Tíminn - 09.06.1979, Síða 2
2
Laugardagur 9. Júni, 1979
Ellefu manns sækja um
starf dagskrárstjóra
lista- og skemmtideildar
AM — Ljóst er nú aö ellefu manns
hafa sótt um stööu dagskrár-
stjóra lista og skemmtideildar
sjónvarps. Umsækjendur eru
þessir
Bryndis Schram, fædd 1938.
Bryndis hefur numið lista og leik-
húsfræði erlendis og innanlands
og starfað við Þjóðleikhúsið um
árabil og enn við kennslu og
blaðamennsku.
Erlingur G. Gislason fæddur
1933, Erlingur hefur lagt stund á
leiklistarnám he'rlendis og er-
lendis og verið fastráðinn leikari
við þjóðleikhúsið um árabil.
Erlingur E. Ilalldórssonfæddur
1930. Nam leikhúsfræöi i Frakk-
landi og Austurriki og hefur lagt
stund á kennslustörf, ásamt leik-
stjórn og ritmennsku.
Eiinborg Stefánsdóttir Fædd
1947, nam bókmenntir og kvik-
myndafræði i Frakklandi. Störf
að fararstjórn og kennslu, fast-
ráðinn dagskrárgerðarmaður i
lista- og skemmtideild frá 1975.
Hinrik Bjarnason fæddur 1934.
Hefur starfað við æskulýðsmál,
kennslu og enn að gerð margvis-
legs sjónvarpsefnis.
Hrafn Gunnlaugsson, fæddur
1948. Leiklistarfræðinám i Svi-
þjóð, ásamt námi i sjónvarps og
kvikmyndagerö. Störf við útvarp,
sjónvarp og leikhús, fastráðinn
leiklistarráðunautur hjá sjón-
varpi frá 1978.
Jens Pétur Þórisson, fæddur
1949. Próf i þjóðfélagsfræðum
1974. Störf að kennslu, skrifstofu
og rannsóknastörfum.
Jón örn Marinósson, fæddur
1946. Lögfræðingur frá Hl. Störf
að kennslu, blaðamennsku og
fréttamennsku við útvarp.
Ragnar Jónsson, fæddur 1956.
Nám við Tónlistarskóla Rvk.
Tónmenntakennari við MK og Tl.
Fastráðinn dagskrármaður i tón-
listardeild útvarps frá 1978.
Ragnhildur óskarsdóttir,
(Róska) fædd 1947. Listnám við
skóla á Islandi, Prag, og Paris.
Lektor við Rikisháskólann i
Milanó og störf við iðnaðarráðu-
neytið i Róm og italska sjónvarp-
ið Hefur unnið sjálfstætt við lista-
verkasýningar og kvikmyndir.
Tage Ammendrup.fæddur 1927.
Menntun frá Tónlistarskólanum i
Reykjavik. Störf við eigið fyrir-
tæki i 23 ár og fastráðinn dag-
skrárgerðarmaður hjá stjónvarpi
frá stofnun þess. Undanfarin ár
fulltrúi núverandi dagskrárstjór
og staðgengill i fjarveru hans.
RÍKISSPÍTALARNIR
Lausar stöður
KLEPPSSPÍTALINN
Staða SÁLFRÆÐINGS við áfengis-
deildir Kleppsspitala er laus til
umsóknar. Staðan veitist frá 16.
júli n.k. Umsóknir er greini frá
aldri, menntun og fyrri störfum
sendist Skrifstofu rikisspitalanna
fyrir 9. júli n.k. Upplýsingar veitir
yfirsálfræðingur Kleppsspitalans i
sima 38160.
KÓPAVOGSHÆLI
Staða SÁLFRÆÐINGS við Kópa-
vogshæli er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. sept. n.k.
Umsóknir er greini frá aldri,
menntun og fyrri störfum sendist
Skrifstofu rikisspitalanna fyrir 1.
ágúst n.k. Upplýsingar veitir yfir-
sálfræðingur Kópavogshælis i sima
41500
Reykjavik, 10, júni 1979.
SKRIFSTOFA
RSKISSPÍTALANNA
Eiriksgötu 5 — Sími 29000
Frá Héraðsskólanum
á Laugarvatni
Umsóknarfrestur um skólavist er til 30.
júní.
í skólanum er 8. og 9. bekkur og fram-
haldsdeildir. Upplýsingar hjá skólastjóra.
Simi: 99-6112.
Frá Tónlistarskóla
Borgarfjarðar
Kennara i pianóleik og tónmennt vantar
að skólanum i haust. Organistastarf i
Borgarnesi einnig laust til umsóknar.
Upplýsingar i sima 93-7021.
Kosningar til Evrópuþings:
Fáfræði og áhuga-
leysi meginástæða
fyrir dræmri kjörsókn
Haag/Reuter —Hollenskir fjöl-
miðlar lýstu yfir I gær, að þeir
teldu aö litil vitneskja og áhuga-
leysi, sérstaklega meðal yngra
fólks, væru helstu ástæöur fyrir
þvi hversu dræm kjörsókn var i
gær i kosningunum til Evrópu-
þings.
Dagblaðið de Telegraaf i
Amsterdam útskyrði að hin lé-
lega kjörsókn I Hollandi (u.þ.b.
58%), og öðrum löndum væri á-
fall fyrir þróun sameiningar
Evrópu.
Málgagn frjálslyndra i Rott-
erdam, „Algemeen dagblad”,
sagði, að hin dræma kjörsókn
sannaði, að evrópsk samvinna
siðan 1952 hefði ekki vakið á-
huga kjósenda. Blaðið segir
einnig, að upplýsingaherferðin,
sem kostaði offjár, hafi mistek-
ist og pólitiskum flokkum hafi
ekki tekist að virkja stuðnings-
menn sina með þvi að gefa þeim
ekki nógu góða mynd af
evrópsku samfélagi.
Alþjóðleg
flugvélasýn-
ing í Rarís
Paris/Reuter — i dag hefst í París alþjóðleg flug-
tfélasýning þar sem amerískir og evrópskir flug-
vélaframleiðendur sýna og
þetta sölusýning.
Á sýningunni verða meira en
250 farþega- og herflugvélar á
,,Le Bourget” flugvellinum i
Paris, til sýnis ýmist á lofti eða
á jörðu niðri. Engar DC-10 þotur
verða á sýningunni.
kynna flugvélar sínar. Er
Sýningin stendur yfir i 10 daga
og mun Giscard d’Estaing for-
seti opna hana.
Búist er við meira en milljón
gestum á sýninguna, þeirra á
meðal er Hússein Jórdaniukon-
ungur.
Valery Giscard d’Estaing, for-
seti Frakklands, mun á morgun
opna alþjóölegu flugvélasýning-
una I Paris.
Carter
Flugfreyjur
yfirbuguðu
flugræningja
Astralia/ Reuter — Fjórar ung-
ur flugfreyjur yfirbuguöu vopn-
aðan flugræningja, sem hélt
þeim sem gislum I flugvél á
Brisbane-flugvelli í Astraliu I
gær.
Stúlkurnar, sem allar eru um
tvitugt, réðust á flugræningjann
eftir að hann hafði haldið þeim i
farþegarými flugvélarinnar I
u.þ.b. klukkustund. Tókst þeim
að halda honum þangað til hjálp
barst.
Aður hafði flugræninginn leyft
41 farbega að yfirgefa vélina.
Ræninginn, sem er af skosk-
um uppruna, er i gæsluvarð-
haldi.
Carter leyfir fram-
leiðslu á nýrri
kj arnorkueldf laug
Washington/ Reuter —
Tilkynnt var i Hvita hús-
inu í gær, að Carter for-
seti haf i ákveðið að leyfa
framleiðslu á fyrstu nýju
kjarnorkueldflauginni/
sem framleidd er á þess-
um áratug.
Haft er eftir áreiöanlegum
heimildum, að Carter muni
kynna þessaákvörðun sína fyrir
Leonid Brésnjéf, þegar þeir
hittast i Vin 15. júni til að undir-
rita Salt II samninginn.
Starfsmenn varnarmálaráðu-
neytisins sögðu, aö ákvörðunin
mundi valda þingmönnum von-
brigðum, en aftur á móti auð-
velda stjórninni að vinna aöra
þingmenn til fylgis við Salt II.
Erlendar
fréttir
Umsjón:
Gunnhildur
Oskarsdóttir