Tíminn - 26.04.1977, Blaðsíða 15

Tíminn - 26.04.1977, Blaðsíða 15
Þri&judagur 26. april 1977 15 les framhald sögunnar „Sumars d fjöllum” eftir Knut Hauge (2). Tilkynn- ingar kl. 9.30. Þingfréttirkl. 9.45 Létt lög milli atri&a. Hin gömlu kynni kl. 10.25: Valborg Bentsdóttir sér um þáttinn. Morguntónleikar kl. 11.00: Enska kammer- sveitin leikur Serenööu nr. 7 i D-dúr (K250), „Haffner”-serenööuna eftir Mozart: Pinchas Zukerman stjórnar og leikur jafnframt á fi&lu. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veöurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Viö vinnuna: Tónleikar. 14.25 Danmerkurpistill frá Ottari Einarssyni. 15.00 Miðdegistónleikar Hljómsveitin Filharmonia leikur „Kraftaverkiö I Gor- balshverfinu” eftir Arthur Bliss, höf. stj. Sinfóniu- hljómsveitin I Birmingham leikur „Pacific 231”, sinfóniskan þátt eftir Arthur Honegger: Louis Fremaux stj. Jascha Heifetz og Sinfóniuhljómsveitin I Dallas leika Fiölukonsert eftir Miklós Rozsa: Walter Hendl stj.. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veöurfregnir). 16.20 Popp 17.30 Litli barnatiminn Finn- borg Scheving sér um timann. 17.50 A hvitum reitum og svörtum Guömundur Arn- laugsson flytur skákþátt. 18.20 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Vinnumál Arnmundur Backman og Gunnar Eydal lögfræöingar stjórna þætti um lög og rétt á vinnumark- aði. 20.00 Lög unga fólksins Asta R. Jóhannesdóttir kynnir. 20.50 Aö sko&a og skilgreina Kristján E. Guömundsson og Erlendur S. Baldursson sjá um þátt fyrir unglinga. 21.30 Frá tónlistarhátiö Bach-félagsins I Berlin I fyrrasumar. Tatjana Nikolajewa leikur á pfanó Partitu nr. 4 i D-dúr eftir Bach. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag- an: „Vor I verum” eftir Jón Rafnsson Stefán Ogmunds- son byrjar lesturinn. 22.40 Harmonikulög Arne Sölvberg og kvartett Arne Knapperholens leika. 23.00 A hljóöbergi „Stólarnir” eftir Eugene Ionesco I þýö- ingu Donalds Watsons. Leikendur: Siobhan McKenna og Cyril Cusak. Höfundurinn er sögumaöur. — Slöari hluti. 23.40 Fréttir. Dagskrárlok. sjónvarp Þriðjudagur 26. apríl 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Við hættum aö reykja Námskeið til uppörvunar og leiðbeiningar fyrir þá, sem eru aö hætta að reykja. Umsjónarmaöur Sigrún Stefánsdóttir. Bein útsend- ing. Stjórn útsendingar Rúnar Gunnarsson. 20.45 Coiditz Bresk-banda- riskur framhalds- myndaflokkur. Herréttur. Þýöandi Jón Thor Haralds- son 21.35 Gitartónlist (L) John Williams leikur tónlist eftir Bach. Þýöandi Jón Skapta- son. 22.00 Utan úr heimiÞáttur um erlend málefni. Umsjónar- maður Jón Hákon Magnússon. 22.30 Dagskrárlok. framhaldssagan framhaldssagan framhaldssagan framhaldssagan Frú Harris fer til Parísar © ef tir Paul Gallico skjólstæðingar, einkaritarar eða f jölskylduvinir), eða nýjasta uppátæki Wyszcinska greifafrúar: að reykja pípu. Hún reyndi að einbeita hugsuninni að eftirlætis ibúðsinni, eðaorðunum, sem ungfrú Penrose hafði not- að, þegar henni varð það á að brjóta öskubakka. Hún reyndi að sjá fyrir sér blómagarð, en það dugði ekki. Því meira sem hún reyndi að hugsa um annað, þeim mun ágengari varð hugsunin um Dior-kjólinn og hún lá i myrkrinu og titraði af þrá eftir honum. Jafnvel er Ijósið var slökkt og aðeins bjarminn frá götuljósinu þrengdi sér inn um kjallaragluggann, gat hún séð gegn um skáphurðina og ímyndað sér að hann hengi þar. Liturinn og ef nið var breytilegt, stundum sá hún hann úr gullbrókaði, stundum úr bleiku eða dökk- rauðu atlassilki eða hvítan með f ílabeinslitum knipplingum. En hann var alltaf hámark fegurðar og verðmætis. Þeir kjólar, sem upprunalega höfðu vakið þessa furðulegu þrá, voru horfnir úr skáp lafði Dants og kvöldu hana því ekki lengur. Siðar komu myndir í blöð- unum af lafðinni i þeim rauða. En frú Harris þurfti ekki að sjá þá aftur. Óskin um að eiga slíkan kjól hafði fest rætur djúpt i henni. Stundum var þráin svo sterk, að hún fékk tár í augun og hélt áfram að naga hana í órólegum draumum. En nótt eina, viku síðar, fór f rú Harris að hugsa svo- litið öðruvísi. Hún var að hugsa um kvöldið, sem þær höfðu útfyllt getraunaseðlana og þá undarlegu tilfinn- ingu, að þar með fengi hún kjólinn. Árangurinn hafði að visu verið svipaður því, sem hún þekkti af reynslunni. Þetta voru vonbrigði af þvi tagi, sem lif ið hafði nú einu sinni upp á að bjóða, en þó... var það svo? Hún hafði unnið hundrað pund, nei hundrað og tvö pund, sjö shill- inga og níu og hálft pens. Hvers vegna þessa einkennilegu upphæð? Hvaða boðskapur til hennar gat falizt í því? Veröld f rú Harris var full af táknum og boðum frá æðri stöðum. Þegar Dior-kjóll kostaði fjögur hundruð og fimmtíu pund, vantaði þrjú hundruð og fimmtíu pund, sem hún hafði engin tök á að ná til. En bíðið aðeins! Skyndilega, á inn- blástursandartaki, skildist henni eitthvað, hún kveikti Ijósiðog settistsnögglega upp í rúminu. Það var í raun- inni ekki þrjú hundruð og fimmtíu pund. Hún átti ekki aðeins hundrað pundin sin í bankanum, heldur byrjun- ina á næstu hundrað, sem sagt tvö pund, sjö shiilinga og „Þetta er frá mér og honum Wil- son, en hann veit ekkert ennþá um aö blómin eru horfin úr garö- inum hans.” níu og hálft pens. Þegar hún hefði náð tveimur hundr- uðum, væri ekki lengur svo fjarlægt að eignast þrjú hundruð. — Þannig á að fara að því, sagði f rú Harris við sjálfa sig. — Ég vil eignast hann, þó það verði það siðasta sem ég geri það sem ég á enn ólifað. Hún steig f ram úr rúm- inu, náði sér í blað og blýant og f ór að reikna. Aldrei hafði frú Harris borgað meira en fimm pund fyrir kjól á ævinni, upphæð sem hún skráði á blað fyrir ofan hina stórfenqlequ tölu, fjögur hundruð og Kynbótasýning i sambandi við Hestaþing Faxa að Faxaborg 17. júli 1977 verður haldin héraðssýning á kynbótahrossum á sambandssvæði Búnaðarsambands Borgarfjarðar. Búnaðarsamband Borgarfjarðar. Atvinna á Selfossi Viljum ráða nú þegar bakara og mann til aðstoðar bökurum i brauðgerð okkar. Kaupfélag Árnesinga, Selfossi. Bilstjórinn á Renault bifreiðinni, sem tók tvo farþega upp í á Draghálsi þann 27. marz sl. og ók þeim niður að Ferstiklu, vinsamlegast hringdu i sima 8-10-24 sem fyrst. BÍLA- PARTA- SALAN auglýsir Nýkomnir varahlutir í: Rambler Classic '66 Chervolet Malibu '65 Saab 96 '67 Moskvitch '71 BÍLAPARTASALAN Höfðatúni 10 — Sími 1-13-97

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.