Tíminn - 13.03.1979, Qupperneq 2

Tíminn - 13.03.1979, Qupperneq 2
2 Þriöjudagur 13. mars 1979 Carter frestar för sinni: Begin lýsir yfir miklum árangri Carter hittir Sadat i dag á leið sinni til Bandarikjanna Jerúsalem-Kairó-Bagdad/Reuter — Menachem Begin forsætisráðherra ísraels lýsti þvi skyndi- lega yfir i gærkvöldi og öllum á óvart að mikið hefði miðað i samkomulagsátt i viðræðum við Carter til Bandarikjaforseta eftir að hann frestaði um stund för sinni heim til Bandarikj- anna. í kjölfar yfirlýsingar Begin kom svo yfirlýsing frá Carter um að hann mundi dveljast i Israel um nóttina og talsma&ur stjórnarinnar i Kairó tilkynnti um svipaö leyti aö Carter mundi Pakistan segir sig úr PAKISTAN _2íi£jr Cento — enn slakna böndin um Sovét London-Islama- bad/Reuter — Pakistanar tilkynntu i gær að þeir muni hætta þátttöku i Cento sem var varnarbandalag íraks, Tyrklands, Bret- lands, Pakistans og írans og með hlutdeild Bandarikjanna. Cento var stofnaö áriö 1955 aö ölhlutan John Foster Dulles þá- verandi utanrikisráöherra Bandarikjanna og var opinbert markmiö bandalagsins aö stööva útþenslustefnustefnu Sovétrikjanna og slá hring um þau. Ariö 1959 gekk Irak úr Cento og nú eru Pakistan og tran um þaö bil aö yfirgefa bandalagið og Bretland og Tyrkland þvi ein rikjanna eftir. Hefur raunar veriö aö siga á ógæfuhliöina fyr- ir bandalaginu allan þennan og siðasta áratug og eru nú rúst- irnar einar eftir. 1 Pakistan hefur Cento verið har&lega gagnrýnt um árabil og sérstaklega þegar það leiddi al- veg hjá sér afskipti af landa- mæraerjum. Pakistans og Ind- lands. Fram til þessa hafa Pakistanir þó ekki séð sér fært aö yfirgefa Cento vegna við- horfa nágrannarikjanna, en eft- iraðbyltingarstjórnini Iran til- kynnti að Iran yrði ekki áfram i Cento breyttust viðhorfin og hafa Pakistanir nú formlega sagt sig úr Cento. 1 Bretiandi var i gær sagt aö þessi ákvöröun Pakistans kæmi ekki á óvart og þaö væri nú á valdi þessara rikja sjálfra að sjá fyrir vörnum sinum. Begin og Carter fljúga til Bandarikjanna I dag 1 meö vi&komu I Egyptalandi þar sem hann mun ræöa við Sadat forseta. 1 gærmorgun var almennt álitiö aö afrakstur Miöaustur- landaheimsóknar Carters yröi nánast enginn. Komu þvi þessar siöustu fréttir mjög á óvart og þykja benda til þess aö leiö til samninga hafi opnast. Var til dæmis ekki reiknaö meö aö Carter færi aftur til Egypta- lands nema eitthvaö mjög já- kvætt geröist I viðræöunum. Engar upplýsingar lágu I gær fyrir um hvað raunverulega var aö gerast en blaöafulltrúi Begins sagöi fréttamönnum aö verulegum hindrunum. i vegi friöarsamninga Egypta og Israelsmanna heföi veriö rutt úr vegi, en tók þaö þó fram I leiö- inni aö ósamkomulag rikti enn I sumum greinum. A sama tima og þessu fór fram var einhver hreyfing á öörum vlgstöövum, þ.e.a.s. hjá þeim Arabarlkjum sem andvig- ust hafa verið friöarsamning- um. Tilkynnt var i gær aö utan- rikisráöherra Rúmeniu, Stefan Andrei, og rúmensk sendinefnd væristödd i Irak og mundi slðan fara til Sýrlands og ræöa deil- una fyrir botni Miöjaröarhafs. Ceausescu Rúmeniuforseti hefur áöur verið oröaöur viö friöarviöræöurnar og jafnvel leikur orö á þvi a& hann hafi átt mikinn þátt I aö koma þeim á. Evrópska gjaldeyrisbanda- lagið hefur göngu sina i dag Paris/Reuter — Evrópska gjaldeyrisbandalagiö (EMS), sem er stórt stökk I átt til sam- eiginlegs gjaldmiöils Efnahags- bandalagsríkja, hefur i dag göngushia.vartilkynnt i höfuö- stöövum Efnahagsbandalagsins I gær. Markmiö bandalagsins er að stuðla að stöðugleika I gengi Efnahagsbandalagsrikja og stöðugleika I viöskiptum þeirra innbyröis. ölllönd bandalagsins nema Bretland munu taka þátt ogbinda gengi gjaldmiðla sinna innbyröis. Fyrirhugaö var aö gjaldeyris- bindingin hæfist hinn 1. janúar siðastliðinn en á elleftu stundu neituöu Frakkar að vera með nema reglur Efnahagsbanda- lagsins um uppbætur og niöur- greiÖ6lur á landbúnaöarvörum yröu lagfæröar þannig aö bænd- ur í Frakklandi fengju meira fyrir afurðir sinar Hafa Frakk- ar ogV-Þjó&verjar nú gert meö sér málamiðlunarsamkomulag i þessu efni og engar hindranir standa nú lengur i vegi gjald- eyrisbandalagsins sem hefja mun göngu sina i dag eins og fyrr segir. Enn mótmæla konur í Iran Teheran/Reuter — Konur i Teheran fóru I fjóröu mótmæla- gönguna á fimm dögum i gær, en þær vilja mótmæla áformum byltingarráös Khomeini um aö koma á I landinu múhameöskri löggjöf, er meöal annars leiddi til þess aö konar yröu aö klæöast kuflum og ber blæjur aö múhameöskum sið. Mótmælagangan I gær var ekki eins fjölmenn og hin stærsta, er taldi 15 þúsund kon- ur, og ekkikom til neinna átaka. Hins vegar höföu stórir hópar uppi andmæli viö konurnar og hrópuöu til þeirra slagorö um a& þær væru amerisk handbendi og fleira i þá átt. Þegar sviviröing- ar þessa hóps þóttu keyra úr hófi fram skaut öryggisvörður byltingarstjórnarinnar aðvör- unarskotum yfir höfuð mannanna. Að sögn heimildamanna Reuters eru þær konur sem þátt hafa tekið i mótmælaaðgeröun- um allar úr hópi efnaðra og hafa þær I tiö keisarans haft góða af- komu og vanist vestrænum lifnaðarháttum og klæönaöi. Franska þingið kall- að saman í skyndi — til að fjalla um neyðarástand I atvinnumálum stáliðnaðarmanna Paris/Reuter — Giscard d’Estaing boð- aði i gær til skyndisam- komu franska þingsins til að fjaila um neyðar- ástand það er rikir i at- vinnumálum franskra stáliðnaðarmanna. Þingiö mun koma saman á morgun en boöun þess kom i kjölfar viku óeiröa og mótmæla- aögeröa franskra stáli&naöar- og verkamanna. Öánægja þeirra er sprottin af uppsögnum og atvinnuleysi en fyrirhugaö er aö segja upp 21 þúsund mönnum fyrir árslok 1980. Fyrir er nær ein og hálf milljón atvinnu- lausra Frakka. Mótmælaaögeröir verka- mannanna hafa sums staöar i stáliönaðarhéruöum Frakka veriö mjög harkalegar og til átaka hefur komiö viö lögreglu. Kveikt hefur veriö i bilum, landamærastöövar veriö herteknar, járnbrautateinar brotnir upp og ráöist á lögreglu- stöövar. Giscard d’Estaing Brottflutningur Kína hers gengur hægt Peking/Reuter — önnur vika undanhalds Kinverja frá Vfetnam er nú hafin og ásaka rikin hvot annaö um aö tefja fyrir brottflutningi hersins. Fréttir af atburöum siöustu daga eru þó mjög óljósar en eitthvaö sagt liggja i loftinu. Hafa fréttamenn Reuters þaö eftir vietnömskum heimildum aö almennt herútboö gildi enn og Vietnamar búi sig undir hiö versta. I málgagni kommúnista.' flokksins I Kina I gær var og hvatning um aukna samstööu I flokknum og eflingu hans „I þágu þjóöarinnar allrar, ein- ingar hennar og öryggis”. Fremur var þó talið aö hér væri höföað til innanrikismála en aö óttast væri enn frekari átök út á viö. Alls ekki er þó taliö óliklegt aö enn eigi eftir aö heyrast af átök- um i Mið-Austur-Asiu og þaö fyrr en seinna. Gagnsókn Aminsstöðvuð — tílræði við hann sjálfan Nairobi/Reuter — Flóttamenn frá Ug- anda tjáðu fréttamönn- um Reuters i gær að vopnaðir útlagar frá Uganda studdir af her Tanzaniumanna hefðu náð að stöðva gagnsókn Amins Ugandaforseta og slá herkvi um gagn- sóknarlið hans. Ennfremur sögöu frétta- mennirnir aö Tanzaniuher og útlagarnir heföu náö aö króa heri Amin af frá höfuöborginni Kampala og skæruliöar þar létu æ meir aö sér kveöa svo og I öör- um borgum Uganda. Aöalvatns- aöveitukerfi Kampala heföi veriö sprengt upp og sprengja heföi sprungiö viö bústað Amins, þó án þess aö hann saka&i. Herflutningar Libýumanna til Uganda halda enn áfram og i liöi Amins er nokkur fjöldi hernaöarsérfræöinga frá Libýu.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.