölluöu
sumir kunningjarnir þetta býli
Litla Fák.
En svo ég snúi mér aftur aö
alvöru og hamingju lifsins, þá
held ég hún haf i fullkomnast er þú
kynntist og gekkst I hjónaband
meö þinni elskulegu konu,
Guörúnu Þorsteinsdóttur, hinn 10.
júní 1933, og þá brosti lffiö viö
ungu hjónunum, þau eignuöust
þrjú elskuleg börn sem hér eru
talin i aldursröö,
Svanhildur Jóna húsfrú i
Reykjavik, gift Axel Þór Gests-
syni, myndskera og eiga þau þr jú
börn. Hilmar, hæstaréttarlög-
maöur, kvæntur Erlu Hatlemark
og eiga þau tvö börn. Þriöja barn-
iö dó þriggja daga gamalt.
Þú varst hornsteinn okkar ætt-
ar, ávallt barstu merkiö hátt. Þú
varst ávallt eins og fyrrum,
aldrei brástu vonum manns.
Eftir lifsins grýttri götu gangan
veröur mörgum ströng. Þú fórst
ætiö þinar leiöir, þinn ei fótur
brást á leið.
Þó nú liggi leiöir sundur, lifir
minning björt og hlý. Ljúf þig
höndin leiöi Drottins, leiöi þig I
dýröarstaö.
Meö innilegri kveöjuog þökk frá
foreldrum, systkinum, eiginkonu,
börnum, barnabörnum, öörum
vandamönnum og vinum.
óskar Gislason.
t
Mánudaginn 4. des. s.l. sagöi
einn nemanda minna viö mig?
Hann Ingimundur er dáinn. Mér
varö strax ljóst viö hvern hann
átti. Þetta var afabróðir hans.
Hann hafbi oröiö bráökvaddur aö
heimili slnu daginn áöur,
rúmlega 73 ára aö aldri. Ég hitti
Ingimund nokkrum sinnum i
Þykkvabæ, erhann var þará ferö
i heimsókn hjá ættfólki sinu, er
þar býr. Viö uröum brátt
málkunnugir, þvl aö maöurinn
var fljótur ab kynast, léttur I lund
og málreifur. Ég heimsótti þau
hjónin á hinu hlýlega heimili
þeirra vib Suöurlandsbrautina i
Reykjavik. Mér var tekiö sem
aldavini ogeinsogég væri gamall
Þykkvbæingur.
Ingimundur ólst upp hjá
foreldrum sfnum i Suöur-Nýjabæ
og vandist snemma öllum sveita-
störfum. En ekki Ilentist hann I
Þykkvabæ. Jarönæöi hefur ekki
legiö á lausu þar. Fólk yfirgefur
ekki jörö I góösveit nema af nauö-
syn.
Ingimundur var bóndi I hugsun
og setti bú aö Brúnstööum viö
Suöurlandsbraut i Reykjavlk.
Haföi framan af kýr, en síðar rak
hann stórt svina- og hæsnabú.
Hann haföi mikiö yndi af skepn-
um. Jafnvel löngu eftir aö borgin
var vaxin allt I kringum Brún-
staöi, hélt hann áfram búskapn-
um. Mjólkina seldi hann nágrönn-
unum, sem minnast þess væntan-
lega enn. Gestkvæmt var á
Brúnstööum, svipað og I sveitum
geröist fyrrum.
Foreldrar Ingimundar eign-
uöust 13 börn. Komust 9 tii
fulloröinsára. En Ingmundur
fyrstur þeirra og kveöja þetta
jaröllf, en hann var elstur af
þeim.
Ingimundur kvæntist 10. júni
1933GuörúnuÞorsteinsdóttur, frá
Þorsteinsstööum I Dalasýslu.
Börnfæddust þeim þrjú.Eru þau,
talin I aldursröö:
1. Svanhildur, húsfreyja I
Reykjavik, gift Axel Þóri, mynd-
skera. Eiga þrjú börn.
2. Hilmar, hæstaréttarlögm,
kvæntur Erlu Hatlemark, norskr-
ar ættar, er stundar flugfreyju-
störf. Þau eiga tvö börn.
3. Barn, er dó þriggja daga
gamalt.
Ég votta aöstandendum Ingi-
mundar Gislasonar innilega
samúb vib fráfall hans, er bar svo
bráttogóvænt ab. Hans er gott aö
minnast. A.B.S.
Ný bók eftir
MáHríði Einarsdðttur:
ÚR SÁLARKIRNUNNI
286 bls. Verð kr. 7200—
„Enginn skrifar eins og Málfríður'r.
Rannveig Ágústsdóttir (Dagblaðið)
„Málfríður er einn þeirra höfunda sem raska
fullkomlega venjubundnum hefðarstiga fyrirbæranna".
Árni Bergmann (Þjóðviljinn)
Samastoður í tilverunni
Enn er dálltið til af bók Málfríðar
sem kóm út i fyrra. 302 bls. Verð kr.
5400.
„( mínum augum eru þessar tvær bækur hennar með ánægjulegri tíðindum í bók-
menntaheiminum".
Jóhann Hjálmarsson (Morgunblaðið)
lí
Bókaútgáfan LJÓÐHÚS
Laufásvegi 4, Reykjavík
Pósthólf 629. Sími 17095
VANTAR ÞIG GOÐAN FISKIBÁT?
I>á er
Frábær sjóhœfni og gott vinnupláss
samfara miklu buröarþoli.
Byggður og samþykktur af Norska Veritas.\
Verð mjög hagstœtt.
Stuttur afgreiðslufrestur.
lausnin
Fœst i tveimur stœrðum og
ótal útfœrslum.
Lengd 6,20 og 7,10 metrar
breidd 2,40 og 2,60 metrar.
Hagstœðustu kaupin í dag
BENCO H.F.
BOLHOLTI 4
Reykjavík
Sími (91) 2-19-45