Fréttablaðið - 21.09.2006, Síða 52
■■■■ { miðborgin } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■10
Sigrún segir að það sé góð aug-
lýsing að vera með fyrirtæki við
Laugaveg. ,,Það eru svo margir
sem keyra niður Laugaveginn til
að skoða í glugga þannig að margir
taka eftir stofunni og það er því góð
auglýsing,“ segir Sigrún.
Í upphafi voru það þó kröfur
alþjóðlegu hárgreiðslukeðjunnar
Toni & Guy sem beindu sjónum
þeirra Sigrúnar og Eddu að Lauga-
veginum. ,,Þeir gera ákveðnar kröf-
ur úti um staðsetninguna. Stofan
varð að vera miðsvæðis og þeir
gera kröfur um að bílastæði séu
nálægt. Þá stoppar strætó rétt hjá
sem einnig kom inn í val á stað-
setningu. Þannig að við fundum
þetta húsnæði við Laugaveginn sem
er mjög gott. Það vita allir hvar við
erum því þetta er ein af fjölförnustu
götum í Reykjavík,“ segir Sigrún.
Hún segir að sökum þess hversu
margir eigi leið hjá sé algengt að
fólk kíki við á stofunni á leið sinni
framhjá ýmist til að kaupa hárvörur
eða panta tíma í hárgreiðslu.
Sigrún segir að hugmyndir hár-
greiðslukeðjunnar um staðsetningu
hafi átt samleið með hennar eigin
skoðunum þar sem henni finnst
gott að vinna í miðbænum. Þá
bendir hún á að starfsfólk Toni &
Guy sem hafi áður unnið í verslun-
armiðstöðvum segi starfsumhverfið
mun betra á Laugarvegi. ,,Það er
svolítið þrúgandi að vinna í versl-
unarmiðstöð. Þar er til dæmis meiri
kliður auk þess sem andrúmsloftið
er betra í bænum.“ segir Sigrún.
Eini gallinn við miðbæinn er að
sögn Sigrúnar sá að fólk fái ekki
auðveldlega frí bílastæði. ,,Mér
finnst það mesti gallinn en við
erum þó heppin því verið er að
byggja bílahús rétt við hliðina á
okkur. Þá erum við líka með Lands-
bankastæðin nálægt og stór bíla-
stæðaplön í grenndinni svo það er
kostur. Hins vegar lenda kúnnarnir
oft í vandræðum ef það er fullt í
þau stæði,“ segir Sigrún.
Hún er ánægð með miðborgar-
samtökin þar sem fyrirtækin í mið-
bænum eru upplýst um allt sem er
að gerast, til dæmis langa laugar-
daga og fá þannig góða kynningu
að kostnaðarlausu.
Sigrún segir að fólk sækist í
auknum mæli eftir vinnu á stof-
unni því vinsælt sé að vinna í mið-
bænum. Hún telur að staðsetning
stofunnar sé jákvæð á flestan hátt
og eigi án efa þátt í að efla starf-
sandann á vinnustaðnum því að
stutt sé að rölta á veitingastaði í
miðbænum ef starfsfólkið vill gera
sér glaðan dag eftir langan vinnu-
dag. -shs
Andrúmsloftið betra í bænum
Laugavegurinn sjálfur er besta auglýsingin fyrir fyrirtækin við götuna að sögn Sig-
rúnar Davíðsdóttur, sem ásamt Eddu Sif Guðbrandsdóttur rekur hárgreiðslustofuna
Toni & Guy við Laugaveg.
Sigrún Davíðsdóttir og Edda Sif Guðbrandsdóttir reka hárgreiðslustofuna Toni & Guy við
Laugaveg. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Á síðustu árum hafa borgaryfirvöld
unnið hörðum höndum að því að
leysa bílastæðavandann sem steðj-
að hefur að miðborginni. Í dag eru,
til viðbótar við rúmlega tvö þúsund
bílastæði, sjö bílahús í miðborginni
sem eru tilvalinn kostur fyrir þá
sem ætla að stoppa stundarkorn í
hjarta borgarinnar.
Bílahúsin eru opin frá klukkan
níu á morgnana til klukkan fimm
síðdegis og eru sáraeinföld í notk-
un. Allt sem þarf að gera er að
keyra inn í þau, leggja í stæði og
borga svo á leiðinni út þegar bíll-
inn er sóttur aftur. Bílahúsin eru
því að mörgu leyti vænlegri kostur
en gjaldstæði. Aðeins er greitt fyrir
þann tíma sem notaður er, engin
hætta er á sekt vegna þess að tím-
inn á mælinum er úti og síðast en
ekki síst veita þau vörn fyrir veðri
og vindum.
Í bílahúsunum eru samtals yfir
1.200 bílastæði og gjaldið er 80
krónur á klukkustund fyrir fyrstu
klukkustundina (lágmark 1 klukku-
stund) og síðan 10 krónur fyrir
hverjar byrjaðar 12 mínútur.
Einnig er hægt að kaupa afslátt-
arkort og kosta þau mismikið eftir
bílahúsum.
Aðeins greitt fyrir
notaðan tíma
Bílastæðum og bílahúsum hefur fjölgað
mikið í miðborginni undanfarin ár.
BÍLASTÆÐAHÚS Í
MIÐBORGINNI:
Stjörnuport Laugavegi (190)
Vitatorg Á horni Vitastígs og Skúla-
götu (230)
Traðarkot Hverfisgötu (270)
Bergstaðir Bergstaðastræti (150)
Kolaport v/Kalkofnsveg (170)
Vesturgata 7 Vesturgötu (107)
Ráðhús Tjarnargötu (130)
Nánari upplýsingar: www.rvk.is/bilast
HREINSUN OG
ENDURNÝJUN
FYRSTA FLOKKS GÆÐI
OG FRÁBÆR VERÐ