Tíminn - 03.01.1979, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 3. janúar 1979
9
atvinnullfs, sem fært er um aö
sjá vaxandi þjóö sómasamlega
farboröa, er þvi ööru fremur
undir því kominn, aö fjármála-
stjórn fari vel ilr hendi. En einu
skyldu menn aldrei gleyma.
Þegar nýir atvinnuhættir eru
upp teknir, þarf aö hafa marg-
víslegt gildismat i huga. baö má
ekki einblina á hagvaxtarsjón-
armiöiö eitt.
Ofmetnaöur
eða meðalhóf
1 fornum kirkjulegum fræöum
átti sér staö tölusetning and-
legra og siöferðilegra fyrir-
bæra. Þá var kennt aö sjö væru
höfuðsyndir. bó fylgdi þaö meö,
aö viösjárveröust þeirra og
undirrót allra hinna lastanna
væri ofmetnaöur.
Hvort sem menn vilja raöa
áviröingum i flokka eöa ekki, er
þaö ljóst, aö ofsafengin sjálfs-
upphafning er hvimleiöur og
skaölegur þáttur I mannlegu
samfélagi. A ofmetnaöi strand-
ar einatt, ef svo tekst til, aö þörf
áform og góöur ásetningur
renna út I sandinn, af þvi aö
þeir, sem um hljóta aö fjalla,
veröa ekki á eitt sáttir.
Einstaklingar og þjóöfélags-
hópar þurfa aö kunna sér hóf, ef
vel á aö fara, þekkja sin tak-
mörk og viöurkenna rétt og
þarfir annarra. Einhugur og
samstilltur þjóöarvilji er þaö,
sem mest á rföur. Viö höfum
ekki efni á nýrri sturlungaöld
meö öllum hennar óþurftar-
mönnum og óhæfuverkum. Viö
þurfum ekki öfgar og oröagjálf-
ur oflátunga, heldur málamiöl-
un og meöalhóf.
Góð leiðarstjarna
Ég var nýlega aö lesa frábæra
gamlaárspredikun eftir Harald
prófessor Nielsson, þann mikla
andlega leiötoga. 1 texta þeim,
sem hann valdi sér aö umræöu
efni, standa meöal annars þessi
orö: ,,Ég þekki verkin þin”.
Um þessi orð textans segir
Haraldur Nlelsson m.a.: ,,Sið-
asti dagur ársins minnir oss á,
aö eitt sinn kemur siöasti dagur
vorrar jarönesku ævi. Vera má,
aö eitthvert af oss nái eigi aö lifa
næsta gamlaárskvöld. Þegar
dyr hinnar jarönesku ævi lykj-
ast aftur I dauöanum, heyrum
vér meö einhverjum hætti þessa
raust: ,,Ég þekki verkin þin”.
Þá veröum vér aö taka afleiö-
ingum breytni vorrar”.
Þetta voru orö Haraldar
Nielssonar. Ég held, aö þaö væri
heillavænlegt, ef viö gætum til-
einkaö okkur þaö llfsviöhorf, aö
til væri þó alltaf einn, sem
þekkti öll okkar verk, stór og
smá, og hvort sem unnin eru á
opinberum vettvangi eöa i ein-
rúmi — hvað sem ööru liöi, þá
væri þó alltaf einn, sem þekkti
öll okkar verk, sæi þau I réttu
ljósi og gæti þvi metið þau aö
veröleikum á réttum forsend-
um. Ég held, aö slikt lifsviöhorf
hlyti aö hafa holl áhrif á breytni
okkar. Slik vitund hlyti aö veröa
hvatning til umhugsunar áöur
en verk er unniö. Slik trú hlyti
aö veröa til þess, aö menn vönd-
uöu betur til verka sinna en ella.
En i þessu fyrirheiti felst
einnig viss áfrýjunarréttur til
æðra dóms.
Dómar manna um verk ann-
arra, hvort heldur er samtlöar-
manna eöa forvera þeira, eru
stundum ósanngjarnir eöa jafn-
vel rangir. Þeir dómar eru oft
byggöir á misskilningi eöa van-
þekkingu, vilsýni eða hlut-
drægni, svo ekki séu lakari
hvatir nefndar. Þeir sem dæma
þekkja ekki alltaf verkin i raun
og veru. Þá er gott til þess aö
hugsa, aö þaö er alltaf a.m.k.
einn, sem veit betur. Aö þaö er
þó alltaf einn allsherjar sjáandi,
sem þekkir verkin og getur
kveöið upp um þau réttan dóm.
Hugsum til þess.þú og ég.um
þessi áramót, aö til er sá, sem
þekkir verkin þinog min. Þaö er
góö leiöarstjarna á komandi ári.
Ég læt svo þessu spjalli lokiö
meö þvi aö bera fram óskir um
farsæld og friö, bæöi á okkar
landi og um heimsbyggð alla.
Ég þakka landsmönnum fyrir
liöiö ár og árna Islendingum öll-
um farsældar og hagsældar á
komandi ári.
RARIK
Kröflu
yfirtekur
Kás — Um áramótin tóku Raf-
magnsveitur rikisins formlega
viö öllum eignum og rekstri
Kröfluvirkjunar, svoog yfirstjórn
frekari framkvæmda sem
ákveönar kunna að veröa.
Eins og kunnugt er ákvaö rikis-
stjórnin þann 30. nóvember sl. aö
Rafmagnsveitum rikisins skyldi
falið aö reka og hafa umsjón meö
Kröfluvirkjun fyrst um sinn, enda
stæöi rikiö sem eignaraöili undir
fjármagnskostnaöi af stofnkostn-
aði og áframhaldandi fram-
kvæmdum, svo og hugsanlegum
halla af rekstri virkjunarinnar
eins og veriö hefur.
I framhaldi af þessari ákvöröun
skipaöi iönaöarráöherra,
Hjörleifur Guttormsson, nefnd til
þess aö ganga frá yfirtökunni.
Nefndina skipuöu: Páll Flyg-
enring, ráöuneytisstjóri, Jón G.
Sólnes, formaöur Kröflunefndar,
Jakob Björnsson, orkumálastjóri
og Kristján Jónsson, rafmangs-
veitustjóri rikisins.
Að tillögu nefndarinnar hefur
iönaöarráöherra ákveðiö, aö frá
og meö 1. janúar 1979, þar til
ööruvisi veröi ákveöiö, taki Raf-
magnsveitur rikisins viö öllum
eignum og rekstri Kröfluvirkjun-
ar, svo og yfirstjórn frekari fram-
kvæmda sem ákveönar kunna aö
veröa.
Viö þessa yfirtöku Rafmagns-
veitna rikisins á Kröfluvirkjun
fellur umboö Kröflunefndar
niöur, svo og fyrirmæli iönaöar-
ráöuneytisins til Orkustofnunar
um þátt hennar i framkvæmdum
viö borholur og gufuveitu.
Nú er unnið að þvi að búa
Kröfluvirkjun undir rekstur, m.a.
meö tengingu á nýrri borholu.
Staðan veröur þó endurmetin og
ákvörðun um rekstur virkjunar-
innar tekin meö hliösjón af
fyrirliggjandi afli, væntanlega
fyrir lok næsta mánaöar.
Likan þjónustumiöstöövarinnar viö Gullfoss. Ahersla er iögö á, aö form og byggingarefni falli eölilega
aö umhverfi sinu.
6RÆNT LJÓS
á ferðamannamiðstöð við Gullfoss
FI — Alþingi hef ur nú gefið grænt Ijós á þjónustumiðstöð
við Gullfoss og er þá eitt helsta baráttumál Ferðamála-
ráðs komið f heila höfn. Gullfoss er með fjölsóttustu
ferðamannastöðum landsins — þangað koma milli 60 og
100 þúsund manns árlega en ástandið við fossinn hefur
verið þjóðinni til vansæmdar.
Nýja feröamannamiðstööin,
sem reist veröur viö Gullfoss,
hefur ekki veriö hönnuö endan-
lega, en Hrafnkell Thorlacius
arkitekt hefur unniö aö úrvinnslu
hugmynda og tæknilegum undir-
búningi.
Geröar hafa verið mælingar á
landinu i umhverfi fossins, þar
sem helst kemur til greina aö
reisa mannvirki, gera vegi og
stiga.
I þeim umræöum, sem oröiö
hafa um staðarval hefur Feröa-
málaráö aöhyllst aö láta reisa
húsiö nærri efribrúninni i grennd
viö núverandi Kjalveg. Sá staöur
hefur ýmsa kosti til mannvirkja-
geröar, en er nokkuö langt frá
fossinum, þyrfti þvi aö gera góö-
an gangstig og tröppur út frá hon-
um að fossinum.
Umhverfisnefnd Feröa-
málaráös hefur reynt aö gera sér
grein fyrir, hvaö hýsa þurfi hið
minnsta til þess aö móttaka öll
geti verið sómasamleg. 1 tillögum
nefndarinnar er gert ráö fyrir 250
fermetra húsi með snyrtiaðstööu,
ibúð gæslumanns lands og
mannvirkja og afdrepi fyrir gesti,
þar sem til sýnis væri einhver
fróöleikur, t.d. um myndun
Gullfoss og Hvitárgljúfurs. Litil
minjagripasala veröi tengd af-
drepi.
Viö hönnun hússins er fyrst og
fremst lögö áhersla á aö form og
byggingarefni falli eölilega aö
umhverfi sinu og aö byggingar á
þessum staö veröi sem minnst
áberandi eða framandi. Þá er og
gert ráö fyrir aö unnt gæti veriö
aö stækka skálann, ef þess gerist
þörf.
Feröamálaráö kom þvi til*
leiöar sl. sumar aö gamli skálinn
viö Gullfoss var rifinn. Þess I staö
voru fengin aö láni til bráöa-
birgöa færanleg snyrtihús hjá
Landsvirkjun en umsaminn láns-
timi rennur út næsta haust.
Kostnaöaráætlun viö nýja skál-
ann frá april 1978 er upp á rúmar
60 milljónir.
Hugmynd aö staöarvaii fyrir
skála viö Gullfoss. Hrafnkell
Thorlacius arkitekt teiknaöi eftir
loftmynd.