Tíminn - 08.04.1979, Page 25
Sunnudagur 8. apríl 1979
25
Esra S. Pétursson, læknir:
Sjúkrasögur
Stundum segjum vér læknar,
geðlæknar og sálgreinendur
sjúkrasögur til aö fræöa lækna-
nema og aðra. Ber oss þá um
leiðað gegna vandlega þagnar-
skyldunni. Gerum vér þaö með
þviaðbreiða yfir nafn og niimer
sjúklinga. Þarf að gera það all
rækilega ef duga skal.
Segi égtil dæmis að sjúkling-
urminn búi i Miðrikjum Banda-
rikjanna, er allt eins liklegt að
hanneigi heima á islandi. Lika
gæti hann búið i Suður- eða
Austurrikjunum eða þá i
Kanada, á þeim stöðum þar sem
ég hefl lifað og starfað. Segi ég
hann vera karl getur eins verið
að hann sé kona. Segi ég frá
fóstureyðingu vandast málið.
Ekki hendir hún karla. Verð ég
þá að vanda mig enn betur tíl að
dylja konuna, henni tíl verndar.
Telji ég hana vera lúterska
kann hún að vera gyöingur eða
múhammeðstrúar. Segi ég hana
marxista er hún ef til vill demo-
eða annars konar krati, eða þá
framsóknarkona. Stundum segi
égeinfaldlega satt. Meðþessum
hætti er útlokað að þér getið
borið kennsl á sjúkling, þótt frá-
sagan kunni að minna á ein-
hvern sem þér kannist við. Er
þá tilganginum náð og þagnar-
skyldan f heiöri höfð. Reynt er
að breiða yfir nafn og númer á
þann hátt að ekki raski það
kjarna og sannleika sjúkrasög-
unnar. Fær þannig sú vizka sem
I henni kann að vera að njóta
sin.
Framhaldssaga
Sjúkrasagan, sem ég hefi val-
ið fyrir yður, er nokkuð löng,
Veröur hún þvi framhaldssaga.
Valiðhefiég hana vegna þess að
hún lýsir i senn, kviða-, reiði-,
þunglyndis-, fikniefna- og
pislarsýki. Einnig kemur i' ljós i
henni talsvert launmont og ein-
angrunarsýki. Eg hefi orðið var
við þaö i lesendahópi minum aö
sumir eiga erfitt meö aö greina
og skilja vel launmont.
Sagan lýsir einnig framvindu
sálkönnunar i sjö ár og þeim
breytingum, sem urðu á sjúk-
dómum stúlkunnar. Sagan er
aðallega pislarsjúkrasaga.
Konuna nefiii ég hér Gunnu.
Gunna bjó I sinni sveit i
Chicago. Foreldrar hennar voru
langskólagengnir. Báðir voru
doktorar i liffræði. Einn bróður
átti hún, hálfu ööru ári eldri.
Gunna var fædd á árum siðari
heimsstyrjaldar. Faðir þeirra
var raunar aldrei sendur úr
landi þar eð hann dvaldi sem
hermaður i Texas. Móöir þeirra
flakkaði með þau á milli Texas
og Chicago. Reyndi hún að vera
nálægt manni sinum i Texas en
tolldi þar stutt vegna þess að
hún var svo háð móður sinni.
Gat hún ekki slitið „nafla-
strenginn” eða teygt nóg úr
honum tilaðlosna undan ráðriki
hennar. Vegna margs konar til-
finningabilana móður og föður
rikti mikið öryggisleysi og kviði
i fjölskyldunni. Styrjaldar-
ástandið jók mjög á kviðann.
Gunna var þvi afar óvær sem
hvitvoðungur, svaf illa og grét
alla nóttina og ældi móður-
mjólkinni. Var hún fljótt sett á
pela en það bættí ekki ástandið.
Magakrampar hennar héldu
áfram og eirðarleysi og vanlið-
an hennar var mikil. Gerðist
hún fljótt rellin og heimtufrek.
Móðurinni tókst ekki aö venja
hana á koppinn og gerði hún á
sigtil tiu ára aldurs. Þó að móð-
irin væri ágæt visindakona var
hún frámunalega léleg móðir,
eiginkona og húsmóðir. Faðir
hennar var strangtrúaður
Baptísta prestur, en sjálf var
hún trúleysingi, nema aö þvi
leyti sem hún trúði á sina vis-
indagrein.
Ekki var ástandiö betra I
föðurætt. Amman var oiðin
fjörgömul, en hún var svo
heimtufrek að allir uröuaðsitja
og standa eins oghenni þóknað-
ist. Notaði hún ekkjustand sitt
og aöra armæðu, sem hún hafði
orsakað eða hana hafði hent, til
að fá ættingjana til aö vorkenna
sér s vo hún gæti komiö vilja sin-
um fram. Mann sinn hafi hún
misst ung úr hjartaslagi og inn-
an árs lika elsta soninn, sem dó
úr hvitblæöi. Þö aö fjörutiu ár
væru liðin kæddist hún enn
svörtum sorgarbúningi. Ætlað-
ist hún tU þess að enginn i fjöl-
skyldunni eða frændaliöi hennar
mætti láta i ljós gleði né fagna
neinu i návist hennar. Hélt hún
þannig þungbúnu svartsýnis-
skýi yfir höfðum þeirra, eftir
þvi sem hún gat við komið.
Faðirinn var veifiskati og lé-
legur uppalandi. Fórnaði hann
öllu fyrir friöinn og hliðraði sér
ævinlega hjá þvi að takast á við
nokkurn vanda eða heyia
baráttu. Forðaðist hann þvi öll
átök ogleiddiallt hjá sér þar til i
mikið óefni var komið. Mynduð-
ust af þeim sökum pislarsýkis
leikir, sem allir fjórir nánustu
meðlimir fjölskyldunnar tóku
þátt i: húsbóndinn, húsmóðirin,
sonurinn og dóttirin.
Leikirnir hófust með striöni
og kerskni af hans hálfu, en öll
tóku fljótt undir og ögruðu hvor
öðru I tima og ótima. Bæði
Gunna hann um eitthvað, hvað
sem var, tíl dæmis að fá að fara
i afmæli vinstúlku sinnar, neit-
aði hann henni ávallt. Fór hún
þá að þrábiöja hann, nöldra og
sifra og lét hann ekki i friði. Að
lokum léthann þó tilleiðast eftir
mikið þjark og leyfði henni að
fara, en gerði mikið úr þvi að
hún hefðisærtsig með þrábeiðni
sinni. ól hann þannig eftir mætti
á sjúklegri sektarvitund henn-
ar. Sagan endurtók sig með
sama stefi viðbróðurhennar, en
meðöðrum tilbrigðum. Svipaðir
atburðir voru endurteknir I
nokkra daga eða fáeinar vikur.
Voru allir þá orðnir svo ergi-
legir að þeim lá við að springa.
Loks sprakk svo karl faðir
þeirra. Tók hann konu sina með
sér til vitnis. Hún þoröi þá
hvorki að æmta né skræmta og
gerði enga tilraun til aö vernda
börnin. Fór hann siðan með alla
fjölskylduna i svefnherbergi
hjónanna, tók af sér beltið og
lamdi börnin, annað eða bæði, á
bakið þannig að rauðar rákir
komu i húðina. Fyrst i stað
sagöi Gunna að þetta hefði verið
helber þjáning, en svo fór aö
brydda á þvi að nokkur kynæs-
ingur fylgdi þessu I allri fjöl-
skyldunni.
Gunna skammaðist sin svo
fýrir þetta að hún gat aldrei
komið sér til að segja neinum
frá þvi fyrr en eftir sex ára sál-
greiningu, tvö ár i Chicago hjá
ströngum Freud sálkönnuði og
siðan i fjögur ár hjá mér er hún
hafði flutt til New York.
Látum hér staðar numið að
sinni, en höldum væntanlega
áfram á fyrsta sunnudegi næsta
mánaðar. 1 þvi sambandi bið ég
lesendur velviröingar á þvi aö
mér tókst ekki að ljúka þessum
þætti I siðustu viku eins og ég
hafði vænzt.
Dráttarvél
Ford 6700 sem ný til sölu af sérstökum
ástæðum.
78 hö, dual power, hátt og lágt drif, tvöfalt aflúttak, stórir
hjólbarðar, öryggishús méð útvarpi, hentug til garð-
vinnslu fyrir verktaka o.fl.
Upplýsingar i sima 71034.
+
Eiginmaöur minn og faðir
Hreinn Þormar
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 10.
þ.m. kl. 1.30
Hulda Þormar _
Ottó, Hanna og Hreinn.
+
Innilegt þakklæti til allra þeirra, sem auðsýndu samúð og
hlýhug og heiðruðu minningu eiginkonu minnar, fóstur-
móður og systur,
Nönnu Egils Björnsson
Arnartanga 40, Mosfellssveit
Björn Sv. Björnsson
Guðrún Jónsdóttir
og systkini hinnar látnu.
%
■smiora
103 Daviðs-sálmur.
Lola [)u Drottin. sála min.
r>g alt. srm i mér er. hans heilaga nafn ;
loía Jju I »rottin. s.ila nun.
i.g glrvni < igi ii’ inum vdgjorðum haos.
BIBLÍAN
OG
Sálmabókin
Fást í bókaverslunum og
hjá kristilegu félögunum.
HIÐ ÍSL. BIBLÍUFÉLAG
(fjiiÖbmnböStofii
Hallgrimskirkja Reykjavlk
simi 17805 opiS3-5e.h.
Viljum kaupa LISTER rafstöð
10-15 kw, 220w, 50 riða i gangfæru standi.
Ennfremur vantar vatnshrút.
Bréflegt tilboð sendist Sigurði Jörgens-
syni P.O. box 394 Reykjavik, sem veitir
nánari upplýsingar i sima 91-24050 eða 91-
71021
Verslunarhúsnæði
Til sölu er Blómaskáli minn i Hveragerði
ásamt ibúðarhúsi, gróðurhúsum, sjoppu
með öllu tilheyrandi.
Blómaskáli með eða án sjoppu. Blóma-
skáli með eða án gróðurhúsa. Blóma-
skáli með eða án ibúðarhúss.
Ræktun i fullum gangi. Laust hvenær sem
er. Semja ber við Frank Michelsen Hvera-
gerði c/o Blómaskáli Michelsen. Uppl.
ekki gefnar i sima.
Paul V. Michelsen.
Stuðlið að skilningi
meðal þjóða
Kristileg alþjóða ungmennaskipti ICYE,
vantar heimili fyrir 13 erlenda skiptinema
sem koma i sumar. Þeir eru: 1 frá Belgiu,
2 Finnlandi, 3 Þýskalandi, 2 ítaliu, 1 Sviss,
1 Sviþjóð, 1 Ástraliu og 2 Bandarikja-
menn.
Nánari upplýsingar fást i Hallgrímskirkju (Barónstlgs-
megin) milli kl. 1 og 4 eftir hádegi. alla virka daga eöa á
sama tlma í sima: 24617.
ICYE.
Útboð
Verslunarrýml á Hlemmi
Tilboð óskast i verslunaraðstöðu I áningastað S.V.R. á
Hlemmi fyrir ljúfmeti („delikatessen”) (ávextir, græn-
meti, áiegg, mjóikurvörur, brauðvörur o.fl.)
Útboðsskilmálar og tilboðseyðublöð eru afhent á skrif-
stofu vorri og á skrifstofu S.V.R. á Kirkjusandi.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri aö Frikirkjuvegi 3
R, þriðjudaginn 24. april n.k. kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvagi 3 — Sími 25800
Nýkomnar
Einnig
Felgur á Fíat |yrij
127-128-125-132 LadO
G. S.
varahlutir
Ármúta 1A - Reykjavik - Slmi 365101