Fréttablaðið - 09.09.2006, Síða 52
■■■■ { heimilið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■12
Steinsmiðjan Rein sérhæfir sig
meðal annars í sölu og framleiðslu
á legsteinum, borðplötum, utan- og
innanhússklæðningum, hellum og
gólfflísum.
„Ef hægt er að gera það úr steini,
þá getum við það,“ segir Stefán Örn
Magnússon hjá Rein. „Við erum
helst að vinna með til dæmis granít
í borðplötum og kvars, sem er frek-
ar nýtt efni á markaðnum. Það er
sallað niður og steypt í einingar með
lími til að ná tærum litum sem eru
ekki til í náttúrunni. Það er mjög að
ryðja sér til rúms núna, ekki síst í
stíliseruðum húsum.
Íslensku efnin eru líka vin-
sæl, grágrýti og stuðlaberg, sem er
rosalega vinsælt núna í legsteina
og gólfflísar, og líparít sem er til
dæmis rauði liturinn á nýja hlut-
anum á flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Nýi alþingisskálinn er klæddur með
grágrýti frá okkur og svo erum við
líka með gabbró, eins og Tollgæslu-
húsið er klætt með að miklu leyti,“
segir Stefán Örn, sem er greinilega
á heimavelli þegar steinn er annars
vegar.
Allt sem er gert í Steinsmiðj-
unni Rein er sérsmíði. „Við komum
til dæmis heim til fólks og tökum
nákvæmt skapalón af eldhús-
inu, smíðum það svo hjá okkur og
komum með það aftur og setjum
upp. Einu takmörkin eru þyngdin
í mjög stórum stykkjum og svo að
borðplötur eru yfirleitt ekki fram-
leiddar meira en þriggja metra lang-
ar, en það er hægt að nota steinlím
og ýmis ráð til að samskeyti verði
nánast ósýnileg.“
Helstu kostir við að nota stein-
inn í eldhús segir Stefán Örn vera
að steinninn sé hitaþolinn og svo
hversu glæsilegur hann er. „Það
er hægt að taka hvað sem er út úr
ofninum og skella því beint á borð-
ið. Þess vegna er líka svo sniðugt
að nota stein í eldhúsborð. Svo er
hægt að fella vaska undir plötuna
og þá er eldhúsið orðið frábært í
umgengni. Þá er hægt að strjúka af
og dragadregur bara beint í vaskinn
í stað þess að fara yfir kant. Svo
getur hundrað þúsund króna inn-
rétting litið út fyrir að vera miklu
vandaðri með steinplötu.“
Stefán Örn segir steininn ekki
mjög dýran ef hann er borinn
saman við önnur vönduð efni. „Ef
við berum stein til dæmis saman við
flottar límtrésplötur er verðið mjög
samkeppnishæft. Ódýr útfærsla
af graníti kostar um 17.000 krón-
ur lengdarmetrann og þá er komið
varanlegt efni á góðu verði,“ segir
Stefán Örn að lokum. - elí
Hitaþolið og
glæsilegt efni
Steinn hefur verið að ryðja sér mikið til rúms í innrétt-
ingum að undanförnu.
Stefán segir steininn á samkeppnishæfu verði miðað við önnur vönduð efni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Rein er með fimmtán afbrigði af stein á lager og hægt er að sérpanta um fimmtíu önnur.Í sýningasalnum er hægt að skoða sýnishorn af því sem hægt er að gera úr steini.
Aðalflutningar
Öryggi alla leið
OPIÐ VIRKA DAGA TIL KL. 17.00 Föst. til kl. 16.00
Skútuvogi 8 S. 581 3030 Fax: 471 2564 adaleg@simnet.is
Nú geta enn fleiri nýtt sér frábæra
þjónustu Aðalflutninga