Tíminn - 05.05.1970, Side 6
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 5. maí 1970.
Etókasafnsbyggingin nýja á Akranesi.
GÓÐ REYNSLA AF STEYPTU
GÖTUNUM Á AKRANESI
Viðtal við Björgvin Sæmundsson, bæjarstjóra á Akranesi
Björgvtn Sæmundsson bæjar
stjórl á Akranesi, er búinn að
gegna því starfí frá árinu 1962,
en hann var ráðlnn bæjarverk-
fræðingur til Akraness árið
1958. Tíminn bað Björgvin að
segja frá helztu framkvæmd-
um bæjarins, sem unnið hefur
verið að á síðustu árum, og
hvað sé framundan i þeim efn-
um.
— Ef við byrjum á höfninni
Björgvin, hvað er helzt að segja
um hafnarframkvæmdir?
— Á undanförnum árum hef
ur verið unnið að tillögum »ð
endanlegri höfn hér á Akranesi,
en aðalhafnarframkvæmdirnar
fóru fram hér á árunurn 1956—
58. Pengin voru þýzk lán til
þessara framkvæmda, og síðan
hafa orðið tvær gengislækkanir
hér á landi, og tvisvar hefur
gengi marksins verið hækkað i
Þýzkalandi. Þetta hefur í för
meið sér, að l'án sem tekin voru
á árunum 1957—58 að upphæð
7 milljónir ísl. króiia eru nú,
127—13 árum seinna 18,5 mill-1
jónir. Núna eru í undirbúningi
framkvæmdir við höfnina sem
reiknað er með að kosti 53 mill-
jónir króna, og á að ljúka á
næstu sex árum. Er hér um að
ræða lengingu hafnargarðsins,
og setja brimvörn á útkant garð
VÉLSMÍÐI
Tökum að okkur alls konar
RENNISMÍÐI,
FRÆSIVINNll
og ýmís konar viðgerðir
Vélaverkstæði
Páls Helgasonar
Síðumúla 1A. Simi 38860.
sins. Árið 1968 var efsti hluti
hafnargarðsins, um 200 mebra
bafli, breikkaður að meðalfaii
um sex metra á grjótfyllingu,
sem gerö var 1965. Síðan var
byggður á hann skjólveggur,
þriggja metra hár, og ennfrem-
um var þekja garðsins endur-
nýjuð, ásamt ölluim lögnum og
komið fyrir nýrri og fullkom-
inni lýsingu. S.l. 5 ár hefur alls
verið unnið í höfninm fyrir 23
málljón króna. I sumar á að
breyta 64 metra löngu innrásar
kerfi í bryggju. Auk lengingar
hafnargarðsins þarf að dýpka
höfnina, byggja geymsluhús O'g
vaikthús, en fyrr er höfnin ekki
endanlega frágengin. Þrátt fyrir
fjárhagsvandræði þá á höjÉnin
tryggar tekjur framundan m.a.
vegna framleiðslu Sementverk-
smiðju rikisins, sem flutt er að
langmestu leyti sjóleiðina frá
Akranesi. Ríkið tekur lífea að
sér 57% af hækkunum lána
vegna gengisbreytinganna, og
sjáum viO þvi fram á bjarta
framtíð á næstu árum hvað
þessu viðvíkur.
— Hér er mikið af steyptum
götum. Er það vegna nálægðar
Sementsverksmiðjunnar?
— Við sitjum við sama borð
hvað þetta snertir, og önnur
sveitarfélög, höfum kannski
notfært okkur steypuna meira.
40% af gatnakerfinu á Akna-
nesi er með varanlegu slitlagi,
og er lang mestur hluti þess
steyptur. Okkar reynsla af
steyptum götum er ákaflega
góð. Við steyptar götur er sama
og ekkert viðhald, og sér varla
á steypunni eftir tíu ár, en fyrst
var byrjað a® steypa hér göttir
haustið 1960. Svo til engar sér
stakar vélar þarf við að steypa
götumar, því fiLest bæjarfélög
eá'ga steypuvélar.
Núorðið steypum við
allar gangstéttir líka, og steyp-
um engan sénstakan gamgstéttar-
kant, heldur látum við steyp-
una í gangstéttinni ganga að-
eins út á afcbrautarsteypuina.
Þessi aðferð er um 40% ódýr-
ari, en þegar steypa þarf gatig-
stéttarkamtinn sérstaklega. Eina
vélin, sem æskálegt er að hafa
við steypuma, er sérstök sög,
til að saga steypuma, þegar húm
er farin að harðna. Þessa sög
eigum við, og höfum lámað hana
til þeirra staða á landinu, þar
sem götur eru steyptar.
— HveraSg er með mýlbygg-
imgar í bænum?
— Nýtt hvenfi er mú að rísa
innan við fþróttavollinn, og eru
þar eingöngu edmbýlishús. Þess
má geta, að við innheimtum eng
in gatnagerðargjö'ld. A s.l ári
var byrjað á 23 húsum hér á
Akramesi, og var það um að
ræða 18 íbúðir í sjö húsum, em
hitt var húsnæði til annarra
nota.
Unnið er nú að viðbót við,
sjúkrahúsið, en dzti hluti þess
var tekin í notfcun árið 1952.
Um tíu árum síðar var ákveð
ið að byggja við sjúkrahúsið 14
þúsund rúmmetra. 65 rúm
verða í viðbyggingunmi, og eru
þá 100 rúm í aðlt í Sjúkriahúsi
Akramess. Árið 1968 var ein
sjúkradeild með 31 rúmi tekin
í motikun, og þessa dagama eru
læknar a® flytja í ný húsakynni
í sjúkrahúsinu. 1 sumar verða
ný röntgentæM, er kosta um 3
milljónir króna, sett upp í
sjúkrahúsinu, og verður þá
komim þar fullkomin römtgen-
deild.
Á sjúkrahúsimu eru nú starf-
andi 5 læknar, og með viðbygg-
ingunmi opmast möguleikar til
að fá hingað háls nef og eyrna-
sériræðing og augnlækmi, á á-
kveðnum tímum , svo fólk héð-
am þurii ekki að cara til Reykja
vífeur, tdl að fá notið þjómustu
þessara sériræðinga.
— Hvað um aðra byggingar-
framkvæmdir á vegum bæjar-
íns?
— íþróttahús er í byggingu,
og er áætlað að Ijúka við að
steypa það upp í sumar. Salur-
imo í húsinu verður 22x42 metr-
ar að flatarmáli, auk áhorfenda
svæðis. Verður hægt að skipta
salmum með skilrúmum þegar
efeki eru þar kappleikir. Húsið
mun verða innréttað í áfömgum.
Þá er bókasafn í ayggingu,
og er það 2 hæðir og. fcjallari
350 fermetrar hver hæð. Er
vonazt til að bólkasafn hæjarinsi
geti flutt í bús þetta 1971.
— Þdð hafið verið að gera
endurbætur á vatnsveitunni hér
á Alkramesi er ekfci svo?
— Jú það er mikið verkefni,
sem efcki er lokið. Við fáum
vatn úr AkrafjalM. Er það tekið
úr Berjadalsá, sem er dragá.
Manmviiki þar voru frá því
árið 1942, en fyrir tveim árum,
var gerð áætlun um gerð nýrra
imntaks mamnvirkja og hrednsi-
stöðvar. Er fyrri áfanga lokið,
en það er átta metra há stífla,
og fiyrir innam hana rúmast 10
þúsund tonm af vatni. Þetta er
vatmsmiðlun, og þarna kyrrist
vafcndð. Næsti áfangi er svo að
byggja hreimsistöð fyrir vatnið.
Er hún á næsta ledtí.
Björgvin Sæmundsson
I
JÓN E. RAGNARSSON
LÖGMAÐUR
Lögmannsskrifstofa,
Laugavegi 3 Sími 17200.
HANNES PÁLSSON
LJÓSMYNDARI
MJÖUHLlD 4
SÍM] 23081 REYKJAVÍK
Tek: Passamyndir
Barnamyndir
Fermingamyndir
Myndir til sðlu.
Innrðmmun á myndum.
Geri gamlar myndir
sem núiar
Gen fiölskylduspjöld,
sýnishorn
Opið frá kl. 1—7.
Götumynd frá Akranesi. Kirkjan er ttl vinstri ó myndi nni, og fyrir miðju gnaafir reykháfu r SementsverksmiSþ
imnar.