Fréttablaðið - 13.11.2006, Blaðsíða 1
Smáauglýsingasími
Við Grafarvoginn fyrirfinnst hverfi semer eins og lítið þorp í miðri borg. Þettaer Bryggjuhverfið.
Bryggjuhverfið er einstakt hverfi þar sem fá
má smjörþefinn af stemningu sjávarþorpa.
Húsin er einnig máluð í ýmsum litum sem
eykur á smábæjarbrag hverfisins. Kittý
Johansen er ein þeirra sem búið hefur í
hverfinu en flytur sig nú um set.Íbúð Kittýjar við Básb jen þ
maður búi í einbýli. Það er sérinngangur og
gengið beint inn af götu og bílastæðin eru
beint fyrir utan. Svo er engin sameign að
þrífa sem mér finnst rosalega mikill kost-
ur.“
Þegar gengið er inn í íbúðina er komið inn
í flísalagða forstofu með skáp. Þar inn af er
rúmgóð og stór stofa og er útgengt í garðinn.
Í eldhúsinu er mahóní-innrétting með upp
þvottavél og mósaíkflísská Á
Opinn framhaldsfundur SI um nýja
skýrslu auðlindanefndar á Grand
Hótel þriðjudaginn 21. nóv. nk.
Sjá dagskrá
á www.si.is
Er sátt
í sjónmáli?
HEIMSFRUMSÝND
17.11.2006
www.midi.is/bio
FORSALAN Á NÝJU
JAMES BOND MYNDINA
ER HAFIN Á MIDI.IS/BIO
Leið alltaf vel í
Bryggjuhverfinu
Sjá fram á erfiða tíma Þátturinn hefur mótað
mig og agað
„Það er augljóst að
Framsóknarmilljarðurinn er týnd-
ur og tröllum gefinn. Framsóknar-
flokkurinn stendur nú frammi
fyrir því að hafa blekkt þúsundir
Íslendinga með fyrirheitum
sínum,“ segir Björgvin G. Sigurðs-
son, þingmaður Samfylkingarinnar,
um niðurstöðu athugunar Frétta-
blaðsins á framlagi stjórnvalda til
forvarna í áfengis- og vímuefna-
málum. Sú athugun leiddi í ljós að
framlagið hefur dregist saman um
7,3 prósent á tímabilinu 2000-2006
ef miðað er við verðlag dagsins í
dag.
Í aðdraganda alþingiskosning-
anna árið 1999 lofaði Framsóknar-
flokkurinn milljarði til baráttunn-
ar gegn fíkniefnum og hafa
talsmenn flokksins margoft sagst
hafa uppfyllt það loforð.
Bein framlög til forvarna í þess-
um málaflokki eru afgreidd í gegn-
um Forvarnasjóð, en hann heyrir
undir Lýðheilsustöð. Núvirði fram-
lagsins í sjóðinn árið 2000 er 93,3
milljónir króna en í fjárlögum árs-
ins 2006 er það framlag 86,5 millj-
ónir. Það þýðir að raunlækkun á
framlagi í sjóðinn er 6,8 milljónir
króna á tímabilinu.
Helmingurinn af því ráðstöfunar-
fé sem sjóðurinn hefur til umráða
hverju sinni er nýttur í innanhúss-
verkefni hjá Lýðheilsustofnun
tengd áfengis- og vímuefna-
forvörnum auk launagreiðslna
og kostnaðar við rekstur sjóðs-
ins. Afganginum er skipt milli
grasrótarsamtaka og annarra aðila
sem sækja um styrki úr sjóðnum.
Í ár sóttu 82 aðilar um og fimmtíu
þeirra fengu styrki. Þeim var gert
að skipta 43,3 milljónum á milli
sín. Meðalframlag til hvers og eins
var því 866 þúsund krónur.
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis-
ráðherra segir það of þrönga nálg-
un að einblína á eitt atriði þegar
forvarnir í þessum málaflokki séu
skoðaðar og telur að forvörnum sé
ágætlega sinnt hér á landi.
Framlög lækkuð til
fíkniefnaforvarna
Framlög ríkisins til forvarna vegna áfengis- og vímuefnamála hafa lækkað frá
árinu 2000 að raunvirði. Framsókn blekkti Íslendinga með fyrirheitum sínum
um milljarð til baráttunnar gegn fíkniefnum, segir þingmaður Samfylkingar.
Mahmoud Zahar,
utanríkisráðherra Palestínustjórn-
ar, féllst í gær á tillögu frá araba-
ríkjum um að haldin verði friðar-
ráðstefna í Egyptalandi þar sem
reynt verði að finna lausn á deil-
unni við Ísraelsríki.
Zahar er meðlimur í Hamas-
samtökunum, en þetta er í fyrsta
sinn sem þau ljá máls á því að semja
um frið við Ísrael. Samtökin hafa
jafnan neitað að viðurkenna
tilverurétt Ísraelsríkis, en þau hafa
á hinn bóginn verið til í að semja
um vopnahlé til langs tíma.
Mark Regev, utanríkisráðherra
Ísraels, sagði aftur á móti í gær að
Ísraelar gætu ekki átt nokkrar við-
ræður við Hamas fyrr en samtökin
hefðu viðurkennt tilverurétt Ísra-
els og hafnað því að beita ofbeldi
gegn Ísrael.
Zahar sótti í gær, í fyrsta sinn
frá því Hamas-samtökin náðu
meirihluta í Palestínu á síðasta ári,
fund utanríkisráðherra arabaríkj-
anna, sem haldinn var í Kaíró í
gær.
Ráðherrarnir samþykktu að
efna til friðarráðstefnu með þátt-
töku arabaríkja, Ísraels og fasta-
fulltrúum Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna til þess að semja um frið í
deilu Ísraela og araba, sem reistur
yrði á grundvelli ályktana Samein-
uðu þjóðanna og því meginatriði að
Ísraelsríki afhendi hertekin svæði í
skiptum fyrir frið.
Palestínumenn hafa fallist á
að taka þátt í friðarráðstefnu
Vísindamenn í
Þýskalandi telja sig hafa fundið
ástæðu þess að um 1.500 evruseðl-
ar af mismunandi verðgildi
molnuðu í sundur í höndum
eigenda sinna skömmu eftir að
þeir voru teknir úr hraðbönkum
víða um landið.
Efnagreining leiddi í ljós að á
flestum seðlunum voru örsmáir
amfetamínkristallar og er það
talið benda til þess að fíkniefna-
neytendur hafi rúllað þeim upp í
vafning og notað til að sjúga
amfetamín upp í nef sér. Þegar
efni sem eru í amfetamíni
blandast við svita myndast sýrur
sem vísindamenn telja að hafi
leyst seðlana upp.
Evrurnar tól til
fíkniefnaneyslu
Tvíburar á leikskólaaldri og
karlmaður á sextugsaldri
slösuðust lítillega í nokkuð
hörðum fjögurra bíla árekstri á
gatnamótum Reykjanesbrautar og
Arnarnesvegar. Áreksturinn varð
um klukkan hálf sjö í gærkvöldi.
Að sögn lögreglu vildi það
börnunum til happs að þau voru í
bílstólum.
Tildrög slyssins eru óljós.
Grunur leikur þó á að einhver hafi
ekið gegn rauðu ljósi. „Það eru
umferðarljós á gatnamótunum
þannig að það er kannski hægt að
leggja saman tvo og tvo,“ sagði
varðstjóri lögreglunnar í Kópa-
vogi. Draga þurfti þrjá bíla af
vettvangi.
Þrír slösuðust í
hörðum árekstri