Tíminn - 09.06.1979, Side 3
Laugardagur 9. Júnl, 1979
3
Olíureikningurinn tvöfaldast i ár:
Verður 50 milliarðar kr.
Kás — „Á árinu 1978 greiddum
við um 20 milljarða kr. fyrir inn-
flutt eldsneyti en i ár eru horfur á
að oliureikningurinn verði sam-
tals um 50 milljarðar króna, eða
meira en tvöfaldist milli ára, að
visu mælt i verðminni krónum.
Þessi útgjaldaauki þjóðarbúsins i
erlendum gjaldeyri nemur þann-
ig um eða yfir 1/2 milljón króna
umreiknaðá fjögurra manna fjöl-
skyldu,” sagði Hjörleifur Gutt-
ormsson, orkuráðherra, á aöal-
fundi Sambands Isl. rafveitna.
„Þrátt fyrir miklar orkulindir i
landinu erum við algjörlega háðir
innflutningi á eldsneyti enn sem
komið er, og að magni til vegur
innlend og innflutt orka nokkurn
veginn salt með 50.4% innflutta
orku á móti 49.6% á árinu 1977, ef
miðað er við nýtingu jarövarma
niður I +5 gráður C. Þvi hafa
verðhækkanir á innfluttri orku
gifurleg áhrif á atvinnurekstur
og afkomu heimila og einstak-
linga, þótt i mjög misjöfnum
mæli, se, og er það misvægi ekki
Stokkseyrarbnminn
siður áhyggjuefni en sá hnekkir,
sem þjóðarbúiö I heild verður
fyrir,” sagði Hjörleifur viö sama
tækifæri.
Frá upphafi vorfundar ETC á Hótel Sögu, er Heimir Hannesson formaöur Feröamálaráðs Islands og
einn af varaforsetum samtakanna flutti ávarp. Tlmamynd GE.
Vorfundur ETG I Reykjavfk:
Markaðsmálin efst á baugi
FI — Arlegur vorfundur Europ-
ean Travel Commission, ETC, er
nú haldinn I Atthagasal Hótel
Sögu, en ETC er samstarfsnefnd
opinberra feröamálaaöila 23
landa i Vestur-Evrópu.
Aðaluniræðuefni fundarins
verða markaðsmál, og munu um-
ræður einkum beinast að þremur
þýðingarmiklum löndum, Banda-
rikjunum, Kanada og Japan. ETC
ver nú talsverðum fjármunum til
sameiginlegrar kynningar- og
auglýsingastarfsemi á þessum
mörkuðum. Búist er við 6% ferða-
mannaaukningu frá Bandarikj-
unum til Evrópu árið 1979 miðað
við árið 1978. — þó hefur banda-
riskum ferðamönnum til Evrópu
lítillega fækkað sé litið á þrjá
fyrstu mánuði ársins. Einnig mun
verða lögð mikil áhersla á að
opna nýja markaði I Suður-
Ameriku, Ástraliu og Miðaustur-
löndum.
Forseti samtakanna, Georges
Hauserner, stjórnar vorfundin-
um, en forystumenn ETC koma
saman til fundar tvisvar á ári,
vor og haust. Slikur fundur er nú I
fyrsta sinn haldinn hér á landi, en
formaður Ferðamálaráðs Is-
lands, Heimir Hannesson, er einn
af varaforsetum samtakanna.
Játaði
íkveikju
gæsluvarðhaldið framlengt um mánuð
GP — Stokkseyringurinn tvitugi,
sem grunaður var um að hafa
orðið valdur að stórbrunanum i
frystihúsinu á Stokkseyri i siðustu
viku, hefur játað á sig sökina og
hefur gæsluvarðhald hans veriö
framlengt til 4. júli n.k.
Fulltrúi sýslumannsins á Sel-
fossi, Karl Jóhannsson en hann
stjórnar rannsókninni i samvinnu
við Rannsóknarlögreglu rikisins.
sagði i samtali við Timann i gær
að rannsókninni yrði enn haldið
áfram jafnvel þó að játning liggi
fyrir. Aðrar upplýsingar vildi
hann ekki gefa.
Maðurinn hafði unnið i frysti-
húsinu en verið sagt upp störfum.
Mun það hafa verið ætlun hans aö
gera stjórnendum frystihúsins
smáskráveifu sem siöan breyttist
i stórtjón og illbætanlegt.
Starf kaupfélagsstjóra
við Kaupfélag Þingeyinga Húsavik er
laust til umsóknar.
Umsóknir sendist fyrir 1. júli til formanns
kaupfélagsstjórnar Teits Björnssonar á
Brún, sem veitir nánari upplýsingar.
Stjórnin
Um þessar mundir eru 25 ár liðin
frá þvi aö Skálatúnsheimiliö i
Mosfellssveit tók til starfa og
efndi stjórn heimilisins af þvi til-
efni til kaffisamsætis fyrir vel-
unnara þess og aöra gesti. Viö
þaö tækifæri afhenti Magnús
Kristinsson og dætur hans tvær,
Ágústa Kristin og Soffia heimil-
inu höggmyndina „Samspil”
geröa af Helga Gislasyni, og
stendur hún nú viö aöalinngang
nýrra vistmanna hússins. Einnig
bárust góöar peningagjafir.
Skálatúnsheimilið 25 ára
Ljóðabók Steinunnar Sigurðardóttur
Út er komin ljóðabókin Verks-
ummerki eftir Steinunni Sigurð-
ardóttur skáldkonu. Verksum-
merki er þriðja ljóðabók Stein-
unnar. Fyrsta bók hennar, Slfell-
ur, kom út 1969, og árið 1971 gaf
hún út bókina Þar og þá. Steinunn
hefur hlotið mikla viðurkenningu
fyrir ljóð sln og þykir I fremstu
röð meðal yngri skálda.
Verksummerki er 76 blaðsiður
og skiptist I sex þætti: Dagar og
svo framvegis, Oti og inni,
Komdu, Gróöur himins og jarðar,
Þjóðsögur, Fullyrðingar.
Bókin er prentuð I Prentsmiðj-
unni Hólum. Erna Ragnarsdóttir
gerði kápu, en á baksiðu er ljós-
mynd sem Friðþjófur Helgason
hefur tekið. Ctgefandi er Helga-
fell.
Steinunn Sigurðardóttir fæddist
I Reykjavik árið 1950. Hún lauk
prófi I sálarfræði og heimspeki I
Dyflinni árið 1972, en hefur siðan
starfað sem fréttamaður.
A myndinni eru frá hægri:
Magnús Kristinsson, stjórnar-
maöur heimilisins, Einar Hólm
Helgason, forstööumaöur þess,
Soffia Magnúsdóttir, Siguröur
Jónsson, húsasmiöam.,
Agústa Kristin Magnúsdótt-
ir, Jón Sigurösson, stjórnarform:
og Páll Kolbeins, stjórnarm.
Á Skálatúnsheimilinu dveljast
nú 57 vistmenn á aldrinum 5-51
árs, af báðum kynjum, en þeir
voru 17 I upphafi rekstrarins.
Heimilinu er skipt I þrjár vistir
eftir þroska vistmanna. Daglega
koma 46 vistmenn til þjálfunar og
•kennslu I hið nýja vinnu- og þjálf-
unarhús, sem starfrækt er frá kl.
9.15 virka daga. Reynt er aö raða
nemendum I hópa eftir getu og
þroska, og einstaklingsmeðferö
veitt eftir þvi sem hægt er. Um
þennan þátt starfsins sjá 16
manns. Talkennari veitir tal-
kennslu og sumir nemendur fá
bóklega kennslu. Handavinnu-
kennslan er rikur þáttur I starfinu
og smiðakennsla hefur verið frá
sl. hausti. Ýmis verkefni fyrir
fyrirtæki eru unnin I vinnustof-
unni. Þá hefur og verið nokkur
kennsla I matreiðslu.
Átta af vistmönnunum hafa
verið þjálfaöir til aö ferðast sjálf
bjarga með almenningsvögnum
og fara þeir daglega til Reykja-
vikur I skóla og vinnu. Reynt er
aö gæöa Ilf hvers einstaklings
þeirri fyllingu sem auðið er og
opna þeim, sem getu hafa, leiö úr
Skálatúni út i þjóðfélagið.
Arkitektar
Verkfræðingar
Byggingariðnaðarmenn
Sérfræðingur frá danska fyrirtækinu Hot-
aco verður til viðtals um TAKODEK-þak-
einingar, TACOFLEX-þakpappa og
TARNIT-eldvarnarplötur og fleiri þakefni
á skrifstofu vorri þriðjudaginn 12. og mið-
vikudaginn 13. þessa mánaðar. Vinsam-
legast hafið samband við skrifstofu vora
Holtagörðum simi 81266,
Samband ísl. samvinnufélaga
Innflutningsdeild
Holtagörðum Rvík Sími 81266
Erindi F Norræna húsinu:
Þróun iðntaekni
þjónustu í Danmörku
Forstjóri Jydsk Teknologisk Institut i
Árósum, Jörgen Ladegaard, mun halda
erindi i Norræna húsinu nk, fimmtudag 14.
júni kl. 16:00 um þróun iðntækniþjónustu i
Danmörku. Allir, sem áhuga hafa á þróun
islensks iðnaðar og iðntækniþjónustu hér á
landi eru velkomnir.
Iðntæknistofnun íslands