Fréttablaðið - 13.11.2006, Side 10
Samkeppniseftir-
litið hefur ákvarðað að ekki sé
ástæða til íhlutunar vegna kvört-
unar Tax Free á Íslandi vegna
Global Refund á Íslandi en hyggst
óska eftir upplýsingum um fjár-
mögnun fyrirtækisins. Fyrirtækin
starfa bæði í endurgreiðslu á
virðisaukaskatti til erlendra ferða-
manna.
Í lok ársins 2003 kvartaði Tax
Free yfir meintri misnotkun Global
Refund á stöðu sinni á markaði
þar sem langvarandi taprekstur
Global Refund væri fjármagnaður
með auknu hlutafé frá móður-
fyrirtækinu sem er öflugt alþjóð-
legt fyrirtæki. Væri þetta fallið
til að útrýma samkeppni á íslensk-
um markaði.
Samkeppniseftirlitið telur
Global Refund ekki hafa verið
ráðandi á markaði árið 2003 sem
þetta mál tekur til. Þó geti fyrir-
tækið hugsanlega, í krafti fjár-
hagslegra tengsla við móðurfyrir-
tækið, styrkt stöðu sína á
skömmum tíma svo það teljist
ráðandi á markaðnum. Þá kunni
málefni fyrirtækisins að koma til
frekari skoðunar Samkeppniseftir-
litsins. Mun eftirlitið snúa sér til
fyrirtækisins og óska eftir því að
það verði upplýst um frekari fjár-
stuðning af hálfu móðurfélagsins.
Bílaumboðið Saga
Malarhöfða 2a • 110 Reykjavík
Sími 570 9900 • www.fiat.is
Fiat Grande Punto
Númer 1 í Evrópu
ævintýraferð til Veróna
Þú gætir unnið
Mest seldi bíllinn í Evrópu 2006*
• Stíll. Hannaður í anda Maserati af Giorgetto
Giugiaro.
• Eyðsla. Aðeins 6 lítrar á hverja 100 km
í blönduðum akstri.
• Öryggi. 5 stjörnur í Euro Ncap. 6 loftpúðar.
• Eiginleikar. Hlaut Gullna stýrið 2005.
*Opinber skráning bifreiða fyrir janúar – apríl 2006 í 15 löndum: Belgíu, Finnlandi, Þýskalandi, Bretlandi, Grikklandi, Írlandi, Ítalíu, Lúxemborg, Noregi, Portúgal, Spáni og Svíþjóð.
Þeir sem koma og reynsluaka Fiat Punto
í nóvember geta átt von á því
að vinna flugferð fyrir tvo til
ævintýraborgarinnar Veróna
á Ítalíu með Úrvali Útsýn.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Lúðvík Ólafsson,
lækningaforstjóri Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins, segir mis-
marga bíða eftir því að fá heimilis-
lækni eftir hverfum en staðan sé
verst í vaxandi hverfum eins og
Árbæ, Grafarvogi, Garðabæ og
Mosfellsbæ. „Hluti vandans stafar
af því að fólk sem flytur á milli
hverfa er búið að skrá sig í nýja
heilsugæslustöð án þess að afskrá
sig í gamla hverfinu og því varla
hægt að þessi hópur sé án heimilis-
læknis.“
Lúðvík segir að þrátt fyrir
skort á heimilislæknum á höfuð-
borgarsvæðinu hafi þeim fjölgað
þó nokkuð á milli áranna 2000-
2004.
Lúðvík segir eftirspurn eftir
heimilislæknum á höfuðborgar-
svæðinu mikla og telur góðan
efnahag eina af ástæðum þessarar
miklu ásóknar. „Víða erlendis er
miðað við einn heimilislækni á
hverja 1.500 íbúa en hér er hlut-
fallið líklega á bilinu 1.800-1.900
íbúar á hvern lækni.“
Þegar Lúðvík er spurður um
hvort starfsemi Læknavaktarinnar
komi að einhverju leyti til móts
við skort á heimilislæknum segir
hann að fólk leiti frekar þangað
með einföld vandamál en þegar
um sé að ræða krónísk vandamál
kjósi fólk fremur að fara til síns
heimilislæknis.
„Margir vilja halda í sama
heimilislækni en núverandi kerfi
gerir ráð fyrir að fólk skipti um
lækni ef það flyst á milli hverfa.
Þó má segja að heilsugæslan starfi
innan tveggja kerfa því tólf læknar
á höfuðborgarsvæðinu vinna eftir
gamla kerfinu og halda í sína sjúk-
linga óháð búsetu þeirra.“
Lúðvík segir nokkuð álag á
heimilislækna á höfuðborgar-
svæðinu og að ætlast sé til að þeir
sinni ákveðinni yfirvinnuskyldu
sem skiptist í vaktir eftir hefð-
bundinn opnunartíma heilsugæsl-
unnar og frágang læknisvottorða.
„Með öllu er ekki fráleitt að álykta
að vinnuskylda heimilislækna geti
orðið um fimmtíu tímar á viku
með öllu þótt sumir ráði sig upp á
styttri vinnuviku.“
Nú er í gangi biðtímakönnun
hjá heilsugæslustöðvunum og
samkvæmt þeim niðurstöðum sem
liggja fyrir er bið eftir tíma hjá
heimilislæknum almennt stuttur.
Þegar blaðamaður pantaði tíma
hjá heimilislækni bauðst honum
tími á öðrum virka degi frá pönt-
un.
Lúðvík segir heilsugæslu mikil-
væga grunneiningu í heilbrigðis-
þjónustunni og vill sjá meira sjálf-
stæði stöðvanna til að velja sínar
eigin leiðir til að mæta þörfum
íbúanna.
Fimm þúsund
eru án læknis
Mikil eftirspurn er eftir heimilislæknum á höfuð-
borgarsvæðinu. Lækningaforstjóri Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðsins segir stöðuna hvað versta í
Árbæ, Grafarvogi, Garðabæ og Mosfellsbæ.
Víða erlendis er miðað
við einn heimilislækni á
hverja 1.500 íbúa en hér er hlut-
fallið líklega á bilinu 1.800-1.900
íbúar á hvern lækni.
Rúmlega þrítugur
karlmaður var á föstudag
dæmdur í fimm mánaða fangelsi í
Héraðsdómi Reykjavíkur, þar af
eru þrír mánuðir skilorðsbundnir.
Maðurinn braust inn í bíl í
apríl á þessu ári og reyndi að
stela hljómtækjum en lögregla
kom að honum. Hann rauf þannig
skilorð dóms sem hann hlaut
tæpum tveimur mánuðum áður
fyrir þjófnað og fíkniefnabrot.
Dómurinn nú er sjöundi dómur
mannsins vegna þjófnaðar og
fíkniefnabrota frá árinu 1996.
Samtals hefur hann á þeim tíma
hlotið 20 mánaða fangelsisdóma,
að miklu leyti skilorðsbundna.
Sjöundi dómur-
inn á tíu árum