Fréttablaðið - 13.11.2006, Blaðsíða 70
Söngvarinn og lagahöfundurinn
Yusuf Islam, betur þekktur sem
Cat Stevens, gefur út nýja plötu á
mánudaginn sem nefnist An Other
Cup. Er þetta fyrsta plata hans
með nýjum popplögum í næstum
þrjátíu ár.
„Það eru hundrað ástæður
fyrir því að ég yfirgaf tónlistar-
bransann árið 1979. Núna má
eflaust finna hundrað og eina
ástæðu fyrir því af hverju mér
finnst ég knúinn til að búa til tón-
list aftur og syngja um lífið í þess-
um brothætta heimi,“ sagði
Islam.
Þessi plata er samansafn nýrra
laga sem Yusuf hefur samið í
gegnum árin og hafa verið geymd
í huga hans síðan hann lagði Cat
Stevens á hilluna. Öll lögin voru
tekin upp á einu ári og upptökum
lauk fyrr á þessu ári. Meðal þekkt-
ustu laga sem Islam samdi sem
Cat Stevens eru Father and Son,
Wild World og Morning Has Brok-
en.
Yusuf Islam er einn fremsti og
þekktasti tónlistarmaður sem
Bretland hefur alið. Sem Cat Stev-
ens ávann hann sér gríðarlega
virðingu og velgengni á sjöunda
og áttunda áratug síðustu aldar.
Árið 1977 tók hann upp islam,
breytti nafni sínu í Yusuf Islam og
hætti í kjölfarið í tónlistinni.
Nýja platan mun koma út um
það leyti sem 40 ár eru liðin frá
því Cat Stevens sendi frá sér sína
fyrstu plötu, en það var smáskíf-
an I Love My Dog sem kom út árið
1966.
Sú fyrsta í þrjátíu ár
Fæðingardagur: 21. júlí 1941 í London.
Skírnarnafn: Steven Demetre Georgiou.
Foreldrar: Grísk-kýpverskur faðir og
sænsk móðir.
Trú: Islam, árið 1977.
Nafn: Yusuf Islam frá árinu 1979.
Hjúskaparstaða: Býr með eiginkonu og
börnum í London.
Plötusala: Yfir 60 milljónir.
Síðasta poppplata: Back to Earth árið
1978.
Árið 2004: Söng Father and Son með
Ronan Keating.
Tea for the Tillerman: Aðallag grínþáttarins Extras.
Regína Ósk var þekkt fyrir að
syngja bakraddir hjá mörgum af
fremstu tónlistarmönnum lands-
ins en í fyrra flutti hún sig um set
og fór fremst á sviðið með ágætis
árangri. Á sinni nýjustu plötu, Í
djúpum dal, fer söngkonan nýjar
leiðir, mikill metnaður er lagður í
útsetningar og sjálfur Barði
Jóhannesson fenginn til að stjórna
upptökunum.
Platan lullar hægt og bítandi
af stað, fangar hlustandann ekk-
ert sérstaklega og hann bíður
eftir einhverju sem grípur, fær
hann til að dilla fótunum í takt
eða brosa út í annað eins og góð
poppplata ætti að gera. Því miður
eru lögin á Í djúpum dal flest öll
lítt eftirminnileg þótt þau séu
kannski ekki beint leiðinleg.
Útsetningarnar eru flestar til fyr-
irmyndar en undirritaður átti erf-
itt með fanga laglínur, eitthvað
sem hann gæti sönglað með, lögin
fóru bara inn um annað eyrað og
út um hitt. Regína reynir fyrir
sér með lagi Magnúsar Sigmunds-
sonar, Hjartans lag, sem er svona
dæmigert söngkonulag, fer að
sjálfsögðu létt með það enda með
prýðisgóða rödd en engu nýju er
bætt við, ekkert fær áheyrand-
ann til að spá í hvort þetta sé besti
flutningurinn á laginu eða ekki.
Þá er lagið Ljósin komu eftir Karl
Olgeirsson óþægilega líkt ein-
hverjum smelli með r&b söng-
konunni Toni Braxton en á örugg-
lega eftir að gera góða hluti á
öldum ljósvakans, það er hjá þeim
útvarpsstöðum sem spila svona
tónlist.
Regína Ósk hefur gert mikið úr
samstarfi sínu við Barða og honum
tekst vel við upptökustjórnina. Í
djúpum dal er í það minnsta betri
en frumburður söngkonunnar
fyrir ári. Hún er hins vegar til-
þrifalítil, fátt kemur á óvart og
diskurinn á vafalítið eftir að falla í
grýttan jarðveg hjá þeim sem ef
til vill ætluðu að gefa söngkonunni
tækifæri.
Tilþrifalítil Regína
Noel Gallagher, aðallaga-
höfundur Oasis, hélt
óvænta órafmagnaða tón-
leika í Los Angeles á dög-
unum. Með honum á sviði
var félagi hans úr Oasis,
Gem Archer.
Spiluðu þeir mörg lög
frá upphafsárum Oasis við
mikinn fögnuð áheyrenda.
Á meðal þeirra voru Wond-
erwall, Talk Tonight,
Whatever, Married With
Children og Don´t Look
Back in Anger. Einnig
tóku þeir Bítlalagið
Strawberry Fields for
Ever. Tónleikamynd
Oasis, Lord Don´t Slow
Me Down, sem kemur út
á næsta ári var spiluð á
undan tónleikunum.
Noel spilaði óvænt
A
RG
U
S
/
06
-0
55
2
DM
– fyrir
Kynntu þér
Ofurtala
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
EMPIRE
20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG PLATÍNUM
GLITNIS, EF GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI
60 þúsund gestir
ERU ÞIÐ TILBÚIN FYRIR EINA
FYNDNUSTU MYND ALLRA TÍMA?
MEÐ ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI I
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA ER HAFIN Á MIDI.IS
ATH: EINNIG ER HÆGT AÐ VERSLA MIÐA Í FORSÖLU Í KVIKMYNDAHÚSUNUM
SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 6
OPEN SEASON ENSKT TAL kl. 6, 8, og 10
MÝRIN kl. 6, 8.30 og 10.30 B.I. 12 ÁRA
FEARLESS kl. 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA
DEVIL WEARS PRADA kl. 8 og 10.20
DRAUGAHÚSIÐ ÍSL. TAL kl. 6 B.I. 7 ÁRA
SKÓGARSTRÍÐ kl. 4 og 6
OPEN SEASON ENSKT TAL kl. 4, 6, 8 og 10
BORAT kl. 4, 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
MÝRIN kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20
FEARLESS kl. 10.20 B.I. 16 ÁRA
DEVIL WEARS PRADA kl. 8
SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 6
BORAT kl. 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
MÝRIN kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA