Fréttablaðið - 11.10.2006, Síða 49
H A U S
MARKAÐURINN
þessa árs og verðbólgan stendur í 7,6 prósent-
um. Hagkerfið er þannig langt frá því að vera
í jafnvægi og því fullsnemmt að fagna sigri í
baráttunni við þensluna,“ segir hann og telur að
við ríkjandi aðstæður sé nauðsynlegt að bæði
ríkið og Seðlabankinn beiti aðhaldi. „Það gildir
bæði í orði og á borði. Það eitt að boða á næsta
ári lækkun skatta og auknar fjárfestingar og
þar með minna aðhald í ríkisfjármálum er til
þess fallið að auka á spennuna í hagkerfinu í
ár sem og á næsta ári. Því er ekki heppilegt að
boða slíkar aðgerðir við núverandi aðstæður
þó svo að hagspár segi að talsvert muni draga
úr spennunni á næsta ári.“
AÐGERÐIRNAR AUKA NEYSLU
Ingólfur segir eina hættuna við að fara út í
ótímabærar aðgerðir til lækkunar skatta og
auknar framkvæmda hins opinbera vera að
með því sé grafið undan því trausti sem stöð-
ugleikinn hvíli á að stórum hluta. „Mikið hefur
verið lagt í það á undanförnum mánuðum að
sýna, ekki síst erlendum aðilum, fram á að
hér á landi sé hagstjórnin skynsöm og laus
við taumleysi. Nokkuð hefur áunnist í því og
ber gengisþróun undanfarinna vikna ásamt
viðsnúningi á hlutabréfamarkaði og lánskjör-
um bankanna erlendis meðal annars merki
um það. Með því að gefa lausan tauminn nú
er verið að bjóða heim hættunni á að fórna að
minnsta kosti hluta þess ávinnings sem unnist
hefur. Meðal annars er þarna ógnað stöðu
krónunnar.“
Boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar segir
Ingólfur til þess fallnar að auka kaupmátt
almennings í bráð. „Þær auka því neyslu og
koma þau áhrif fram bæði í ár og á næsta
ári þó svo að bæði skattalækkanirnar og þær
aðgerðir í framkvæmdum sem um hefur verið
rætt komi ekki til fyrr en á næsta ári. Þetta
mun gera það að verkum að hægar og minna
mun vinda ofan af þeirri spennu sem nú er í
hagkerfinu,“ segir hann og telur að undirliggj-
andi stærðir sem lýsi ójafnvæginu í hagkerf-
inu, svo sem viðskiptahalli og verðbólga, komi
til með að vara lengur en ella.
Þó að hratt dragi úr innlendri eftirspurn
á næstunni samhliða því að úr stóriðjufram-
kvæmdum dregur telur Ingólfur þann sam-
drátt í innlendri eftirspurn ekki verða nægan
til að vinda alfarið ofan af þenslunni sem sé í
hagkerfinu. „Aðhalds í fjármálum ríkissjóðs
er því þörf á næsta ári til að ná hagkerfinu í
jafnvægi og mynda grundvöll fyrir hjöðnun
verðbólgunnar, viðunandi viðskiptahalla og
lækkun stýrivaxta Seðlabankans.“ Hann segir
áhrif af mögulegum frekari stóriðjufram-
kvæmdum svo alfarið fara eftir tímasetn-
ingum þeirra og umfangi. „Ljóst er að ekki
er rými fyrir frekari framkvæmdir í bráð.
Hagkerfið þarf einfaldlega tíma til að ná sér
eftir hið mikla framkvæmdaskeið sem verð
hefur undanfarið. Frekari framkvæmdir verð-
ur síðan að skoða í ljósi reynslunnar sem við
nú höfum. Miklar framkvæmdir á skömmum
tíma eru ekki heppilegar fyrir svona lítið hag-
kerfi. Þær valda mikilli röskun í framleiðslu-
skilyrðum, á eignaverði og gera mikla kröfu
til hagstjórnarinnar.“ Ingólfur segir betra að
dreifa framkvæmdunum yfir lengri tíma og
færast minna í fang.
HEILDARMYNDINA VANTAR STUNDUM
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður grein-
ingardeildar Landsbanka Íslands, segir ljóst
að ákveðin aðlögun þurfi að fá að eiga sér stað
í hagkerfinu, en væntingar um rýmri kjör og
þensluhvetjandi aðgerðir hægi á þeirri aðlög-
un. „Þarna skiptir máli hvort við erum að fara
inn í stóriðjuframkvæmdir eða ekki. Ef við
erum líka að fara inn í þær þá gæti þetta verið
mjög óheppilegt, en ef ekki þá er skaðinn ekki
sá sami. Stundum er eins og heildarmyndina
vanti, en hún er gríðarlega mikilvæg inni í
svona litlu hagkerfi þar sem allar aðgerðir
vega svo þungt.“
Edda Rós segir Landsbankann hafa metið
það svo að líklegra væri en ekki að ráðist verði
í stóriðjuframkvæmdir strax á þarnæsta ári.
„Við lögðum í töluverða vinnu við þetta mat
á aðstæðum, töluðum við stjórnmálamenn úr
öllum flokkum, við ál- og orkufyrirtækin. Við
reyndum að átta okkur á hvernig leyfismál-
um væri háttað og þar fram eftir götunum.
Niðurstaða okkar var því að eðlilegra væri
að gera ráð fyrir þessu en ekki,“ segir hún
en áréttar um leið að í spá greiningardeildar
bankans sé þó gert ráð fyrir mun minni fram-
kvæmdum en til dæmis Kaupþing hafi spáð.
Þannig segir Edda Rós ljóst að fari þær
framkvæmdir í gang sem greiningardeildin
geri ráð fyrir sé ekki skynsamlegt að þenja
kerfið mikið meira. „En auðvitað er þarna
óvissa á öllum stöðum og svo sem ekki hlut-
verk bankanna að segja mönnum til heldur
fremur að átta sig á afleiðingum ákvarðananna
fyrir fjárfesta. Við erum ekki í hagstjórn.“
Hún segir svo virðast að sú ályktun bankans,
að hvorki ríkisstjórn
né sveitarfélögin verði
virk í að tempra þenslu
í hagkerfinu fari þjóð-
in inn í annað þenslu-
skeið, ætli að ganga
eftir og því hvíli það
líklega aftur á herðum
Seðlabankans og pen-
ingastefnunnar að vera
á bremsunni.
STYRKING KRÓNU
SKEKKIR JÓLIN
„Það er meðal annars út af þessu sem við
í spá okkar gerum ráð fyrir að í lok næstu
hagsveiflu fari þetta ekkert óskaplega vel.
Við gerum bæði ráð fyrir verðbólguskoti og
falli krónunnar.“ Þannig segir Edda Rós að
þróun mála sé í takt við væntingar bankans
sem geri ekki ráð fyrir því, hver sem væri við
völd, að pólitískur vilji verði til aðhalds. „Við
viljum fulla atvinnu,
lága verðbólgu, litla
vexti, stöðugt gengi og
mikinn vöxt. Við viljum
vera í svakalegum fjár-
festingum þrátt fyrir
að hér sé full atvinna
og viljum að stjórnvöld
greiði fyrir slíkum fjár-
festingum. Meðal ann-
ars viljum við tryggja
vinnu um landið þó að
full atvinna sé á lands-
vísu. Svona eru hlutirn-
ir bara og eitthvað verður undan að láta.“
Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningar-
deildar Kaupþings, segir sömuleiðis að of
snemmt sé að hrósa sigri í slagnum við
þensluna. Hann segir þá aðlögun í hagkerfinu
sem komið hafi fram á þessu ári að stórum
hluta skýrast af viðsnúningi í væntingum við
gengisfall krónunnar og
umræðu sem farið hafi
í gang um efnahags-
lífið. „Áhrifin voru þá
mjög jákvæð á einka-
neysluna. En við vilj-
um sjá aðlögun og við
viljum sjá einkaneysl-
una ganga niður,“ segir
hann, en bendir um leið
á að burtséð frá öðru sé
ljóst að gríðarleg þörf
sé á fjárfestingum í
umferðarmannvirkjum
í kring um Reykjavík. „Þær framkvæmdir eru
ábyggilega gríðarlega arðsamar. Svo er líka
ljóst að á einhverjum tímapunkti þurfum við
líka á þessum framkvæmdum að halda til að
halda stöðugleikanum. En síðan, ef stóriðjan
kæmi til skjalanna, þá myndi það náttúrulega
þýða að ríkið þyrfti að fresta framkvæmdum
enn frekar.“ Ásgeir segir að í síðustu hagspá
sé ekki gert ráð fyrir stóriðju strax heldur
að ríkið verði virkt í framkvæmdum á árinu
2008.
Ásgeir segir vandamálin hins vegar felast
í því að hagkerfið sé í raun samsafn af vænt-
ingum þar sem einkaneysla vegi þyngst og sé
langstærsti hlutinn í landsframleiðslunni. „Það
er aldrei hægt að sjá nákvæmlega fyrir hvern-
ig hún muni þróast. Það er nú samt miðað við
stöðuna nú frekar líklegt að þrengst hafi um
lántökumöguleika með hærri vöxtum. Þannig
er varla hægt fyrir fólk að halda mikið lengur
áfram í skuldsettri neyslu, en maður veit það
þó aldrei nákvæmlega. Einkaneysla gæti eins
dregist hraðar saman en við gerum ráð fyrir.“
Hann segir þó ákveðnar blikur á lofti í því að
gengi krónunnar hafi styrkst nokkuð að undan-
förnu. „Það er ekki sérstaklega heppilegt.
Helst hefðum við viljað hafa gengisvísitöluna
þar sem hún var, í kring um 125, hvorki veik-
ari né sterkari. Ef gengið styrkist þá þýðir
það að innflutningur verður ódýrari og jólin
gætu orðið meiri neyslupakki en ráð er gert
fyrir. Ég held því að veturinn verði tiltölulega
viðburðaríkur,“ segir Ásgeir og ekki ólíklegt
að þar verði hann sannspár.
11MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2006
Ú T T E K T
FRAMKVÆMDIR Á MÓTUM SUÐURLANDS- OG VESTURLANDSVEGAR
Forsætisráðherra boðaði nýverið í stefnuræðu sinni á Alþingi að opnað yrði á ný fyrir
útboð á vegum hins opinbera og meðal annars yrði ráðist í langþráðar vegabætur við
höfuðborgina. Sérfræðingar í efnahagsmálum vara við að ríkið fari of skarpt af stað í
útgjöldum. Markaðurinn/GVA
Varasamt er að fagna of snemma
INGÓLFUR H.
BENDER Ingólfur,
sem er yfir greiningu
Glitnis, telur að á
næsta ári sé þörf á
aðhaldi í fjármálum
ríkisins til að ná
hagkerfinu í jafnvægi
og mynda grundvöll
fyrir hjöðnun verð-
bólgunnar.
Markaðurinn/GVA
EDDA RÓS
KARLSDÓTTIR „Við
viljum fulla atvinnu,
lága verðbólgu, litla
vexti, stöðugt gengi
og mikinn vöxt,“ segir
Edda Rós Karlsdóttir,
forstöðumaður
greiningardeildar
Landsbanka Íslands
og bendir á að
stefnan samrýmist
ekki endilega kröf-
um um stöðugleika.
Markaðurinn/GVA
ÁSGEIR JÓNSSON
Ásgeir, forstöðumaður
greiningardeildar
Kaupþings, segir
aðlögun í hagkerfinu
sem komið hafi fram
á þessu ári að stórum
hluta skýrast af við-
snúningi í væntingum
við fall krónunnar
og erfiðrar umræðu
um efnahagslífið.
Markaðurinn/GVA