Fréttablaðið - 03.09.2006, Síða 16

Fréttablaðið - 03.09.2006, Síða 16
 3. september 2006 SUNNUDAGUR16 Fátt er eftirsóknarverðara en frægðin í hugum margra og þess virði að leggja hér um bil allt í sölurnar fyrir hana. Frægðin er hins vegar fallvölt og það kostar ekki minni vinnu og hæfileika að halda sér í sviðsljósinu en kom- ast í það. Margir eru kallaðir en fáir útvaldir. Fréttablaðið rýndi í hvernig síðastliðinn áratugur hefur skilið hafrana frá sauðunum í speglasal frægðar- innar. Séð og heyrð Páll Óskar Hjálmtýsson Er stjarna í eðli sínu og tekst því alltaf að halda sínu. Hann vakti fyrst verulega athygli þegar hann lék Dr. Frank-N-Furter í upp- færslu Leikfélags Menntaskólans við Hamrahlíð á söngleiknum Rocky Horror. Vegur hans óx upp frá því og hann hefur stað- ið af sér strauma og stefnur síð- ustu tíu ára enda er hann allt- af hann sjálfur, ein- lægur og opinskár. Hann hefur slegið í gegn sem dragg- drottning, söngvari, plötusnúður og útvarpsmaður. Hann lifði Euro- vision af enda er hann sannkallað kamelljón, breytir oft um stíl og útlit og virðist því aldrei ætla úr tísku. Þá verður framlag hans til réttindabaráttu samkynhneigðra seint ofmetið en hann hefur í gegn- um tíðina gert snarpar atlögur í stríði homma og lesbía við for- dóma í samfélaginu. Hilmir Snær Guðnason Fékk fastráðningu við Þjóðleik- húsið strax eftir útskrift úr Leik- listarskóla Íslands árið 1994 og hefur unnið ófáa leiksigrana á fjölunum. Hann sló í gegn í söng- leiknum Hárinu og hefur ekki fallið af stalli sem einn kynþokka- fyllsti karlmaður landsins síðan þá. Hann hefur, rétt eins og Ingvar E. Sig- urðsson, verið áberandi í kvikmyndum og hefur reynt fyrir sér erlend- is á þeim vett- vangi. Hilmir Snær gerði nú síðast storm- andi lukku í einleiknum Ég er mín eigin kona sem var frum- sýndur árið 2005 og gekk fyrir fullu húsi fram á vorið 2006. Ingvar E. Sigurðsson Hefur verið á stöðugri uppleið frá því að hann var fastráðinn við Þjóðleikhúsið árið 1991. Hann hefur farið með ófá burðarhlut- verkin hjá Þjóð- leikhúsinu, slegið í gegn með Vestur- porti, fyrst í loftfim- leiknum Rómeó og Júlíu og nú síðast í titilhlut- verkinu í Woyzeck sem sýnt hefur verið í Barbican- leikhúsinu í London. Auk afrekanna á leik- sviðinu hefur hann verið einn fremsti kvikmynda- leikari landsins síðasta áratuginn. Þá hefur hann feng- ið að spreyta sig í Hollywood og lék á móti Harrison Ford í kaf- bátamyndinni K-19. Þá var hann sterklega orðaður við hlutverk morðingja- munksins Silasar í The Da Vinci Code og hefur nýlokið við að leika sjálfan Erlend lög- regluforingja í Mýrinni sem byggir á sam- nefndri skáld- sögu Arnaldar Indriðasonar. Baltasar Kormákur Útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands 1990 og hefur verið viðloðandi Þjóðleikhúsið síðan, bæði sem leikari og leikstjóri. Baltasar skaust upp á stjörnu- himininn sem meiri háttar kyntákn eftir leik sinn í kvikmynd- inni Veggfóðri árið 1992 og kom í fram- haldinu við sögu í kvikmyndum. Hann hefur á undanförnum árum látið leikinn mæta afgangi og hefur að mestu snúið sér að kvikmyndaleikstjórn. Kvikmyndirnar 101 Reykjavík, Hafið og A Little Trip to Heaven hafa vakið athygli heima og að heiman. Baltasar hefur nýlokið tökum á Mýrinni, sem miklar vonir eru bundnar við, en öll tvímæli hafa fyrir löngu verið tekin af um að hann er kominn til að vera. Gunnar Hjálmarsson (Dr. Gunni) Hefur um langt árabil verið eitt helsta átorítet í íslenskum rokk- og popp- fræðum. Hann hefur skrifað um tónlist í blöð lengur en yngstu menn muna og eftir hann liggur bókin Eru ekki allir í stuði? - Rokk á Íslandi á síð- ustu öld, sem er yfirgripsmikil saga íslenskrar rokktónlistar eins og nafnið gefur til kynna. Dr. Gunni hefur gert garðinn fræg- an með hljómsveit- unum S.H. Draumur, Bless og Unun en Unun var upp á sitt besta á síðustu árum nýliðinn- ar aldar og spilaði meðal annars á Hróarskeldu árið 1997. Dr. Gunni hefur lengi verið viðloðandi útvarp og heldur enn úti vinsæl- um tónlistarþætti. Hann sló eftirminni- lega í gegn með barnaplötunni Abbababb! fyrir nokkr- um árum og vinnur nú að söngleik byggð- um á henni. Þá er ónefndur tónlistar- spurningaþátturinn Popppunktur sem Gunni sá um með Felix Bergs- syni við miklar vinsældir á Skjá einum þannig að það er óhætt að segja að Doktorinn hafi haldið sjó og vel það síðasta ára- tuginn. Logi Bergmann Eiðsson Hóf feril sinn í ljós- vakamiðl- um fyrir margt löngu sem íþrótta- frétta- maður í afleysingum hjá RÚV, bæði í útvarpi og sjónvarpi. Uppgangur hans innan stofnunarinnar var hraður og hann endaði sem aðstoð- arfréttastjóri á fréttastofu Sjón- varps og var árum saman helsti fréttalesari Sjónvarpsins. Með- fram störfum á fréttastofunni haslaði Logi sér völl sem spyrill í Gettu betur en kvaddi þetta allt frekar sviplega í haust þegar hann söðlaði um og hóf störf á Stöð 2 og NFS. Hann er þó enn á kunnugleg- um slóðum og les fréttir á NFS á sinn sjarmerandi hátt og stýrði í vetur spurningaþættinum Meist- aranum sem þótti takast með ágæt- um. Logi er jafnan ofarlega á blaði á listum yfir kynþokkafyllstu karl- menn landsins og hann og eigin- kona hans, Svanhildur Hólm Vals- dóttir, eru mikið eftirlæti glanstímarita og slúðurblaða. Það virðist því enn langt í að Loga verði ýtt úr sviðsljósinu og það er gott dæmi um úthald hans að um fátt hefur verið meira rætt síðustu vikur en alskeggið sem hann hefur tekið upp á að skarta. Emilíana Torrini Vakti mikla athygli með hljóm- sveitinni Spoon í byrjun tíunda áratugarins og vegur hennar sem söngkonu óx jafnt og þétt. Hún hefur haft aðsetur í London um árabil og sinnir þar sólóferli sínum og það telst ætíð til tíðinda þegar hún kveður sér hljóðs. Einar Bárðarson Einar er réttnefndur umboðs- maður Íslands. Hann seldi ungur föt á Selfossi og samdi helstu smelli hljómsveitarinnar Skítam- órals. Þegar hann kom í bæinn sneri hann sér að markaðsmál- um af mikl- um móð og hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem umsvifa- mikill umboðs- maður og tón- leikahaldari. Flest það sem Einar snertir hefur til- hneigingu til að verða að gulli og nægir að nefna Nylon-ævintýrið en hann virðist harðákveðinn í að gera þessa stúlknasveit, sem er hugarfóstur hans, heims- fræga. Einar hefur einnig reynt að viðhalda vinsæld- um Idol-stjarna og er væg- ast sagt áberandi í íslensku skemmtana- og tónlistarlífi og virðist síður en svo vera á útleið. Það er lítið eftir af Skímó annað en minningin en Einar Bárðar er enn fremstur meðal jafningja. Jón Axel Ólafsson Naut gríðarlegra vinsælda þegar hann stjórnaði morgun- þættinum Tveir með öllu á Bylgj- unni ásamt félaga sínum Gunnlaugi Helgasyni. Jón og Gulli léku á als oddi árum saman og hættu ekki fyrr en sú skoð- un breiddist út að engum þætti þeir lengur fyndnir nema þeir sjálfir. Þeir félagar eru ókrýndir konungar auglýsingaútvarpsins og voru manna duglegastir að gefa hlustendum sínum pitsur, bíómiða og ýmislegt annað lauslegt. Þó Tveir með öllu séu löngu þagnaðir hefur sporgöngufólk þeirra haldið uppteknum hætti og hlustendur geta enn sótt ýmislegt smálegt gullið í greipar útvarpsmanna. Gulli var á sínum tíma áberandi á mannamótum og í glanstímaritum og á það enn til að skjóta upp koll- inum þótt hann hafi yfirgefið fjöl- miðlana og snúið sér að sölu fast- eigna. Valdís Gunnarsdóttir Átti sín gullaldarár á Bylgjunni á tíunda áratugnum þegar hún náði mikilli lýðhylli með því að hefja ást, róm- antík og Celine Dion til skýjanna. Kærleiksboð- skapur Valdísar hitti þjóðarsálina í mark og henni er jafnan eignaður heiðurinn af því að Valentínusardagurinn sé orð- inn áberandi í íslensku almanaki en dagurinn er í daglegu tali nefndur Valdísardagurinn. Ferill Valdísar í útvarpi hefur verið brokkgengur og hún hefur nokkr- um sinnum hætt en jafnan snúið aftur. Hún sér nú um sunnudags- morgunþátt Bylgjunnar en nær mun færri eyrum en hún gerði þegar hún var upp á sitt besta. Þorgrímur Þráinsson Knattspyrnuhetjan sem gerðist rithöfundur, leysti unglingabóka- höfundana Andrés Indriðason og Eðvarð Ingólfsson af hólmi og ól íslenska æsku á tíunda áratugnum upp með bókum á borð við Bak við bláu augun og Tár, bros og takkaskór. Sala á nýrri verk- um hans hefur verið dræmari en hún var þegar best lét og tilraunir hans til að ná til fullorðinna les- Sjaldséð og fáheyrðEf ég ætti óskastein... „KANARÍEYJAR EÐA LÍKHÚSIÐ?“ H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 6 6 5 7 Miðasala 568 8000 www.borgarleikhusid.is VILTU FINNA MILLJÓN EFTIR RAY COONEY

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.