Fréttablaðið - 27.09.2006, Blaðsíða 88

Fréttablaðið - 27.09.2006, Blaðsíða 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 ������������������������������ ������������������������������ �������������� ������� ���������� ���� ������������ �������������� � ���������� ���������������������� Hvað ert þú að gera hér? Ég bað um áfallahjálp,“ Sagði Silla frænka. Hún hafði lagst í rúmið þegar hún heyrði síðustu fréttir um að nú yrði hafist handa við að hleypa vatni í Hálslón. Svo þessi glaðlynda frænka mín hafði lagst í rúmið og sent þau skilaboð til aðstandenda að hún þyrfti áfalla- hjálp. „ÉG kom með ýmislegt handa þér til að létta þér lundina,“ sagði ég eins glaðlega og ég gat, því það var satt að segja dapurlegt að sjá þessa kraftmiklu konu í svo algjörri upp- gjöf. Svo setti ég disk á fóninn. Og áður en við var litið hljómaði rödd Ómars syngjandi: Ást, ást, ást snemma morguns. „HANN er minn maður,“ sagði Silla. „Það hafa tvö mikilmenni fæðst á síðustu öld, Nelson Mand- ela og Ómar Ragnarsson.“ Mér fannst svolítill glampi hafa fæðst í augum gömlu konunnar við að heyra í sínum manni. Svo ég náði í vísnabókina hennar sem hún kall- ar hagyrðingadjásn og byrjaði að lesa: Í álverum æska vor svitnar og eflist við sérhverja dáð. Meðan lautinant Valgerður vitnar um veginn að Drottins náð. „FINNST þér þetta uppörvandi?“ spurði Silla. „Ja, þú hefur að minnsta kosti skrifað þessa ágætu vísu hér á fremstu síðu.“ „Ég veit það, en það var þegar ég ennþá átti vonina,“ sagði frænka mín og sneri sér upp í horn og sagði síðan við vegginn: „VEISTU hvað, hún Sigríður í Brattholti var tvisvar búin að tapa málinu í undirrétti þegar hún bjargaði Gullfossi. En hún gerði líka lögfræðingnum sem tók að sér málið dálítið erfitt fyrir. Því hún bannaði honum að segja frá því að Tómas faðir hennar hefði verið fullur þegar hann skrifaði undir sölusamninginn á fossinum, hann hefði aldrei selt sinn „besta vin“ edrú. Hún bað lögfræðinginn að reyna að vinna málið með því að segja frá þeirri staðreynd að það byggi huldukona í fossinum og að hún ætti Gullfoss. Svo enginn nema hún hefði rétt til að selja hann.“ NÚ settist Silla upp með vonar- glampa í augum og sagðist ætla að nota þetta gegn Landsvirkjun. Það væru meira að segja sjö fossar þar uppfrá sem ætti að drekkja. Svo sjö huldumeyjar yrði að semja við áður en farið yrði að hleypa vatni í Hálslón. Vonin blíð RAV4 - alveg nýr heimur Nýr RAV4 er kominn til landsins. Hann er ekki aðeins í breyttri útgáfu. Hann er alveg nýr heimur. Bíll sem boðar nýja tíma, nýjar áherslur, nýjar leiðir. Hann er ríkulega búinn staðalbúnaði og fæst með „Integrated Active Drive System“ sem eykur til muna öryggi og akstursánægju. Við hikum ekki við að fullyrða að þú færð meira út úr lífinu á nýjum RAV4, hvort sem er innanbæjar eða úti í náttúrunni. Straumlínulöguð yfirbygging og fjöldi tækninýjunga gera RAV4 fágaðri, fjörugri og þróaðri en nokkru sinni fyrr. Fjöldi útfærslna er í ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 34 35 5 09 /2 00 6 boði, þar á meðal hin íburðarmikla RAV4 VX sem teflir saman framúr- skarandi snerpu og afburðaþægindum í akstri svo að hefðbundin skilgreining á smájeppa á ekki lengur við. Og tómstundir með fjöl- skyldunni fá líka allt aðra merkingu. Komdu og reynsluaktu nýjum RAV4 – alveg nýr heimur. Verð frá 2.980.000. kr. fá allt aðra merkingu Tómstundir Toyota Kópavogi Nýbýlavegi 4 Kópavogur Sími: 570-5070 Toyota Akureyri Baldursnesi 1 Akureyri Sími: 460-4300 Toyota Reykjanesbæ Njarðarbraut 19 Reykjanesbær Sími: 420-6600 Toyota Selfossi Fossnesi 14 Selfoss Sími: 480-8000 Toyota Austurlandi Miðási 2 Egilsstaðir Sími: 470-5070 www.toyota.is AUGL†SINGASÍMI 550 5000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.