Tíminn - 06.06.1979, Qupperneq 15

Tíminn - 06.06.1979, Qupperneq 15
Miðvikudagur 6, júni, 1979 15 OOO0QQOQ Gústaf í Evrópuliðið — I lyftingum, sem keppir gegn Bandarikjunum I Finnlandi I sumar Gústaf Agnarsson. lyftingakappinn sterki, hefur verið vaiinn til að keppa fyrir hönd Evrópu I lyftingakeppni Evrópu og Bandarikjanna, sem fer fram f Tammerfors i Finnlandi dagana 7.-9. ágúst i sumar. Norðurlandaþjóðirnar voru beðnar að útnefna lyftingamenn i Evrópuliðið og var Gústaf valinn til að keppa i 110 kg flokknum i keppninni, en hann er Norðurlandameistari i þeim flokki Gaman að skora þýð- ingarmlkil mörk”.... — sagði SveinbjörnHákonarson sem skoraði „Hat-trick” þegar Skagamenn unnu KR I gærkvöldi 9 ára strákur velur landslið sitt iþróttasiðunni hefur borist bréf frá 9 ára knattspyrnu- áhugamanni — Benedikt Baidurssyni, Möörufelli 15, i Reykjavik þar sem hann velur það landslið gegn Sviss, sem hann telur sterkast. Landslið Benedikts er þannig skipað: Markvörður: Þorsteinn Bjarnason La Louviere. Bakverðir: Jón Pétursson Jönköping TraustiHarladsson Fram Miðverðir: Jóhannes Eðvaldsson Celtic. Marteinn Geirsson Fram. Miðvallarspilarar: Ásgeir Sigurvinsson Standard Lieges. Janus Guðlaugsson F.H. Atli Eðvaldsson Val Hörður Hilmarsson Val. Sóknarmenn Arnór Guðjohnsen Lokeren Pétur Ormslev Fram. Varamenn: Þorsjeinn Ólafsson Í.B.K. Pétur Pétursson Feyenoord Guðmundur Þorbjörnsson Val Viðar Halldórsson F.H. Ottó Guðmundsson K.R. Timinn þakkar Benedikt bréf- ið og gott val á landsliði. 2. deild Hávaðarok og leiðindaveður setti svip á 2. deildarkeppnina i knattspyrnu á laugardaginn. Þá fóru þessir leikir fram: FH — Magni........1:0 Þórir Jónsson skoraði mark FH-inga meö góöu langskoti, FH-ingar misnotuðu vitaspyrnu i leiknum — Viöar Halldórsson. Breiðablik — Þróttur N....0 0 Norðfirðingar fögnuðu mikið eftir þennan leik — enda máttu þeir þakka fyrir jafntefli. Reynir — Þór....1:0 Pétur Sveinsson skoraði mark Sandgerðinga, sem voru ákveön- ari i leiknum. Þórsarar sátu eftir meðsárt ennið — greinilegri víta- spyrnu var stoliö af þeim i leikn- um. Austri — Fylkir...1:1 Sigurbjörn Marinósson skoraði mark Austra úr vitaspyrnu og markvörður Fylkis, ögmundur Kristinsson, skoraöi markFylkis — einnig úr vitaspyrnu. Staðan er nú þessi I 2. deildar- keppninni: keppninni: FH................4 3 0 1 8:4 6 Breiöabl..........4 2 20 7:3 6 Selfoss...........3 210 10:2 5 Reynir............4211 4:3 5 Þór...............3 210 8:5 5 Fylkir............4 1 1 2 6:8 3 tsafj.............3 1 1 1 7:5 3 Austri............4 0 2 2 5:10 2 Þfóttur N.........3 0 1 2 1:4 1 Magni.............4 0 1 3 2:14 1 Markhæstu menn: Sumarliði Guðbjartss.Selfoss ... 5 GuðmundurSkarphéðinss.Þór .. 4 Andrés Kristjánss.lsafirði....3 Haf þór Helgason ,Þór..........3 Heimir Bergsson,Selfossi......3 Þórir Jónsson.FH...............3 — Það er alltaf gaman að skora mörk og sérstaklega ef þau hafa mikla þýðingu, sagði Sveinbjörn Hákonarson, hinn skotfasti ieik- maður Skagamanna, sem skoraði þrjú mörk — „Hat-trick”, þegar Skagamenn lögðu KR-inga að velli 3:1 á Laugardalsvellinum i miklum baráttuleik I gærkvöldi. Sveinbjörn gerði út um leikinn á þremur siöustu min. leiksins, með þvi að skora tvisvar sinnum og hefur hann skoraö 5 mörk I 1. deild i ár. Sveinbjörn opnaði einnig leikinn, er hann skoraði gott mark með þrumuskoti frá vitateig, eftir að Sigþór Ómars- son hafði leikið á tvo KR-inga og sent knöttinn til hans. Skagamenn réðu gangi leiksins i byrjun og voru þeir klaufar að skora ekki fleiri mörk — Matthias Hallgrimsson, klúðraði tveimur dauðafærum og Sigþór einu. KR-ingar sóttu i sig veðrið undir lok fyrri hálfleiksins og á 31. min. náðu þeir aö jafna metin — Sverrir Herbertsson brunaöi þá upp kantinn — lék á tvo Skaga- menn og sendi knöttinn til Vil- helms Freðriksen, sem skoraði með föstu skofí. Stuttu siðar var Sverrir aftur á ferðinni og sendi knöttinn fyrir mark Skaga- manna, bar sem Sveinbiörn Gnð- mundsson var og skallaði rétt framhjá. Matthias átti siðan skot I slá i byrjun síðari hálfleiksins og er eins og töframátturinn sé horfinn úr skónum hans. Seinni hálfleikurinn bauö mest upp á miðjuþóf og voru KR-ing- arnir öllu ákveönari — en undir lokin leit allt út fyrir að leiknum myndi ljúka með jafntefli. Þegar 3 min. voru til leiksloka átti Guö- jón Þórðarson sendingu fyrir mark KR-inga, þar sem Börkur Ingvarsson, miðvörður KR var — hann skallaði knöttinn frá, en varð fyrir þeirri óheppni, að skalla beint fyrir framan Svein- björn, sem skaut viðstöðulaust skoti — knötturinn þandi út neta- möskva Vesturbæjarliðsins. Glæsilegt skot hjá Sveinbirni, sem var siðan aftur á feröinni rétt fyrir leikslok, er hann skoraöi með föstu skoti 3:1, eftir sendingu frá hinum efnilega Kristjáni 01- geirssyni. Tveir leikmenn Skagamanna „Alltaf gott að vinna á útivelli” — sagði Hilpert, þjálfari Skagamanna „Það er alltaf gott að vinna sigur á útiveiii og það 3:1”, sagði Klaus-Jörgen Hilper, þjálfari Akurnesinga, eftir sigur þeirra yfir KR. Við vitum að við eigum mikia vinnu fyrir hönd- um I sumar og erum ákveðnir I að nota timann vel. Hilpert sagði að KR-ingar hefðu barist mjög vel og aldrei gefið Skagamönnum frið. Viö gerðum þau mistök i leiknum, að ætla að byrja að spila og berjast svo — það þýðir ekki hér á Islandi, þvi að menn verða að berjast fyrst og siöan að hugsa um spilið, sagöi Hilpert. —SOS voru bókaðir i leiknum, þeir Sveinbjörn og Jón Gunnlaugsson. MADUR LEIKSINS: Svein- björn Hákonarson. —SOS Óvæntur sigur Þróttar Nes. á Akureyri.... Leikmenn Þróttar frá Nes- kaupsstað komu skemmtilega á óvart I gærkvöldi á Akureyri, þegar þeir unnu þar sætan sigur yfir Þór. Þróttarar voru öllu lif- legri i leiknum og var sigur þeirra fyllilega verðskuldaður. Magnús Magnússon skoraði fyrra mark þeirra með giæsilegum skalla á 41. min. og siðan innsiglaði Bjarni Jóhannesson sigur þeirra úr vita- spyrnu I seinni hálfleik, eftir að Gunnar Austfjörð hafði fellt Erling Daviðsson gróflega inn i vitateig. —GS Ottó putta- brotnaöi... Ottó Guðmundsson, landsliðs- maður úr KR, varð fyrir þvi ó- happi I gær, er hann var við vinnu, að hann puttabrotnaði og er nú með hendi I gifsi. Ottó var þvi f jarri góðu gamni I gærkvöldi og einnig félagar hans örn Guðmundsson og Sig- urður Pétursson, sem voru i leikbanni. -SOS , Hugi setti 2 met i Hveragerði Hugi Harðarson, hinn efni- legi sundmaður frá Selfossi, setti tvö ný Islandsmet i sundi i Hveragerði á laugardaginn. Hugi setti met I 200 m bak- sundi, er hann synti vega- lengdina á 2:16.3 min. og siöan setti hann met i 400 m bak- sundi — 4:53.0 min. Árni varð holl- enskur meistari Arni Sveinsson, landsliðsmaðurinn sterki frá Akranesi, varð hollenskur meistari í knattspyrnu á mánudaginn, þótt hann hafi verið þann dag í góðu yfirlæti á Akranesi. Astæðan fyrir þvi að Arni varö meistari, er sú að hann lék um tlma I vetur með hollenska 2. deildarliöinu Excelsior, sem tryggði sér sigur I 2. deild og þar með sæti I 1. deildarkeppninni I Hollandi. Arni lék f jóra leiki með liðinu, sem bakvörður og mið- vallarspilari — skoraði 2 mörk. Exceísior hefur boöið Arna að koma til Hollands og gerast at- vinnumaður með félaginu, sem hefúr aösetur sitt I Rotterdam. Arni er að kanna það tilboð og mun ekki gefa ákveöið svar fyrr en I haust. —sos Arni Sveinnson

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.