Tíminn - 09.06.1979, Side 4
4
Laugardagur 9. Júni, 1979
í spegli tímans
Afþakkaði launahækkun
er því atvinnulaus!
Það kann ekki góðri
lukku að stýra að neita
að taka við kauphækk-
un þegar manni er rétt
hún. Það fékk hann að
reyna hann Andy
Bavas ráðgjafi hjá
heilbrigðis- og mennta-
málaráðuneytinu
bandariska. Fyrir sex
mánuðum ákvað Andy
sem þá hafði 43.000
dollara árslaun að
hann hefði enga þörf
fyrir þá 1272 dollara
kauphækkun sem hon-
um bar. Hann skrifaði
því yfirmanni sínum
og tjáði honum ákvörð-
un sína. Yfirmaðurinn
varð sem steini lostinn,
hafði aldrei lent í siíku
fyrr og sagði Andy að
það væri andstætt lög-
um að taka ekki á móti
launahækkun. En þar
með var málinu ekki
lokið. Þrem mánuðum
siðar var Andy Bavas
tjáö að hann yrði flutt-
ur úr starfi sínu í
Chicago til Phila-
delphia í starf sem
væri mörgum launa-
flokkum neðar en það
starf sem hann hafði
gegnt í Chicago. Sam-
kvæmt reglum má
lækka menn i tign og
launum innan ráðu-
neytisins. Þessu undi
Andy illa enda litur
hann á Chicago sem
sinn heimabæ og þar á
hann vinkonu sem
hann hefur verið með i
16 ár. Hann hefur því
beðið lögfræðing sinn
að athuga hvort ekki
séu einhverjar stöður
við hans hæfi lausar i
Chicago en án
árangurs svo að hann
sagði hreinlega upp.
Afleiðingin af þessu
brölti hans varð sem
sagt sú að nú situr
hann uppi atvinnulaus.
bridge
Fyrir u.þ.b. 30 árum lék meiri ljómi um
bestu bridgespilarana en gerir nú á tim-
um. Menn fylltust hálfgerðri lotningu við
að lesa um snilld Culbertsons, Gorens eða
S.J. Simons og um þá sköpuðust ýmsar
þjóðsagnir. Litrikasti spilarinn á þessum
árum var ef til vill Austurrikismaðurinn
Karl Schneider. Hann þótti með af-
brigðum hugmyndarikur og um hann
hefur verið sagt að hann hafi verið eini
maðurinn i heiminum sem tókst að kom-
ast niður á spilum i bestu legu, þvi hann
spilaði alltaf upp á þá verstu. Spilið hér á
eftir sýnir að það er sitthvað til i þessu en
það spilaði Schneider á heimsmeistara-
mótinu 1953.
Norður
S K76
H DG102
T A6
L AG32
Vestur
S A85
H 4
T 953
L K109865
Austur
S G94
H 3
T KDG10872
L D7
Suður
S D1032
H AK98765
T 4
L 4'
Schneider spilaði sex hjörtu i norður og
fékk út tigulkóng. Eins og sést liggur vel i,
spilinu: spaðagosi er réttur og spaðinn 3-
3. En Schneider fann leið sem var meira
fyrir augað en einhver hversdagsleg
spaðasvining. Hann tók fyrsta slag á ás-
inn og trompaði tigul. Siðan tók hann lauf-
ás og trompaði lauf, spilaði trompi á
drottningu og trompaði meira lauf, spilaði
enn trompi á gosann og trompaði siðasta
laufið. Nú spilaði hann spaðadrottning-
unni sem vestur drap á ásinn. Og nú átti
vestur að vera endaspilaður samkvæmt
útreikningum Schneiders. en honum til
mikillar furðu reyndist það vera austur en
ekki vestur sem átti spaðagosann. A hinu
boröinu voru Amerikanarnir litt frjóir.
Fyrir utan að vera aðeins i fjórum hjört-
um unnu þeir meira að segja sex.
krossgáta dagsins
Lárétt
1) Maður. 6) Alasi. 8) Keyra. 9) Tek. 10)
llát. 11) Grænmeti. 12) Máttur. 13) Stök
15) Fuglinn.
Lóörétt
2) Ófriö. 3) Leit. 4) Yfirgefinn. 5) Tuðra 7)
Fjárhirðir. 14) Þófi.
Ráðning á gátu No. 3034
Lárétt
1) Astar. 6) Tón. 8) Ala. 9) Der. 10) LIV.
11) Nál. 12) Auð. 13) Urr. 15) Fráir.
Lóörétt
2) Stallur. 3) Tó. 4) Andvari. 5) Barns. 7)
Gráöa. 14) Rá.
— Hér hefur ekkert breyst, elskan, ég
verö aö vinna frameftir f kvöld.