Tíminn - 08.04.1979, Page 9
Sunnudagur 8. aprll 1979
9
Verða frímerki
aflögð árið 2000?
Frímerkjasafnarinn
Aö undanförnu hafa fariö
fram ýmsar tilraunir meö
hentugri leiðir til greiðslu
buröargjalda undir bréf en aö
kaupa frimerki til aö lima á
þau. Orsakir þessa eru m.a.
hinar öru burðargjaldahækk-
anir, sem hafa gert póststjórn-
um erfitt fyrir meö aö eiga
alltaf rétt burðargjöld á fri-
merkjum tiltæk. Hefir þetta átt
sér staö mun viðar en á tslandi.
Bandarikin uröu fyrir þessu á
s.l. sumri. Þá var innanlands-
burðargjald 13 cent, en póst-
málastjórnin viidi hækka i 16
cent og átti frimerki til þess.
Ráöuneytið samþykkti ekki
hækkun nema I 15 cent, svo
gripa varð til neyðarmerkja,
sem prentuö eru án verötölu.
Stendur aöeins A á merkinu sem
þýöir, aö þaö gildir fyrir A flokk
buröargjalda, sem sé innan
lands. Þaö er lika óheimilt aö
nota þau nema innanlands.
Þessi buröargjaldaflokkur i
Bandarikjunum var prentaöur I
milljónaupplagi 1975, ef til
svona aöstæöna skyldi koma,
sem nú varö. Þróun burðar-
gjalda i innanlandsburöar-
gjaldaflokki hefir hins vegar
verið mjög hæg þar vestra.
Hann var 2 cent 1885-1932, eða i
47 ár. 3 cent 1932-1958 eöa 26 ár. 4
cent 1958-1963 eöa 5 ár. 5 cent
aðeins til 1968, eöa önnur 5 ár. 6
cent til 1971, eða i 3 ár. 8 cent til
1974. 10 cent i eitt ár til 1975, en
svo 13 cent til 1978, en þá kom
stökkið upp i 15 centin, sem
vantaði frimerki fyrir. Þetta
gefur þeirri hugmynd byr undir
báöa vængi þar vestra, aö fækka
almennu burðargjaldaflokk-
unum og hafa bókstafi á fri-
merkjunum i stað talna. Hin
nýju verð séu siðan bókfærð hjá
pósthúsunum i bókhaldi á óseld-
um birgðum, þegar hækkanir
verða, eins og nú er á alþjóðleg-
um svarmerkjum.
Hin tilraunin sem mest hefir
borið á á sl. ári var gerð i
Noregi. Þar voru teknir upp
sjálfsalar, sem skiluðu úr sér
miðum með lími á bakhlið og
áprentaðir með verðupphæð
Ameriska neyðarmerkiö og
ásamt fyrsta dags stimplum.
þeirri er kaupandinn stillti inn á
á sérstakri skifu, eins og t.d. á
burðargjaldavélum. Siðan
verður viðkomandi að leggja þá
upphæð er hann hefir stillt inn á
i sjálfsalann og fær þá út miða
tilbúinn til að lima á bréfið,
sem hann ætlar að láta i póstinn.
Þetta var tilkynnt með góðum
fyrirvara.
Þessir sjálfsalar voru settir
upp þann 2. desember á 5 stöð-
um i Noregi, þ.e. i Oslo aðal-
pósti , Osló flugvelli , Bergen,
-Þrándheimi og Tromsö.
Miðana sem úr sjálfsölunum
koma á svo að lima á bréfin og
vitanlega þarf að stimpla þá,
svo að ekki sé hægt að nota þá
aftur. Þannig varð fyrsta dags
stimplun á þessum stöðum 2.
des. En nú voru góð ráð dýr.
Þetta voru ekki frimerki, svo að
Póststjórnin veitti enga þjón-
óstimplaður burðargjaldsmiði
ustu um að fá send bréf til
áskrifenda eða neitt slikt. Þvi
varð hver og einn að sjá um sig.
Samt varð mikið um stimplanir.
Norömenn kalla þetta
„Frankeringsetiketter” og
spyrja gjarna hvort söfnunar-
gildið sé yfirleitt fyrir hendi.
Póstsögulegt er þetta skref svo
að i slikum söfnum eiga þessi
bréf heima, en frimerki eru
þetta ekki,svo að varla eiga
þessir BURÐ ARGJALDS-
SEÐLAR eða BURÐAR-
GJALDSMIÐAR heima i kata-
logsöfnum. En eftirspurnin var
mikil strax og seljast nú þessar
fyrsta dags stimplanir á milli 50
og 100 norskar krónur stykkið.
Takist þetta vel, á að setja upp
slika sjálfsala viðar um landið
með vorinu.
Sigurður H. Þorsteinsson.
Bifvélavirkjar
Atvinna i boði úti á landi. Vantar góðan
bifvélavirkja eða vanan viðgerðarmann á
verkstæði til alhliða viðgerðarstarfa. Gióð
ibúð á staðnum.
Allar nánari upplýsingar gefur Haildór
Jóhannesson i gegnum simstöðina Viði-
gerði V-Húnavatnssýsiu eftir 8.
þ.m.
Verslunarstjóri
Óskum að ráða verslunarstjóra frá og
með 1. júni. Æskileg þekking kjötvinnslu.
Húsnæði á staðnum.
Umsóknir skilist fyrir 20. april. Upplýs-
ingar i sima 94-7708.
Kaupfélag önfirðinga Flateyri.
Orlofsbúðir
Umsjónarmaður
Óskum að ráða umsjónarmann við orlofs-
hús verkalýðsfélaga i Svignaskarði,
Borgarfirði, i sumar.
Umsjónarmaðurinn þarf að sjá um undir-
búning og snyrtingu húsanna áður en
orlofstimabilið hefst.
Æskilegt er að umsækjendur hafi kunn-
áttu i garðyrkju.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu
Iðju, simi 13082 og i sima 16438.
Skriflegar umsóknir sendist á skrifstofu
Iðju, félags verksmiðjufólks, Skólavörðu-
stig 16, fyrir 19. apríl n.k.
Orlofsbúðir, Svignaskarði.
r
|WdA Kodak
ektra22ef
myndavelin
MEÐ INNIBYGGÐU
EILÍFÐARFLASSI
Þessi nýtízkulega hannaöa myndavél
meö handfanginu er meö innibyggöu
eilífðarflassi, þannig að þú stillir
á flassmerkið og styður svo á takkann
og tekur allar þær myndir sem þig langar til.
Handfangið gerir vélina stöóugri
og hjálpar þér til að taka skarpari myndir.
Verð á vél í gjafaöskju
með 2 rafhlöðum og einni filmu:
Kr. 24.700.""
HANS PETERSEN HF
BANKASTRÆTI GLÆSIBÆ AUSTURVERI
S: 20313 S: 82590 S: 36161
Umboðsmenn um land allt