Fréttablaðið - 13.11.2006, Page 68
Lífið er ekki alltaf dans á
rósum hjá stjörnunum og
ríka fólkinu. Ef hjónabandið
fer í vaskinn endar þær oft
í harðri baráttu í réttarsaln-
um og oft virðist litlu skipta
hvort börn eru í spilinu eða
ekki.
Ef til vill lýsir setning Ivönu
Trump úr kvikmyndinni The First
Wives Club skilnuðum hjá fræga
og fína fólkinu hvað best. „Don‘t
get mad, get everything,“ sem
myndi útleggjast upp á hið ylhýra:
„ekki láta reiðina ná tökum á
ykkur, hirðið frekar allt.“ Ivana
ætti að þekkja þessi fræði manna
best. Tékkneska ofurfyrirsætan
giftist margmilljóneranum Don-
ald Trump árið 1977 og tók virkan
þátt í að byggja upp veldi hans og
var með í ráðum er hinn víðfrægi
Trump Tower, sem stendur á Man-
hattan-eyjunni, var reistur. Þegar
Ivana komst á snoðir um ástar-
samband eiginmanns síns og
Mörlu Maples árið 1991 sótti hún
um skilnað. Krafa hennar var há
enda hélt Ivana því fram að hún
hefði tekið virkan þátt í uppbygg-
ingu Trump-veldisins. Dómstólar
tóku röksemdir hennar til greina
og þrátt fyrir að dómsniðurstaðan
sé enn trúnaðarmál er talið að
Ivana hafi fengið yfir tuttugu
milljónir dollara, fjölda eigna og
hlutabréfa í sinn hlut.
Hlutverkin snúast hins vegar við
hjá Reese Witherspoon og Ryan
Philippe. Witherspoon gæti þurft
að greiða eiginmanni sínum ansi
háar fjárhæðir en parið gerði ekki
kaupmála á sínum tíma. Reese og
Ryan hafa hins vegar lýst því yfir
að þau muni ekki karpa um fjár-
hæðir eða forræði yfir börnunum
þeirra tveimur því það sé eins og
gefur að skilja smáfólkið sem öllu
máli skipti.
Sama gildir ekki um skilnað Britn-
eyjar Spears og dansarans Kevins
Federline. Þó að þau hafi einungis
verið gift í tvö ár hefur Federline
krafist hárra greiðslna frá eigin-
konu sinni fyrrverandi og einnig
sótt um fullt forræði yfir báðum
sonum þeirra. Málið gæti því orðið
nokkuð illviðráðanlegt en fjöl-
miðlar þar vestra halda óbeint
með Spears og eru sáttir við að
hún skuli loks hafa losað sig við
vandræðargemsann.
Federline gæti því lent í sömu
orrahríð og Heather Mills en gula
pressan í Bretlandi hefur verið
iðin við kolann á undanförnum
mánuðum við að grafa upp ýmis-
legt gruggugt úr fortíð fyrirsæt-
unnar. Almenningur í Bretlandi
hefur ekki mikla samúð með Mills
jafnvel þótt hún haldi því fram að
bítillinn fyrrverandi, sir Paul
McCartney, hafi lagt hendur á sig.
Þegar Jerry Hall uppgötvaði að
eiginmaður hennar, Mick Jagger,
átti barn með brasilískri fyrir-
sætu sótti hún strax um skilnað.
Lögfræðingar Jaggers beittu
öllum brögðum til að halda fyrir-
sætunni frá eignum hans og lýstu
því meðal annars yfir að gifting
parsins á Bali árið 1990 stæðist
ekki lög. Hall og Jagger höfðu
verið gift í tuttugu ár og því var
búist við því að hún myndi hagn-
ast umtalsvert á skilnaðinum.
Herbragð Jaggers mæltist ekki
vel fyrir heima í Englandi en virt-
ist engu að síður hafa dugað því
Hall fékk ekki nema fimmtíu
milljónir punda eða sex milljarða
króna.
Melissa Mathison kom af fjöll-
um þegar eiginmaður hennar og
Íslandsvinurinn Harrison Ford
sótti um skilnað og byrjaði með
Calissu Flockhart. Mathison, sem
sjálf er vel stæður handritshöf-
undur, sótti gull í greipar Fords
því auk þess að fá 85 milljónir
dollara eða rúma fimm milljarða
fór Mathison einfaldlega fram á
að hún fengi greiddan hluta af
ágóða þeirra mynda sem Ford
hefði leikið í á meðan þau voru
gift. Að gamni skal þess getið að
hjónaband Mathison og Fords
stóð í rúma tvo áratugi og meðal
þeirra mynda sem gulldrengur-
inn lék í þá voru Indiana Jones-
þríleikurinn, The Fugitive og
Witness.
Alls munu 36 stjörnur koma fram
í nýju myndbandi sveitasöngvar-
ans Johnnys Cash sem var tekið
upp eftir andlát hans. Á meðal
þeirra eru Justin Timberlake,
Bono, Iggy Pop, Johnny Depp,
Keith Richards og Jay-Z.
Myndbandið var tekið upp fyrir
lagið God´s Gonna Cut You Down
sem er á síðustu plötu Cash, Amer-
ican V: A Hundred Highways.
Tony Kaye leikstýrði mynd-
bandinu, sem er í svart/hvítu.
Fékk hann sjálfur hugmyndina og
vann hana áfram í samvinnu við
Timberlake, upptökustjóranum
Rick Rubin og Mark Romanek,
sem leikstýrði öðru myndbandi
Cash við lagið Hurt. Meðal þeirra
sem sjást í myndbandinu eru Kris
Kristofferson, Patti Smith, Chris
Rock og Dennis Hopper.
36 stjörnur í
myndbandi
Það hefur varla farið fram hjá
mörgum að stjörnuparið Tom
Cruise og Katie Holmes áforma
að gifta sig á Ítalíu í þessum mán-
uði. Reyndar er stóri dagurinn nú
örskammt undan, því vígslan á að
fara fram eftir viku. Dagblaðið Il
Messaggero kvaðst hafa heimild-
ir fyrir því að parið myndi játast
hvort öðru í gullfallegum kastala
í smábænum Bracciano. Nú virð-
ist hins vegar vera komið babb í
bátinn, því embættismenn í
Bracciano segja það ólíklegt að
brúðkaupið geti átt sér stað, parið
hafi ekki skilað þeim eyðublöðum
sem til þarf svo að hjónavígslan
teljist lögleg. Háðfuglar spauga
nú með að Cruise takist enn og
aftur á við „mission impossible“.
Í brúðkaups-
bobba
Tónleikar til heiðurs Johns
Lennon verða haldnir í Háskóla-
bíói föstudaginn 1. desember.
Flutt verða lög eftir Lennon sem
hafa verið sérstaklega útsett
fyrir sinfóníuhljómsveit og
rokkhljómsveit af þessu tilefni.
„Þetta verða dúndurtónleikar,
það er engin spurning,“ segir
Sigurður Kaiser, sem annast
sviðsetningu. „Við Jón Ólafsson
[tónlistarstjóri] tókum okkur til
fyrir næstum tíu árum og létum
útsetja plötuna Sgt. Peppers
Lonely Hearts Club Band. Ólaf-
ur Gaukur útsetti hana fyrir sin-
fóníuna og hún var flutt á þrjátíu
ára útgáfuafmæli plötunnar.
Þannig hófst þessi pæling okkar
að koma þessari tónlist, sem er
unnin að mörgu leyti með stóra
sinfóníuhljómsveit í huga, í
almennilegt form,“ segir hann.
Um útsetningar sér Haraldur
Vignir Sveinbjörnsson, konsert-
meistari er Sigrún Eðvaldsdóttir
og hljómsveitarstjórn er í hönd-
um Árna Harðarsonar. Fjörutíu
hljóðfæraleikarar úr Sinfóníu-
hljómsveit Íslands koma fram á
tónleikunum auk rokkhljóm-
sveitar og tólf söngvara. Fram
koma söngvararnir Björn Jör-
undur, Hildur Vala, KK, Páll Rós-
inkranz, Magnús Þór Sigmunds-
son, Jón Ólafsson, Sigurjón
Brink, Pétur Örn Guðmundsson,
Jens Ólafsson úr Brain Police,
Haukur Heiðar Hauksson úr
Diktu og Eivör Pálsdóttir. Kynn-
ir verður Sigurður Skúlason leik-
ari.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 og
er miðaverð 6.500 krónur.
Almenn miðasala hefst 13. nóv-
ember kl. 10 á midi.is og í versl-
unum Skífunnar. Netfang miða-
sölu er midasala@lennon.is og
miðasölusími er 552 3000.
Í minningu Johns Lennon
Tónlistarmaðurinn Johnny sexual
gefur í febrúar út sína fyrstu plötu
sem nefnist Nifty Fingerwork.
Johnny, sem er vafalítið betur
þekktur sem Kalli úr Dáðadrengj-
um, ætlaði upphaflega að gefa út
plötuna í þessum mánuði en ein-
hverjar tafir urðu á vinnslu henn-
ar.
Kalli byrjaði að vinna að sínu
eigin efni sumarið 2005 og hefur
hann einbeitt sér alfarið að því
eftir að Dáðadrengir spiluðu á
sínum síðustu tónleikum á Iceland
Airwaves það ár.
„Johnny sexual er allt sem ég
vildi að ég væri. Hann er í raun-
inni ákveðinn holdgervingur míns
innri manns,“ segir Kalli um sitt
annað sjálf. Hann játar að Johnny
sé kyntákn en samt ekki þetta
hefðbundna sem allir þekkja.
„Hann er það á aðeins einlægari
máta en þessar hórur sem eru
vanalega settar í hlutverk kyn-
tákns.“
Kalli lýsir tónlistinni sem
elektró-poppi með hiphop-áhrif-
um. „Þetta er aðallega einlæg mel-
ódísk músík sem er að mestu leyti
héðan og þaðan, úr tölvuleikjum
og svoleiðis, og ævintýrabíómynd-
um. Ég held ég leiti mest í eitthvað
svoleiðis og einhvers konar óhljóð
líka.“
Johnny sexual hefur verið dug-
legur við að spila upp á síðkastið
ásamt aðstoðarmanni sínum Sigurði
Eggertssyni og komu þeir meðal
annars fram á Iceland Airwaves við
góðar undirtektir. Einnig hafa þeir
spilað í París og Kaupmannahöfn.
„Það gekk vonum framar. Það er
furðulegt hvað útlendingar eru
spenntir fyrir svona íslenskri popp-
músík,“ segir hann. Kalli segir
muninn á Dáðadrengjum og Johnny
sexual vera þann að hann geti núna
gert það sem honum dettur í hug.
„Maður er hættur að pæla hvort
þetta passi inn í einhverja stefnu.
Þetta er skemmtilegt frelsi en
getur verið einmanalegt.“
Holdgervingur míns innri manns