Fréttablaðið - 13.11.2006, Qupperneq 6
www.bifrost.is imíSsenragroB113 0003334
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum
samtakanna.
2. Breytingar á félagslögum.
3. Kosning fulltrúa í stjórn Háskólans á Bifröst.
4. Kynning á starfsemi Háskólans á Bifröst.
Stjórn NSS-Hollvinasamtaka
Aðalfundur
NSS-Hollvinasamtaka
Aðalfundur NSS- Hollvinasamtaka Háskólans á Bifröst
verður haldinn mánudaginn 27. nóvember 2006
kl. 20:30 á Grand Hóteli í Reykjavík.
4842 kusu í sameiginlegu prófkjöri
Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum
tveimur á laugardag. 7400 Reykvíkingar eru
skráðir í Samfylkinguna og miðað við þá tölu var
kjörsókn rúmlega 65 prósent. Hins vegar gátu
óflokksbundnir einnig kosið ef þeir skrifuðu
undir stuðningsyfirlýsingu við framboðið.
Sigurður Ásbjörnsson, formaður kjörstjórnar,
segir tölur um það hversu hátt hlutfall þeirra
sem kusu voru óflokksbundnir ekki liggja fyrir
að svo stöddu. Kosning í þrjú efstu sætin er
bindandi.
Jóhanna Sigurðardóttir, sem sóttist eftir 2. til
3. sætinu eins og Össur Skarphéðinsson, hlaut
einungis 1272 atkvæði í 1. til 2. sætið, á móti
2854 atkvæðum Össurar. Össur lenti í öðru sæti
og mun því leiða listann í hinu kjördæminu.
Hann hlaut næstflest atkvæði í fyrsta sætið, eða
767, sem eru um tuttugu prósent af heildar-
atkvæðafjölda hans.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður
flokksins, hlaut 3326 atkvæði í efsta sætið, sem
eru um 70 prósent gildra atkvæða. Hún fékk 265
atkvæði í annað sætið. Gild atkvæði voru 4759
sem þýðir að 1168 kjósendur vildu ekki að hún
leiddi annan hvorn listann. 680 vildu formanninn
hvergi á listann. Þá hlaut Ágúst Ólafur Ágústs-
son, sem sóttist eftir fjórða sæti, 1212 atkvæði í
2. og 3. sætið, sem eru nánast fjörutíu prósent af
heildaratkvæðafjölda hans.
Neðstur í prófkjörinu varð Glúmur Baldvins-
son, en nafn hans var einungis að finna á 1024
kjörseðlum, sem eru tæp 22 prósent af gildum
seðlum. Ingibjörg, Össur, Jóhanna og Ágúst voru
þau einu sem náðu settu marki, en Ellert B.
Schram sóttist eftir hvaða sæti sem var.
Ertu farin(n) að hlakka til
jólanna?
Ert ánægð(ur) með að Árni
Johnsen sé á leið á þing á ný?
Hrafnista í Hafnar-
firði hefur byggt tvö fjölbýlishús
með 64 leiguíbúðum fyrir einstakl-
inga 60 ára og eldri. Tíu milljóna
króna afnotarétt þarf að greiða
fyrir stærstu íbúðirnar auk
þjónusturýmis. Mánaðarleiga
slíkrar íbúðar er tæpar 160 þús-
und krónur með hússjóði á efstu
hæð. Fyrir minni íbúðir þarf að
greiða á bilinu 5,5 til sjö milljóna
króna fyrir afnotarétt og leiga er í
kringum hundrað þúsund krónur.
Afnotarétturinn er verðtryggður
og er endurgreiddur við flutning,
að frádregnu tveggja prósenta
árlegri fyrningu.
Leiguíbúðirnar eru mjög eftir-
sóttar. Bið eftir stærri þriggja
herbergja íbúðum er þrjú til fimm
ár og sex til átján mánuðir eftir
minni íbúðunum sem eru tveggja
herbergja. Ásgeir Ingvason, fram-
kvæmdastjóri sjómannadagsráðs,
sem er eigandi Hrafnistuheimil-
anna, segir að afnotaréttarfyrir-
komulagið sé notað til að halda
niðri leiguverði sem tekst með
lægri fjármagnskostnaði. Með
greiðslu á afnotarétti þurfti Hrafn-
ista aðeins að fjármagna um 70
prósent byggingakostnaðar með
lánum en afnotaréttargreiðsla
íbúa brúaði bilið. Ásgeir telur
byggingarkostnað fjölbýlishús-
anna um ellefu hundruð milljónir.
Húsin standa nálægt Hrafnistu
og njóta íbúarnir því öryggis frá
heimilinu, auk þess sem hægt er
að fá keypta þaðan ýmiss konar
þjónustu. Aðspurður hvort nokkrir
aðrir en efnað fólk eigi kost á að
komast inn í leiguíbúðirnar svarar
Ásgeir að það sé ekki hlutverk
Hrafnistu að leysa félagslegan
vanda. „Það er sveitarfélaganna
og ríkisins að gera það. En fyrir þá
sem eiga til dæmis íbúðir er vanda-
laust að selja. Margir þeirra, sem
eru 60 ára og eldri, greiða há
fasteignagjöld, tryggingar, hita,
eignaskatta, viðhald og loks afborg-
anir og vexti af fasteignalánum og
geta lækkað þennan kostnað hjá
sér umtalsvert með því að leigja
húsnæði hjá okkur. Þeir sem eru
eignalausir þurfa önnur úrræði og
þetta leiguform hentar að sjálf-
sögðu fólki misjafnlega vel.“
Sigurður Hallgrímsson, for-
maður Félags eldri borgara í
Hafnarfirði, segir eldri borgara
jákvæða á þetta fyrirkomulag.
Hann þekkir dæmi um fólk sem
hefur selt íbúðir sínar til að kom-
ast inn í leiguíbúðir hjá Hrafnistu.
„Þetta fólk á síðan talsverða upp-
hæð eftir sem það getur notað til
að njóta lífsins.“
Afnotaréttur leigu-
íbúðar tíu milljónir
Hrafnista í Hafnarfirði býður leiguíbúðir til eldra fólks þar sem afnotaréttur er
á bilinu fimm til tíu milljónir eftir stærð. Bið eftir íbúð er allt að fimm ár. Félag
eldri borgara í Hafnarfirði er ánægt með fyrirkomulagið.
„Þetta er bara orðið
tómt rugl,“ segir Guðrún
Ögmundsdóttir, alþingismaður
Samfylkingar, um auglýsinga-
kostnað frambjóðenda í prófkjöri
Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Guðrún telur suma frambjóð-
endurna ekki hafa tekið mið af
reglum um kostnað.
„Það var talað um leiðbeinandi
kostnað upp á milljón en þetta
hleypur pottþétt á einhverjum
milljónum. Fólk er með húsnæði á
leigu og starfsfólk. Þetta segir sig
sjálft,“ segir Guðrún sem í gær
upplýsti að hún hefði varið
1.060.004 krónum í auglýsingar og
kynningar. Peningana hafi hún
aflað með yfirdrætti í bankanum
og frá stuðningsfólki og fjöl-
skyldu. Guðrún hlaut aðeins 11.
sætið í prófkjörinu.
„Til hvers að setja reglur? Það
er fullt af spurningum og það er
flokksmanna að svara þeim. Það
verður að fara að setja eitthvað
„system í galskabet“,“ segir
Guðrún.
Skúli Helgason , framkvæmda-
stjóri Samfylkingarinnar, segir
ekki rétt að miðað hafi verið við
eina milljón króna í hámarks-
kostnað.
„Þetta er upphæð sem kom inn
í umræðuna á fyrri stigum þegar
menn voru að setja saman regl-
urnar en niðurstaðan var sú að það
var ekki samþykkt nein tiltekin
regla. En það voru tilmæli um að
menn sýndu háttvísi og stilltu
kostnaði í hóf. Síðan er reglan sú
að menn skili inn til flokksins upp-
gjöri,“ segir Skúli.
„Það verður spennandi að sjá
þau uppgjör,“ segir Guðrún
Ögmundsdóttir.
Félagarnir fylgdu ekki reglum