Tíminn - 08.04.1979, Page 5
Sunnudagur 8. aprll 1979
5
LÁNAMÖGULEIKAR MEÐ HÁMARKSSPARNAÐI
SPARIVELTA-A Sparnaðarflokkar: 25,50 og 75 þús.kr. í í mánuði.
Sparnaöar- Mánaðarlegur Sparnaðuri Láns- Lán frá Sam- Ráðstöfunarfé Mánaðarleg Endurgr.
tímabil sparnaður lok tímabils hlutfall vinnubanka með vöxtum endurgr. tími
3 mánuðir 75.000 225.000 100% 225.000 454.875 78.108 3 mánuðir
4 mánuðir 75.000 300.000 100% 300.000 608.875 78.897 4 mánuðir
5 mánuðir 75.000 375.000 100% 375.000 764.062 . 79.692 5 mánuðir
6 mánuðir 75.000 450.000 100% 450.000 920.437 80.492 6 mánuðir
SPARIVELTA-B Sparnaðarflokkar: 15, 25 og 35 þús.kr. í \ mánuði.
Sparnaöar- Mánaðarlegur Sparnaðuri Láns- Lán frá Sam- Ráðstöfunarfé Mánaðarleg Endurgr.
timabil sparnaður lok tímabils hlutfall vinnubanka með vöxtum endurgr. tími
12 mánuðir 35.000 420.000 125% 525.000 982.975 49.819 12 mánuðir
18 mánuðir 35.000 630.000 150% 945.000 1.664.420 45.964 27 mánuðir
24 mánuðir 35.000 840.000 200% 1.680.000 2.677.662 55.416 48 mánuðir
30 mánuðir 35.000 1.050.000 200% 2.100.000 3.411.474 64.777 54 mánuðir
36 mánuðir 35.000 1.260.000 200% 2.520.000 4.165.234 73.516 60 mánuðir
Gert er ráð fyrir 19.0% innlánsvöxtum og 24.69% útlánsvöxtum svo og lántökugjaldi. Vaxtakjör eru háð ákvörðun Seðlabankans.
írska stúlkan sem
giftist bróður Hitlers
Bridget Dowling var 17 ára,
þegar hún áriö 1909 hitti mjög
myndarlegan mann á hestasýn-
ingu i Dublin og féll algjörlega
fyrir honum. Þannig lýsir hún
honum, eins og hann kom fyrir
þetta kvöld: „Hvitur filabeins-
stafur meö gylltu handfangi
hékk á handlegg hans meö
óviðjafnanlegum glæsibrag. 1
bindishnútinn var festur perlu-
prjónn og á litla fingri vinstri
handar bar hann tvo hringa,
einn demantshring og annan
með rúbinsteini. Bar þetta vott
um nokkuð óhóf. Hann var i
ljósu vesti og úr öðrum vasan-
um hékk gullkeðja yfir i hinn.
Yfirvaraskegg hans var fallega
uppsnúið. Hann kynnti sjálfan
sig sem Alois Hitler frá Austur-
riki”.
Arið 1929 hitti Patrick föður
sinn i Berlin og var kynntur
fyrir Adolf, föðurbróður sinum.
Þegar Hitler varð kanslari 1933
byrjaði Patrick að vinna i Rikis-
bankanum i Berlin. Það er
augljóst að ungi maðurinn dáð-
ist mjög að frænda sinum og
jafn augljóst aö Bridget var illa
við að vera skilin ein eftir i
Englandi. Henni fannst að ef
sonur hennar væri á uppleið á
framabrautinni ætti hún að
standa við hlið hans. Hún elti
hann og bankaði upp á i
Berchtesgaden.
„Það er erfitt að blekkja
konu. Hún getur alltaf sagt um
hvenær maður er að látast.
Adolf var fæddur leikari, sem
lék jafnvel frammi fyrir einni
manneskju. Ég sá það greini-
lega þegar hann stóð þarna og
benti mér að koma til sin. Hann
rétti mér vinstri höndina, þvi að
i þeirri hægri hélt hann á svipu.
Hann hélt hendi minni lengi I
sinni og horfði á mig. Arin
hafa liðið hjá an þess að hafa
breytt þér sagöi hann að lokum.
Þetta var það eina sem benti til
að hann myndi eftir heimsókn
sinni til liverpool forðum daga.
Að sjálfsögðu geröi ég enga at-
hugasemd.”
Til allrar óhamingju fyrir
Bridget hafði hún ekki alltaf
verið svo fámál. Hún hafði oft
áður talað um samband sitt við
Foringjann við fjölmiðla og ef
hún i sakleysi sinu vonaði að
hún væri velkomin til
Þýskalands, þá skjátlaðist
henni. Þegar hún og William
Patrick sneru aftur var hún ekki
sérlega vinsæl i Englandi heldur.
Arið 1941 sigldu þau til
Ameriku og eftir eitt eða tvö ár
fréttist ekki frá þeim meir.
Endurminningar hennar,
skrifaöar á 5. áratugnum, fund-
ust meðal rita um bókmenntir
og voru settar á skjalasafn
Almenningsbókasafnsins i New
York.
Þar segir hún frá lifi sinu og
kjörum i gegnum árin. Lifi sinu
Alois, hálfbróðir Adolfs, hljóp
á brott með Bridget til Englands
og kvæntist henni i London. Þau
settust að I Liverpool 1910 og
eignuðust son, sem þau skiröu
William Patrick. 30 árum siðar
fluttust mæðgingin búferlum til
Ameriku og Bridget skrifaði
endurminningar sinar. Þær eru
nýkomnar út og hafa vakið
mikla athygli.
Sumir sem lásu bók hennar
urðu e.t.v. fyrir vonbrigðum.
Þeir áttu von á einhverju mjög
æsandi. Aðrir héldu jafnvel að
bókin mundi leiða ýmislegt
sagnfræðilegt i ljós. En minn-
ingar Bridget eru forvitnilegar
sökum þess að það er höfundur-
inn sjálfur sem kemur fram
sem aðalpersóna.Eiginmaður
sonur og stofnandi „Þúsund ára
rikisins” eru allir með minni
hlutverk. Höfundurinn var
hvorki sagnfræðingur né
stjórnmálamaöur, heldur að-
eins venjuleg irsk kona. Hún var
áköf, metnaðargjörn, gaman-
söm og úrræðagóð.
Þrátt fyrir hið fullkomna útlit
og glæsileika, var Alois bara
veitingaþjónn á hóteli og þar að
auki útlendingur. Bridget, sem
var vel uppalin kaþólsk stúlka,
strauk i burtu með honum, þrátt
fyrir andstöðu foreldra hennar.
Hjónaband þeirra entist ekki
lengi.
Alois var sannfærður um að
það væri hægt aö græða mikið á
hinum nýju rakvélum, sem voru
það nýjasta á markaðinum og
voru að verða mjög vinsælar um
þessar mundir. Hann var stað-
ráðinn i að ná evrópskum
markaði i sinar hendur.
Honum fannst systir sin
Angela, sem bjó i Linz vera til- lu
valinn umboðsmaður fyrir hiö
dularfulla fyrirtæki sitt á
meginlandinu. Hann sendi henni
peninga fyrir farinu til
Englands.
Eftir þvi sem segir i endur-
minningum Bridgets var það
ekki Angela sem steig út á Lime
Street Station i nóvember 1912
heldur Adolf, hálfbróöir Alois
tötralega klæddur og næstum
vitskertur af þreytu og hungri.
Hann eyddi næstum öllum þeim
5 mánuðum, sem hann var i
Liverpool, sofandi i sparisófa
Bridgets. Hún haföi vandlega
snyrt yfirvaraskegg Alois og nú
hvatti hún Adolf til að sam-
þykkja sömu meðferö, sbr.
skeggið fræga.
Stuttu fyrir fyrri heims-
styrjöldina yfirgaf Alois fjöl-
skylduna og Bridget hélt að hún
væri orðin ekkja. Hún sendi
William Patrick á heimavistar-
skóla og ferðaðist um megin-
landið sem reviusöngkona.
Patrick las i dagblaði nokkru
um pólitiskan frama Adolfs
Hitlers. Hann skrifaöi honum og
spurði hvar Alois, faðir hans,
væri jarðaður. En Alois var þá
sprelllifandi og tvikvænismaður
að auki. Til að koma i veg fyrir
hneyksli skrifaði Bridget eið-
svarna skýrslu, þar sem hún
skýrði frá þvi aö Alois hefði gifst
aftur i þeirri fullvissu að hún og
Patrick hefðu verið drepin i
Zeppelin árás.
Upplýsingabæklingur er fyrir hendi í öllum afgreiðslum bankans.
Samvinnuhankinn
REYKJAVlK, AKRANESI. GRUNDARFIRÐI, KRÓKSFJARÐARNESI, PATREKSFIRÐI.SAUÐARKRÓKI, HÚSAVlK,
KÓPASKERI. VOPNAFIRÐI, EGILSSTÖOUM. STÖÐVARFIRDI, VlK I MÝRDAL, KEFLAVlK. HAFNARFIRÐI
Bridget Hitler 1939.
i Liverpool, reviunni og
heimsókninni til Þýskalands.
Hún hefur haft þó nokkurt
sjálfstraust, þvi hún lýsir sjálfri
sér sem ungri, fallegri og
glaðlegri konu og góðri móður.
Hana langaði að verða fræg,
vera i sviðsljósinu eins og mág-
ur hennar. Til þess þurfti fram-
takssemi og meö endurminn-
ingum sinum hefur hún e.t.v.
náð takmarki sinu.
(Þýtt og endursagt GÓ)
Sparivelta
SamvinnuL_______
Jafngreiðslulánakerfi
Samvinnubankinn kynnir nýja
þjónustu, SPARIVELTU,
sem byggist á mislöngum
en kerfisbundnum sparnaði
tengdum margvíslegum lána-
möguleikum.
Hið nýja spariveltukerfi er í 2 flokkum A og B,
sem bjóða upp á fjölda mismunandi lántökuleiða,
með fleiri
en einn reikning í Spariveltu-B
Fyrirhyggja í fjármálum
Lengri sparnaður leiðir til hagstæðara
lánshlutfalls og lengri lánstíma.
Ekki þarf að ákveða tímalengd
sparnaðar umfram 3 mánuði í
A-flokki og 12 mánuði í B-flokki.
Allir þátttakendur eiga
kost á láni með
hagstæðum
vaxta- og
greiðslukjörum.
Þátttaka í
SPARI-
VELTUNNI
auðveldar
þér að láta
drauminn rætast.
Markviss sparnaður = öruggt lán