Tíminn - 13.03.1979, Síða 3

Tíminn - 13.03.1979, Síða 3
ÞriOjudagur 13. mars 1979 3 ESE — Annað tveggja skipa, sem Samband islenskra samvinnufélaga festi kaup á i Danmörku i nóvember á síðasta ári, kom i fyrsta skipti til heimahafnar sinnar, Reykjavikur, i gærmorgun. Skipið, sem hlotið hefur nafnið Helgafell, er systurskip Arnar- fells, sem kom til landsins fyrir skömmu, en skipin eru almenn flutningaskip, keypt af Utgeröar- fyrirtækinu Mercandia i Kaupmannahöfn. Skipin voru smiðuð 1974 og 1975 hjá Fredrikshavn Værft & Tördok A/S i Fredrikshavn og eru þau hvort um sig 3050 lestir að burðargetu. Lestarrými skipanna er 134.250 rúmfet, lengd þeirra 78.50 metr- ar, breidd 13 metrar og djúprista 5.74 metrar. Eru þau smfðuð i samræmi viö kröfur norska flokk- unarfélagsins Det Norske Veritas, búin 2000 hestafla Alpha disilvélum og er ganghraði þeirra um 13 sjómflur. Skipin eru hvort um sig meö þrjá Liebherr farmkrana, með Becker-stýri og skiptiskrúfu. Þau eru afhent með gámafestingu á dekki og einnig eru bæði skipin búin hlifðarlistum á hliðum með tilliti til aðstæðna i islenskum höfnum. Kaupverð beggja skipanna var 16,8 milljönir danskra króna og eru fyrrgreindar breytingar inni- faldar i verði skipanna. Skipstjóri á Helgafelli er Reyn- ir Guðmundsson og yfirvélstjóri er Baldur Sigurgeirsson, en 15 manna áhöfn er á skipinu sem veröur i siglingum á milli Gauta- Helgafellið i hcimahöfn I gær — A innfelldu myndinni eru þeir Axel Gfslason forstjóri Skipadeildar Sam- bandsins og Reynir Guömundsson skipstjóri. Timamynd Tryggvi. borgar, Kaupmannahafnar og íslands. A blaðamannafundi sem hald- inn var um borö I Helgafellinu i gær, kom fram að skipiö lenti 1 miklum is i dönsku sundunum á leiðinniheim og stóð skipið sig af- burðavel að sögn Reynis Guð- mundssonar skipstjóra. Axel Gislason forstjóri Skipa- deildar Sambandsins upplýsti á fundinum i gær, aö með tilkomu þessa skips er skipastóll skipadeildarinnar orðinn 17.500 lestir, en á döfinni eru ýmislegar framkvæmdir hjá skipadeildinni, m.a. stendur til aö byggja vöru- skemmdu við svokallaöan Holta- bakka, sem er fyrir neðan stórhýsi Sambandsins viö Holta- garöa, og verður vöruskemman, sem væntanlega verður tilbúin einhver timann á næsta ári, um 8000 fermetrar að grunnmáli. Nú er verið aö vinna viö viðlegukant við Holtabakka á vegum Reykjavikurborgar og er vonast til aö þvi verki veröi lokiö á þessu ári, þannig aö innan skamms ættu skip skipadeildar- innar að geta lagst þar að bryggju. Nýtt skip bætist í flotann: Helgafellið komið til landsins A þetta torkennilega farartæki rakst hann Tryggvi Ijósmyndari niöri á Skúlagötu i gærdag, þar sem þaö fór um meö mikium blæstri, en þaö var þó bót í máli aö þaö var á réttri akrein. AM — 1 gær átti blaöið tal af Guö- mundi Einarssyni, forstjóra Rikisskips, um þá hagræöingu, scm fyrirtækið hefur tekiö upp meö endurskipulagningu feröa sinna, sem felst aö nokkru leyti i þvi aö leggja minni áhersiu á hringferðir en áöur og hafa feröir styttri og fleiri. Guðmundur sagði að meginmarkmið þessara bi;eyt- inga væri þaö aö veita ströndinni betri þjónustu en fyrr og aö meö þessu væri veriö að leita að hag- kvæmustu leiðum til þess, þótt þýöa kynni nokkru minni þjón- ustu á stöku stað um stundarsak- ir, svo sem á Norð-austurlandi hefur gerst. Guðmundur sagði að byrjað heföi verið á þvi að koma þessari breytingu á á Vestfjörðum og minni hafnir tengdar við þær stærri með bilum, svo sem gerist nú á Bildudal og i Tálknafiröi, þar sem bflar flytja vörur aö og frá skipum, sem koma á Patreks- fjörö, og á ísafirði, þar sem bflferðir eru til Bolungarvikur, Flateyrar og Súgandafjarðar. Sams koúar breytingar hafa verið reyndar að nokkru á Aust- fjöröum og á Norö-austurlandi, til dæmis hvað Bakkafjörð snertir, en þær eru ekki enn komnar i fast form. Þó sagöi Guðmundur að væri eitthvað sérstakt um að ræða, færú skipin eftir sem áður á þessa minni staði og væri metiö hvað hagkvæmast væri hverju sinni og gæti ráöið þvi magn og eðli vörunnar. Við spuröum Guðmund enn hvort hann teldi aö með þessari breytingu færi Rikisskip inn á svið samkeppni viö önnur skipafélög, sem sigla á þessa staði og ekki njóta opinbers stuðnings, eins og Skipaútgerö rikisins. Svaraði hann þvi til aö kalla mætti allar siglingar skipa á sömu staði, sem veittu sömu þjónustu, samkeppni. Rikisskip sigldi nú tvisvar eina vikuna en einu sinni aðra til Isafjaröar og vissi hann ekki til að aðrir byðu slika þjónustu. Flutningamagn hefði aukist mikið þarna og áleit hann það ekki komið frá öðrum skipafélögum. Rikisskip tækju hins vegar gjarna við vörum frá skipum annarra skipafélaga, sem ekki sigldu á ströndina til flutn- ings og væri þá fremur um sam- vinnu að ræða en samkeppni. Þá vildi hann benda á að ekki mætti einblina á stærstu staöina eina, svo sem ísafjörð og Akureyri, þvi skipin sigla til fjölda annarra staöa, sem allir ættu að vita. Hann kvaö og samkeppni miklu meiri við flutningabila en önnur skipafélög. Rekstur útgerðarinnar kvað hann nú þannig aö haldið hefði veriö I horfinu, en þessar hag- kvæmu breytingar heföu verið gerðar á sama tima og mikil launahækkun átti sér staö hjá far- mönnum. Enn hefðu ekki komið til þær framkvæmdir, sem beðiö hefði veriðum og væru grundvöll- ur þess að hagur fyrirtækisins mætti batna, þar á meðal ný vöruskemma og ný skip. Allt mun þetta i undirbúningi, en á meðan ekki er orðið af þvi, er þess ekki að vænta aö fjárhagsútkoman batni að neinu ráði. Aukin hag- ræðing krefst nokkurra fjár- útláta, áður en hún tekur ab skila af sér hagnaöi, sagði Guömundur. SNJÓBLÁSARINN Á FLEYGIFERÐ Kampavinskátur heimsmeistari Breski plötusnúðurinn Mickie Gee var kampakátur um þrjú leytið f gær, eftir að hafa slegið heimsmetiö I maraþon plötusnúningi, en þá hafði Gee verið að i sjö vikur eða frá 22. janúar. Svo sannarlega var við hæfi aö lyfta glasi við þetta hátiölega tækifæri I gær, og aö sjáifsögðu var kampavin I glösum. Tlmamynd Tryggvi Áhaldahúsmáli lokið FI — Svoköiiuðu áhaldahúss- máli er lokið I Bæjarþingi Reykjavfkur og voru Reyni Þóröarsyni fyrrverandi yfir- verkstjóra i áhaldahúsi Reykja- vlkurborgar dæmdar bætur upp á 3,5 milljónir króna auk vaxta og málskostnaðar. Mál þetta var mjög umtalað strax á árinu 1974 og var Reyni vikiö úr starfi vegna meints misferlis. Málið sætti Itarlegri rannsókn hjá endurskoöunardeild Reykja- vlkurborgar og slðar umfangs- mikilli rannsókn i Sakadómi Reykjavlkur, en niðurstaða rikissaksóknara var sú, að ekki — Verður áfryjað til hæstaréttar? þótti tilefni til aögerða. Seinna fór Reynir I bótamál og krafðist bóta úr borgarsjóði Reykjavlkur vegna órétt- mætrar uppsagnar úr starfi. Fór Reynir fram á 52 milljónir i skaðabætur, meginhluti þeirrar upphæðar eða 44 milljónir voru bætur vegna skertra lifeyris- réttinda. Eins og sést af framangreindu var I dómsorði ekkert tillit tekið til skertra lifeyrisréttinda, en sannleikurinn er sá, aö sé opin- berum starfsmanni sagt upp missir hann réttindi sin til verð- tryggðs lifeyrissjóðs, hafi hann gegnt starfi innan við 15 ár. Reynir hafði unniö i rúm 14 ár, þegar honum var sagt upp starfi. Dómari i málinu var Guðmundur Jónsson. Er nú spurning, hvort málinu verður visað til hæstaréttar. Guðmundur Einarsson, forstjóri Skipaútgerðar ríkisins Nýtt leiðakerfi með hagkvæmari þjónustu að meginmarkmiði

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.