Tíminn - 12.01.1979, Side 12
12
2
^PASr0
■11
w
'%•/ s\^‘
C
2
Sjúkrahús
Keflavíkurlæknishéraðs
Tilboð óskast i að fullgera siðari áfanga
nýbyggingar við sjúkrahús Keflavlkur-
læknishéraðs, útboðsverk II. Verkinu skal
að fullu lokið 28. febrúar 1981. Áætlað er að
2. hæð hússins verði tilbúin til notkunar 15.
febrúar 1980.
útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri Borgartúni 7, Reykjavik, gegn
40.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðju-
daginn 6. febrúar 1979, kl. 11:00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Starfsmannafélagið
Sókn
tilkynnir að marggefnu tilefni lýsum við
yfir að Skúli Halldórsson, fyrrverandi
starfsmannastjóri Rikisspitala hefur ekk-
ert talað við félagið um þær breytingar
sem verið er að læða inn á einstaka deildir
Rikisspitala, enda um tilraun til kjara-
skerðingar að ræða.
Stjórnin.
Frá Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti
. Nemendur komi i skólann mánudaginn 15.
janúar kl. 10 fh. til að sækja stundaskrár
og fá bókalista. Nýnemar eiga að standa
skil á gjöldum til skólans. Gjöld til
Nemendafélagsins hækka og skal mis-
munur greiddur við afhendingu stunda-
skráa. Kennsla hefst þriðjudaginn 16. jan.
kl. 8.30.
Skólameistari.
Tilboð óskast
i nokkrar fólksbifreiðar, Jeppabifreið
(Cherokee ’76 skemmd eftir veltu) og
Pick-up bifreið. Ennfremur nokkrar
ógangfærar bifreiðar þ.á.m. Pick-up með
framhjóladrifi er verða sýndar að
Grensásvegi 9,þriðjudaginn 16. jan. kl. 12-
15. Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri
kl. 17.
SALA VARNARLIDSEIGNA
Veistu að
árgjald flestra styrktarfélaga er sama og
verð 1-3ja sigarettupakka?
Ævifélagsgjald er almennt tifalt árgjald.
Ekki allir hafa timann eða sérþekkinguna
til að aðstoða og likna. Við höfum samt öll
slikar upphæðir til að létta störf fólks er
getur.
Föstudagur 12. janúar 1979
Sjdlfan Skugga-Svein leikur Theodör Júliusson
Leikfélag Akureyrar
Skugga-Sveinn
Laugardaginn 30. des. kl.
17.00 fór undirritaöur á sýningu
á Skuggasveini, eftir Matthlas
Jochumsson, sem er jólaleikrit
LA. Þetta gamalgróna sígilda
verk, er þess eölis, aö enginn
getur talistmaöur meö mönnum
nema aö hann hafi séö þaö
a.m.k. einusinni um ævina. Um
leikritiö sjálft hafa margir og
merkir menn skrifaö, og ætla ég
mér ekki aö fara aö leggja orö i
þann belg, aöeins tilfæra orö Jó-
hanns Sigurjónssonar, er hann
mælti fjórum árum fyrir dauöa
sinn, en þau eru í leikskrá þeirri
er fylgir leikritinu. „Aldrei,
hvorki fyrr né siöar, hefur
nokkur leikiist grq>iö mig meö
jafnmikiili aödáun og skelfingu
eins og þegar Skuggasveinn
hristi atgeirinn og kvaö ógur-
iegriraust: Ógn sé þér I oddi, / i
eggjum dauöi./hugur I fal,/en
heift i skafti. Löngu seinna,
þegar ég var kominn til vits d
ára, skildi ég aö þá snart gyöja
sorgarleiksins hjarta mitt I
fyrsta sinn meö sinum volduga
væng....”
Hlutverkaskipan er þessi,
Sigurö, bónda i Dal, leikur hinn
gamalreyndi leikari Jón Krist-
insson, sem á um þessar mundir
40 ára leikafrfiæli. Jón bregst
ekki trausti áhorfenda fremur
venju, Astu, dóttur hans, leikur
Svanhildur Jóhannesdóttir,
Svanhildur kemst vel frá þessu
hlutverki, en þó mætti segja
mér, aö skapmeiri hlut-
verk hæföu henni betur.
Jón sterka, leikur Jón-
steinn Aöalsteinsson, hæfilega
drjúgur meö sig, en þaöer vandi
aö ofleika þetta hlutverk ekki.
Þaö er skemmtileg venja, sem
ég hef heyrt aö sé gegnumgang-
andi, aö Grasa-Guddu leiki
karlmaöur, en Ketil skræk leiki
kvenmaöur! 1 hlutverki Guddu
er Þráinn Karlsson, afar vand-
virkur, og skemmtilegur
leikari, og sama má segja um
hlutverk Ketils skræks.sem er i
höndum Sigurveigar Jóns-
dóttur, Lárenzius, sýslumaöur,
er leikinn af Heimi Ingimars-
syni, hæfilega valdsmanns-
legur, oghefur gott vald á hlut-
verkinu. Margréti þjónustu-
stúlku hans leikur Jóhanna
Birgisdóttir, bráöfyndna og
létta á fæti. Hróbjart vinnu-
mann, og Gvend I Dal leikur
Viöar Eggertsson, og getur
maöur ekki annaö en dáöst aö
raddsviöi þessa unga manns. I
hlutverkum stúdentanna eru
þeir Gestur Jónsson, og Aöal-
steinn Bergdal, en þeir leika
einnig varömenn Lárenziusar
sýslumanns. Þeir eru þaulvanir
leikarar og mjög „eölilegir”
þ.e.a.s., þeirra framsögn er sér-
lega látlaus, og eölileg, og þaö
met ég mikils. Nú i hlutverki
sjálfs Skugga-Sveins er
Theodór Jvlllusson, erfitt hlut-
verk finnst mér aö þaö hljóti aö
vera, þviþar er erfitt aö farabil
beggja— aösýna hálftröll, sem
er aö byrja aö bogna fyrir ell-
inni, og mann, meö mannlegar
tilfinningar.
Hjá Theódóri veröur
Skugga-Sveinn, einstaka sinn-
um fullgamall, og beygöur. En
Theodór hefur til aö bera mikla
rödd, sem sótti sig eftir þvl sem
aö á sýninguna leiö, og aö ööru
leyti er leikur hans mjög góöur,
svo mjög, aö I lok leiksins,
þegar hann er i böndum, þá
snertir þaö mann illa aö sjá
fyrir endann á ferli þessa stór-
brotna manns. Um gallana á
þessu hlutverki er ekki viö
Theodór aö sakast, heldur
frekar leikstjórann Sigrúnu
Björnsdóttur. Mér fannst þaö
stinga mig I hvert sinn, sem
talaö var um stóra manninn,
og sjá hann siöan i hópi manna,
sem flestir voru aö stærö,
svipaöir honum og jafnvel
hærri. Aörir fylgdarmenn
Skugga-Sveins, en Ketill skræk-
ur, eru Haraldur, og Ogmundur.
Harald leikur Evert Ingólfsson,
og ögmund leikur Jóhann ög-
mundsson. Evert hefur alveg
sérstaklega skýra og skemmti-
lega framsögn, og þaö sama má
vissulega segjaum Jóhann, sem
er, lika á sama hátt „eölilegur”
og Gestur og Aöalsteinn.
Skrifara leikur Nanna I. Jóns-
dóttir.
Leiksviösmynd er eftir Þráin
Karlsson og Hallmund Krist-
inss. og er lifguö upp af ljósa-
meistara, Arna Val Viggóssyni.
Framhald á bls. 13.
Jón Kristinsson i hlutverki Siguröar bónda i Dal.