Tíminn - 12.01.1979, Page 12

Tíminn - 12.01.1979, Page 12
 12 2 ^PASr0 ■11 w '%•/ s\^‘ C 2 Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs Tilboð óskast i að fullgera siðari áfanga nýbyggingar við sjúkrahús Keflavlkur- læknishéraðs, útboðsverk II. Verkinu skal að fullu lokið 28. febrúar 1981. Áætlað er að 2. hæð hússins verði tilbúin til notkunar 15. febrúar 1980. útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borgartúni 7, Reykjavik, gegn 40.000.- kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðju- daginn 6. febrúar 1979, kl. 11:00 f.h. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Starfsmannafélagið Sókn tilkynnir að marggefnu tilefni lýsum við yfir að Skúli Halldórsson, fyrrverandi starfsmannastjóri Rikisspitala hefur ekk- ert talað við félagið um þær breytingar sem verið er að læða inn á einstaka deildir Rikisspitala, enda um tilraun til kjara- skerðingar að ræða. Stjórnin. Frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti . Nemendur komi i skólann mánudaginn 15. janúar kl. 10 fh. til að sækja stundaskrár og fá bókalista. Nýnemar eiga að standa skil á gjöldum til skólans. Gjöld til Nemendafélagsins hækka og skal mis- munur greiddur við afhendingu stunda- skráa. Kennsla hefst þriðjudaginn 16. jan. kl. 8.30. Skólameistari. Tilboð óskast i nokkrar fólksbifreiðar, Jeppabifreið (Cherokee ’76 skemmd eftir veltu) og Pick-up bifreið. Ennfremur nokkrar ógangfærar bifreiðar þ.á.m. Pick-up með framhjóladrifi er verða sýndar að Grensásvegi 9,þriðjudaginn 16. jan. kl. 12- 15. Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl. 17. SALA VARNARLIDSEIGNA Veistu að árgjald flestra styrktarfélaga er sama og verð 1-3ja sigarettupakka? Ævifélagsgjald er almennt tifalt árgjald. Ekki allir hafa timann eða sérþekkinguna til að aðstoða og likna. Við höfum samt öll slikar upphæðir til að létta störf fólks er getur. Föstudagur 12. janúar 1979 Sjdlfan Skugga-Svein leikur Theodör Júliusson Leikfélag Akureyrar Skugga-Sveinn Laugardaginn 30. des. kl. 17.00 fór undirritaöur á sýningu á Skuggasveini, eftir Matthlas Jochumsson, sem er jólaleikrit LA. Þetta gamalgróna sígilda verk, er þess eölis, aö enginn getur talistmaöur meö mönnum nema aö hann hafi séö þaö a.m.k. einusinni um ævina. Um leikritiö sjálft hafa margir og merkir menn skrifaö, og ætla ég mér ekki aö fara aö leggja orö i þann belg, aöeins tilfæra orö Jó- hanns Sigurjónssonar, er hann mælti fjórum árum fyrir dauöa sinn, en þau eru í leikskrá þeirri er fylgir leikritinu. „Aldrei, hvorki fyrr né siöar, hefur nokkur leikiist grq>iö mig meö jafnmikiili aödáun og skelfingu eins og þegar Skuggasveinn hristi atgeirinn og kvaö ógur- iegriraust: Ógn sé þér I oddi, / i eggjum dauöi./hugur I fal,/en heift i skafti. Löngu seinna, þegar ég var kominn til vits d ára, skildi ég aö þá snart gyöja sorgarleiksins hjarta mitt I fyrsta sinn meö sinum volduga væng....” Hlutverkaskipan er þessi, Sigurö, bónda i Dal, leikur hinn gamalreyndi leikari Jón Krist- insson, sem á um þessar mundir 40 ára leikafrfiæli. Jón bregst ekki trausti áhorfenda fremur venju, Astu, dóttur hans, leikur Svanhildur Jóhannesdóttir, Svanhildur kemst vel frá þessu hlutverki, en þó mætti segja mér, aö skapmeiri hlut- verk hæföu henni betur. Jón sterka, leikur Jón- steinn Aöalsteinsson, hæfilega drjúgur meö sig, en þaöer vandi aö ofleika þetta hlutverk ekki. Þaö er skemmtileg venja, sem ég hef heyrt aö sé gegnumgang- andi, aö Grasa-Guddu leiki karlmaöur, en Ketil skræk leiki kvenmaöur! 1 hlutverki Guddu er Þráinn Karlsson, afar vand- virkur, og skemmtilegur leikari, og sama má segja um hlutverk Ketils skræks.sem er i höndum Sigurveigar Jóns- dóttur, Lárenzius, sýslumaöur, er leikinn af Heimi Ingimars- syni, hæfilega valdsmanns- legur, oghefur gott vald á hlut- verkinu. Margréti þjónustu- stúlku hans leikur Jóhanna Birgisdóttir, bráöfyndna og létta á fæti. Hróbjart vinnu- mann, og Gvend I Dal leikur Viöar Eggertsson, og getur maöur ekki annaö en dáöst aö raddsviöi þessa unga manns. I hlutverkum stúdentanna eru þeir Gestur Jónsson, og Aöal- steinn Bergdal, en þeir leika einnig varömenn Lárenziusar sýslumanns. Þeir eru þaulvanir leikarar og mjög „eölilegir” þ.e.a.s., þeirra framsögn er sér- lega látlaus, og eölileg, og þaö met ég mikils. Nú i hlutverki sjálfs Skugga-Sveins er Theodór Jvlllusson, erfitt hlut- verk finnst mér aö þaö hljóti aö vera, þviþar er erfitt aö farabil beggja— aösýna hálftröll, sem er aö byrja aö bogna fyrir ell- inni, og mann, meö mannlegar tilfinningar. Hjá Theódóri veröur Skugga-Sveinn, einstaka sinn- um fullgamall, og beygöur. En Theodór hefur til aö bera mikla rödd, sem sótti sig eftir þvl sem aö á sýninguna leiö, og aö ööru leyti er leikur hans mjög góöur, svo mjög, aö I lok leiksins, þegar hann er i böndum, þá snertir þaö mann illa aö sjá fyrir endann á ferli þessa stór- brotna manns. Um gallana á þessu hlutverki er ekki viö Theodór aö sakast, heldur frekar leikstjórann Sigrúnu Björnsdóttur. Mér fannst þaö stinga mig I hvert sinn, sem talaö var um stóra manninn, og sjá hann siöan i hópi manna, sem flestir voru aö stærö, svipaöir honum og jafnvel hærri. Aörir fylgdarmenn Skugga-Sveins, en Ketill skræk- ur, eru Haraldur, og Ogmundur. Harald leikur Evert Ingólfsson, og ögmund leikur Jóhann ög- mundsson. Evert hefur alveg sérstaklega skýra og skemmti- lega framsögn, og þaö sama má vissulega segjaum Jóhann, sem er, lika á sama hátt „eölilegur” og Gestur og Aöalsteinn. Skrifara leikur Nanna I. Jóns- dóttir. Leiksviösmynd er eftir Þráin Karlsson og Hallmund Krist- inss. og er lifguö upp af ljósa- meistara, Arna Val Viggóssyni. Framhald á bls. 13. Jón Kristinsson i hlutverki Siguröar bónda i Dal.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.