Fréttablaðið - 13.11.2006, Blaðsíða 69
Þokkagyðjan Ashley Judd var
ekki par hrifin af að hafa komist
inn á lista blaðsins FHM yfir
kynþokkafyllstu konur í heimin-
um. Hún tjáði sig um reynsluna í
viðtali við útvarpsstöð í Minnea-
polis, og sagði tilhugsunina valda
sér velgju. Hún sagði þetta vera
ógeðslegt, og spurði hvort heim-
urinn yrði ekki mun betri staður
ef blöð á borð við FHM væru
ekki til. Judd virðist þó ekki
hafa jafn mikla óbeit á tískurit-
inu Marie Claire, en hún mun
prýða forsíðu tölublaðs þess í
desember, í litlum sem engum
fötum.
Tilnefning veldur velgju
Fyrrum strandvarðafrúin Pamela
Bach krefst heilla tíu þúsund
punda, eða tæplega 1,3 milljóna
króna, á viku af eiginmanni sínum
David Hasselhoff vegna skilnaðar.
Þessi upphæð á að duga dömunni
fyrir handsnyrtingum og hátísku-
fötum, en hún segir að á meðan á
hjónabandi þeirra stóð hafi hún séð
um að versla fyrir sig og tvær
dætur þeirra hjóna. Hún hafi þá
heimsótt hönnunarbúðir og eytt að
minnsta kosti því sem samsvarar
um 350 þúsund íslenskum krónum
á viku. Í skjölunum sem Bach lagði
fyrir dóm, tekur hún fram að þessi
tíu þúsund pund séu það sem henni
reiknist til að duga muni fyrir
nauðsynjavörum.
Tíu þúsund
pund á viku
Faðir söngvarans Jim Morrison
tjáir sig í fyrsta sinn opinber-
lega um son sinn í ævisögunni
The Doors by the Doors sem
kemur út á næstunni.
„Við minnumst hans með
mikilli gleði. Sú staðreynd að
hann er látinn er sorgleg en ef
maður horfir til baka og minnist
ævi hans er sú minning ánægju-
leg,“ sagði George Morrison.
Þrír eftirlifandi meðlimir The
Doors, yngri bróðir Jim og systir
eru á meðal þeirra sem talað er
við í bókinni.
Í bókinni kemur meðal annars
fram að Jim hafi verið erfiður
unglingur og sett sig upp á móti
uppeldi föður síns, sem var her-
maður. Hélt sú gremja áfram
eftir að hann varð frægur. Þá
neitaði hann til dæmis að hitta
móður sína eftir tónleika og olli
það henni mikilli sorg.
Jim Morrison lést úr hjarta-
áfalli í París árið 1971, aðeins 27
ára gamall. Fjölmargir ferða-
menn heimsækja gröf hans á
hverju ári. Faðir hans segir það
vera töluverðan heiður fyrir
fjölskylduna að sonur hans skuli
vera grafinn skammt frá
menningarfrömuðum á borð við
Oscar Wilde, Edith Piaf og
Frederic Chopin.
Faðirinn tjáir sig
Tveir bandarískir vinir sem eru
saman í bræðrafélagi háskólans í
Suður Karólínu ætla að höfða mál
gegn Sacha Baron Cohen fyrir að
gera lítið úr þeim í gamanmynd-
inni Borat.
Þeir félagar eru ölvaðir í mynd-
inni og segja ýmislegt í henni sem
þeir sjái eftir núna. Segjast þeir
hafa verið gabbaðir í að koma
fram í myndinni. Var þeim sagt að
um væri að ræða heimildarmynd
sem ætti að vera sýnd utan Banda-
ríkjanna. Þvert á móti þá hefur
myndin verið sú vinsælasta í
Bandaríkjunum að undanförnu og
þótt víðar væri leitað.
Kæra Borat
fullkomnasta svefnkerfiðStuðningur sem þú treystir, þægindi sem þú elskar
Einkaleyfin 4 frá Sealy:
15%afsláttur