Tíminn - 12.01.1979, Page 6
6
mmm
Föstudagur 12. janúar 1979
Útgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þóararinsson og Jón Sigurósson. Auglýsinga-
stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og auglýsingar Siöumúla 15. Simi
86300. — Kvöldsimar blabamanna: 86562, 86495. Eftir kl.
20.00: 86387. Verb i iausasölu kr. 125.00. Áskriftargjald kr.
2.500.00 á mánuöi. ' Blaöaprent
Tundrið
Nýliðið ár liktist öðrum umliðnum árum, hvað
sem öðru liður, að þvi leyti að á árinu óx eymd og
kvöl hinna fátæku þjóða jarðarinnar, en hagur
hinna efnuðu þjóða hélt áfram að glæða st, enda þótt
margvislegur svo nefndur efnahagsvandi steðjaði
þó að þeim þjóðum á árinu.
Þegar þetta tvennt er borið saman fer ekki hjá þvi
að öll efnahagsvandamál rika heimsins verði sem
hjóm eitt og hégómi við hlið hörmunganna, sveltis-
ins og þeirra' pisla annarra sem máttarvöld þessa
heims hafa lagt á almúga fátæku landanna.
Og þetta er ekki aðeins hörmulegt og hræðilegt
umhugsunarefni fyrir þásem ekki virðast þurfa að
ugga um sinn hag.
í þessu ástandi, og þeirri öfugþróun sem orðið
hefur, er fólgið tundur sem aðeins þarf neista til að
verða að þvi allsher jarbáli sem ekki verður séð yfir.
Og i ljósi þerra viðhorfa er enginn jarðarbúi, hversu
fjáður sem hann kann að vera, óhultur, heldur
steðjar ógnin að öllum.
Það er þarflitið að deila um það hver „skuldar”
hverjum þegar á allt er litið, eða hvort „sök” rika
heimsins er i reynd meiri en drottnandi afla i
fátæku löndunum, — enda þótt viðurkennt sé að
flest megi viðgangast á kostnað hins hungraða og
þrælkaða almúga þessara landa svo lengi sem hin
mest hataða skepna jarðarinnar, hvitur maður af
norðvestur-evrópskum stofni, stendur ekki beinlinis
fyrir þvi.
Enda er þetta ekki meginmál, heldur annars veg-
ar sú ógn sem að öllum stendur, og hins vegar sú
siðferðilega skylda sem á öllum hvilir og þyngst á
þeim sem aflögufærir eru. Við höfum fengið um það
fyrirmæli að gefa „annan kyrtilinn” þeim sem eng-
an á ef við sjálfir eigum tvo, og undan þessari
skyldu, þessari „skuld”, komumst við ekki.
Og það er um þessa siðferðilegu skyldu sem aðrar
að henni fylgja ekki réttindi. Hún er skilyrðislaus og
verður hvergi reiknuð til frádráttar.í ljósi þessarar
skyldu verður það ljóst hvað jafnvel þjóð eins og
íslendingar „skulda”, hvaða krafa verður með full-
um rétti gerð til þeirra.
— Og það má spyrja, og geri það hver fyrir sig,
hvort framlög okkar eru fremur i samræmi við getu
þjóðarinnar til að létta hörmungarnar að nokkru,
eða hvort þau miðast meir við þann léttvæga efna-
hagsvanda sem við eigum við að kljást,- en litill er
hann i samanburði við það sem viða hrjáir þjóðirn-
ar.
Það er enginn skortur á viðvörunarmerkjum i
þessum heimi vöntunarinnar. Ýmsir atburðir
siðustu ára minna þannig óþyrmilega á það sem
gerðist t.d. á Balkanskaga fyrir og um siðustu alda-
mót, atburðarás sem að lokum sló neistanum i
tundur þess allsher jarófriðar sem átti eftir að verða
eitt megineinkenni tuttugustu aldarinnar.
Atburðirnir i Suðaustur-Asiu hafa áhrif langt út
fyrir það svæði og snerta mjög uppstökk og hörund-
sár stórveldi. Og ólgan i Persiu veldur ekki aðeins
upplausn i oliumálum veraldar, heldur er landið
sjálft eitt viðkvæmasta svæði i gervöllum öryggis-
og hernaðarmálum jarðarinnar.
Það væri hin sárgrætilegasta heimska ef fslend-
ingar hygðust halda sér utan við þessa framvindu,
eða héldu að röðin geti aldrei komið að þeim. I
þessum málum er engin röð. Þessi eldur brennur
þegar á öllum jarðarbúum, þótt með ólikum hætti
sé I álfum heimsins.
JS
I ÞESSARI viku hefur hafizt I
brezkum sjónvarpsstöövum
sýning á tveimur framhalds-
myndaflokkum, sem þykja lík-
legir til aö eiga eftir ab valda
miklu umtali og deilum, því aö
báöir fjalla um konungsfjöl-
skylduna á þann hátt, aö ýmis
atriöi munu ekki falla konung-
hollum Bretum vel i geö. Annar
framhaldsmyndaflokkurinn
fjallar um ástarævintýri Ját-
varöar sjöunda Bretakonungs,
sem fór meö völd I upphafi
þessarar aldar og er langafi
Elisabetar Bretlandsdrottn-
ingar. Framhaldsþættir þessir
nefnast Lillie I höfuöiö á konu
þeirri, sem þar kemur mest viö
sögu. Hinn framhaldsmynda-
flokkurinn fjallar um Játvarö
áttunda, sem kunnari er undir
nafninu hertoginn af Windsor.
Hann var Bretakonungur i aö-
eins fáa mánuöi fyrir rilmum
fjörutiu árum, en varö þá aö
láta af völdum sökum þess aö
hann giftist fráskilinni
ameriskri konu af borgaraleg-
um ættum. Framhaldsmynda-
flokkurinn fjallar um þetta
sögulega giftingarmál, sem var
einn mesti heimsviöburöurinn á
slnum tlma. Margir þeirra, sem
þar koma fram, eru enn á lifi,
þar á meöal konan, sem Ját-
varöur áttundi giftist og
þekktust er undir nafninu frú
Simpson, þótt hún fengi her-
togafrúartitil eftir giftinguna.
Franskur lögfræöingur,
Suzanne Blum, sem er lögfræö-
ingur hennar, hefur þegar
kvartaö undan þvi, aö frúin sé
sýnd I röngu ljósi I sjónvarps-
þætti. Þar sé dregin upp mynd
af henni sem léttúöugri gleöi-
konu sem hafi ginnt konunginn.
Blum segir þetta rangt, heldur
hafi konungur ekki getaö án
hennar veriö og hún látiö undan
sökum þess. Þá sé þaö meö öllu
rangt, aö hún hafi veriö oröin
ástmey konungs áöur en þau
giftust, eins og sjónvarpsleikur-
inn gefi til kynna. Ekkert þess
háttar hafi gerzt fyrr en eftir
giftinguna.
BRETAR hafa áöur gert fram-
haldsþætti fyrir sjónvarp um
Játvarö sjöunda, sem var vin-
sæll konungur. En þar var lltiö
gert úr ástarævintýrum hans,
sem sagan segir, aö hafi veriö
mörg. Þó brá fyrir á skerminum
gleöikonunni Lillie, sem nú
hefur oröiö efni i alllangan
framhaldsmyndaflokk. Fullu
nafni hét hún Lillie Langtry og
þótti ein fegursta kona Bret-
lands á sinum tima. Margir
fleiri fyrirmenn en Játvaröur
sjöundi tilbáöu hana. Sagan
segir, aö þau Lillie og Játvaröur
sjöundi hafi veriö elskendur
áratugum saman. En Játvaröur
sjöundi var frjálslyndur maöur
og sætti sig viö aö fleiri þekktu
Edward Fox sem Játvaröur
áttundi.
Denis Lill sem Játvaröur sjöundiog Francesca Annis sem Lillie
Langtry.
hana. Hann kynnti hana meöal
annars fyrir frænda sinum,
Louis prins af Battenberg. Lillie
ól honum (leynilega i Paris)
dóttur, Jean-Marie, en hann
giftist siöar annarri konu og var
Mountbatten lávaröur hjóna-
bandsbarn hans. Jean-Marie
eignaöist dóttur, Mary
Malcolm, sem um skeiö þótti
fallegasti fréttaspyrjandinn i
brezka sjónvarpinu. Meöal
annars átti hún viötal viö Mount
batten lávarö, en ekki var haft
hátt þá um skyldleika þeirra.
Mikil vinna og fyrirhöfn var
lögö I þaö aö búa sjónvarpsþætt-
ina um Lillie sem bezt úr garöi.
Búningarnir, sem þar eru
sýndir, skipta fleiri hundruöum.
Myndin á þannig aö sýna sem
bezt umhverfi sins tlma. Hún
mun vera dýrasta sjón-
varpsRvikmynd, sem hefur
veriö gerö I Bretlandi, miöaö viö
lengd. Framleiöendurnir telja
víst, aö hún seljist vel.
Cynthia Harris sem
frú Simpson.
SJÓNVARPSÞÆTTIRNIR um
Játvarö áttunda og giftingu
hans hafa hlotiö á ensku nafniö
„Edward and Mrs. Simpson”.
Frú Simpson haföi veriö tvl-
vegis gift áöur en hún kynntist
Játvaröi, sem þá var enn krón-
prins. Hann var þá mjög vinsæll
og hugöu Bretar gott til þess,
þegar hann yröi konungur.
Sagnaritarar, sem siöar hafa
kynnt sér feril hans, telja hann
hins vegar hafa veriö veik-
lyndan gleöigosa, sem sóttist
meira eftir giftum konum en
ógiftum. Frú Simpson viröist
hins vegar hafa veriö meiri
persónuleiki og náö strax mikl-
um tökum á honum, sem héld-
ust til dauöadags, en hann lézt
1972 og haföi enginn skuggi
falliö á sambúö þeirra. Ját-
varöur áttundi lét af völdum I
árslok 1936 og tók þá viö þeim
Georg bróöir hans, faöir Ellsa-
betar núv. drottningar. Bretar
höföu haft lltiö álit á honum en
hann reyndist þeim þvl betur.
KÍona Georgs, Elísabet, sem nú
gengur oftast undir nafninu
drottningarmóöir, kemur tals-
vert fram I sjónvarpsþáttunum
og viröist af framgöngu hennar
þar aö hún hafi veriö mjög af-
brýöisöm sökum þess, aö maöur
hennar var lengi vel i skugga
bróöur sins. Mikil áherzla er
sögö hafa veriö lögö á þaö aö
hafa sjónvarpsmyndaflokkinn
sem sögulega réttastan, enda
hægt um vik, þar sem margir
eru enn til frásagnar.
Elisabet Bretadrottning var
10 ára, þegar þessir atburöir
geröust. Hún varö þá krón-
prinsessa og tók svo við konung--
dómi 16 árum siöar. Margir
óttuöust aö fall Játvaröar átt-
unda yröi konungdóminum
óbætanlegt. Elisabet og Georg
sjötti eiga mestan þátt I þvi, aö
svo hefur ekki oröiö. Þ.Þ.
Erlent yfirlit
Ástarævintýri Breta-
konunga í sjónvarpinu
Sjónvarpsþættir líklegir til að valda deilum