Fréttablaðið - 13.11.2006, Blaðsíða 18
fréttir og fróðleikur
Klaustrið
hafi mikil
umsvif
Nýleg stofnun á gömlum grunni
Rúmlega helmingur þeirra
sem sögðust styðja Frjáls-
lynda flokkinn í könnun
Fréttablaðsins í síðustu
viku segir fjölda útlend-
inga hér á landi vera mikið
vandamál. Fæstir stuðnings-
menn Framsóknarflokks og
vinstri grænna segja fjölda
útlendinga hér á landi vera
mikið vandamál.
Um þriðjungur svarenda í könnun
Fréttablaðsins sem gerð var 7.
nóvember sagði fjölda útlendinga
á Íslandi vera mikið vandamál.
43,6 prósent sögðu fjöldann vera
lítið vandamál en 23,6 prósent
sögðu vandann vera engan.
Ef svarendur eru greindir eftir
því hvaða flokk þeir segjast myndu
kjósa, væri boðað til kosninga nú,
kemur í ljós að áberandi margir
stuðningsmenn Frjálslynda flokks-
ins segja fjölda útlendinga hér á
landi vera mikið vandamál, eða
sextíu prósent af öllum stuðnings-
mönnum Frjálslynda flokksins. 26
prósent stuðningsmanna flokksins
segja fjölda útlendinga vera lítið
vandamál en fjórtán prósent segja
fjöldann vera ekkert vandamál.
Með þessum hlutföllum skera
stuðningsmenn Frjálslynda flokks-
ins sig frá stuðningsmönnum ann-
arra flokka, sem ýtir undir þá
kenningu að fylgisaukning flokks-
ins samkvæmt þessari könnun sé
vegna umræðu flokksmanna um
innflytjendamál.
Stuðningsmenn eins annars
flokks telja að fjöldi útlendinga sé
í meira mæli en meðaltal bendir
til. Það eru stuðningsmenn Sam-
fylkingar en 38 prósent þeirra sem
segjast myndu kjósa flokkinn
segja fjölda útlendinga vera orð-
inn mikið vandamál. 37,2 prósent
telja vandamálið lítið og 24,8 pró-
sent telja vandamálið ekkert, sem
einnig er yfir meðaltali.
Framsóknarmenn og vinstri græn-
ir skera sig úr hvað varðar hlutfall
stuðningsmanna sem telja fjölda
útlendinga vera ekkert vandamál.
41,9 prósent stuðningsmanna
Framsóknarflokks telja fjölda
útlendinga vera ekkert vandamál.
Sama hlutfall segir fjöldann vera
lítið vandamál. Þá telur 16,1 pró-
sent þeirra sem myndu kjósa
Framsóknarflokkinn að fjöldi
útlendinga sé mikið vandamál.
Af stuðningsmönnum vinstri
grænna segja 36,2 prósent að fjöldi
útlendinga hér á landi sé ekkert
vandamál. 46,6 prósent telja að
vandinn sé lítill, en 17,2 prósent
telja að fjöldi útlendinga sé orðinn
að miklu vandamáli.
Meirihluti sjálfstæðismanna, eða
51,4 prósent þeirra sem segjast
myndu kjósa flokkinn, segir að
fjöldi útlendinga sé lítið vandamál
nú. 18,1 prósent þeirra telur vanda-
málið ekkert, en 30,5 prósent segja
að fjöldi útlendinga sé nú mikið
vandamál.
Af þeim sem ekki tóku afstöðu
til stjórnmálaflokkanna eru svörin
mjög svipuð heildartölunum. 23,5
prósent telja engan vanda nú
vegna fjölda útlendinga á íslandi.
44,4 prósent telja að vandinn sé
lítill og 32,1 prósent segir vandann
vera mikinn.
Hringt var í 800 kjósendur
þriðjudaginn 7. nóvember og skipt-
ust svarendur jafnt eftir kyni og
hlutfallslega eftir kjördæmum.
Spurningarnar tvær voru: Hvaða
lista myndir þú kjósa ef gengið
yrði til þingkosninga nú? og Er
fjöldi útlendinga á Íslandi ekkert,
lítið eða mikið vandamál?
91,3 prósent tóku afstöðu til að
minnsta kosti annarrar spurning-
arinnar.
Fylgisaukning Frjálslynda flokks-
ins, samkvæmt skoðanakönnun
Fréttablaðsins,
gæti annars
vegar skýrst af
lausu óánægju-
fylgi, en hins
vegar legið í
þjóðernis-
hyggju, segir
Birgir
Hermannsson
stjórnmála-
fræðingur.
Fylgi Frjálslynda flokksins
mælist nú ellefu prósent, sam-
kvæmt könnun Fréttablaðsins. Á
sama tíma dalar fylgi annarra
flokka, utan Samfylkingar. Sér-
staklega dalar fylgi Vinstri
hreyfingarinnar – græns fram-
boðs, um 5,6 prósentustig og
Framsóknarflokks, um 3,9 pró-
sentustig.
Á þessu geta verið tvær skýr-
ingar segir Birgir; „Annars vegar
einhvers konar óánægjufylgi sem
sé laust og hafi áður farið á vinstri
græn, en sé ekki sérstaklega fast
þar fyrir og fari nú til Frjálslynda
flokksins. Hinn hlutinn gæti legið í
þjóðernishyggjunni, meðal þeirra
sem eru óánægðir með þessa
Evrópuvæðingu og þar af leiðandi
á móti EES, en slíkur straumur
finnst bæði hjá vinstri grænum og
Framsóknarflokknum.“ Hann
segir ekki langt stökk frá því að
vera mikill andstæðingur Evrópu-
sambandsins til þess að vera and-
stæðingur afleiðinga aðildar, líkt
og óheftum innflutningi á fólki.
Birgir bendir á að í Danmörku, þar
sem Danski Þjóðarflokkurinn
hefur orðið að sterku stjórnmála-
afli, hafi Þjóðarflokkurinn vaxið
úr flokki Glistrup, þar sem jarð-
vegurinn hafi verið fyrir hendi.
Jafnaðarmenn hafi jafnframt
tapað fylgi til Þjóðarflokksins eftir
að þeir reyndu að yfirbjóða Þjóðar-
flokkinn í innflytjendamálum.
„Svíar hafa hins vegar engan
fyrirvara á vinnuafli en þjóðernis-
flokkar hafa ekki náð manni inn á
þing, þrátt fyrir mikla umræðu.
Umræðunni þar hefur verið haldið
niðri af hinum flokkunum og
þjóðernissinnar hafa verið for-
dæmdir og hinir flokkarnir hafa
ekki viljað tala við þá.“
Meirihluti frjálslyndra segir út-
lendinga mikið vandamál