Fréttablaðið - 13.11.2006, Side 73
Íslandsmeistarar
Hauka standa vel í baráttunni um
titilinn eftir sigur á erkifjendun-
um í Keflavík, 90-81. Haukar eru
því enn taplausir en tapið var það
fyrsta hjá Keflavík í vetur.
Haukarnir byrjuðu leikinn af
geysilegum krafti og áður en
Keflavíkurstúlkur voru vaknaðar
var staðan 10-0 fyrir Hauka. „Það
var hrikalegt að gefa þessa for-
gjöf og ég vil meina að leikurinn
hafi tapast á þessum upphafs-
kafla,“ sagði Jón Halldór Eðvalds-
son, þjálfari Keflavíkur, eftir leik-
inn.
Hann hafði hugsanlega eitt-
hvað til síns máls því Keflavík elti
allan leikinn og munaði svo sann-
arlega um stigin tíu sem Haukar
fengu nánast í forgjöf. Keflavík
lét mótlætið ekki buga sig heldur
spýtti í lófana og gaf allt til að
komast inn í leikinn á ný. Staðan
var 48-40 í hálfleik og enn mögu-
leiki hjá Keflavík.
Þriðji leikhluti var mjög góður
hjá gestunum úr Keflavík og þá
sérstaklega hjá Bryndísi Guð-
mundsdóttur sem skoraði 13 góð
stig í leikhlutanum. Staðan fyrir
lokafjórðunginn 69-63 og nokkur
spenna að myndast.
Þrátt fyrir mikinn vilja og fína
baráttu tókst Keflavík ekki að
brúa bilið og Haukar lönduðu mik-
ilvægum sigri, 90-81. Munaði
nokkuð um hjá Keflavík að Birna
Valgarðsdóttir gat ekki leikið
vegna meiðsla og svo fann Kan-
inn, Takesha Watson sig engan
veginn og munar um minna.
Það sat nokkur þreyta í Hauka-
liðinu eftir Evrópuleikinn en þær
sýndu alltaf styrk sinn þegar
Keflavík nálgaðist. Í raun stýrðu
þær leiknum og héldu algjörlega
ró sinni. Þær stigu svo á bensínið
þegar á þurfti að halda. Klassalið
sem erfitt verður að stöðva.
„Það er ekkert launungarmál
að við ætlum okkur að halda titlin-
um og teljum okkur geta haldið
honum. Það er samt of snemmt að
vera með einhverjar yfirlýsingar
um hvort það sé hægt að stöðva
okkur,“ sagði Ágúst Björgvinsson,
þjálfari Hauka.
Keflavík alltaf skrefi á eftir Haukum
Spænski sóknarmaður-
inn Albert Luque er ekki par
hrifinn af dvöl sinni hjá New-
castle. Nú virðist hann vera búinn
að missa þolinmæðina og vill
snúa aftur til Spánar. Luque hefur
fengið sárafá tækifæri eftir að
Glenn Roeder tók við Newcastle.
Luque var ekki í liði Newcastle
sem mætti Watford í deildarbik-
arnum í vikunni þrátt fyrir að
meiðsli hrjái framherja liðsins.
„Það er ótrúlegt að ég hafi ekki
verið í liðinu gegn Watford.
Lokaákvörðunin er hjá stjóranum
og ef hann hefur ekki áhuga á því
að velja mig í liðið þá er senni-
lega best fyrir mig að yfirgefa
félagið og það strax í janúar. Mér
líður mjög illa hérna,“ sagði
Luque en líklegt þykir að hans
gamla félag, Deportivo La
Coruna, reyni að kaupa kappann í
janúar.
Líður mjög illa
hjá Newcastle
Sir Alex Ferguson,
framkvæmdastjóri Manchester
United, hefur beðið Scolari,
þjálfara Portúgal, að hvíla
Ronaldo en Portúgal mætir
Kazakhstan á miðvikudaginn í
undankeppni EM.
„Ronaldo er meiddur á ökkla
en það er Scolari sem ræður því
hvort strákurinn spilar leikinn.
Leikurinn er gegn Kasakstan og
maður skyldi ætla að Portúgal
gæti unnið án Ronaldos og ef
hann er tæpur þá vona ég að hann
spili ekki leikinn,“ sagði Ferguson
en Gary Neville á líka við meiðsli
að stríða og missir af leik
Hollands og Englands á miðviku-
daginn.
Vill að Scolari
hvíli Ronaldo
Real Madrid vann góðan
sigur á Osasuna í spænsku
deildinni í gær, 4-1. Leikurinn var
á heimavelli Real Madrid og það
var Hollendingurinn Ruud van
Nistelrooy sem stal senunni en
hann skoraði öll mörk heima-
manna í leiknum.
Þessi markaskorari sýndi sitt
rétta andlit í gær og átti gríðar-
lega góðan leik. Nistelrooy kom
Real í 3-0 áður en gestirnir náðu
að klóra í bakkann. Van Nistelrooy
rak svo smiðshöggið á undir lok
leiksins með sínu fjórða marki.
Sigurinn færði Real Madrid
upp í þriðja sæti deildarinnar.
Van Nistelrooy
með fjögur