Fréttablaðið - 16.11.2006, Síða 41
Það er að mörgu að huga þegar börn fá
gæludýr. Hundar eru góðir félagar en
tímafrekir á meðan hamstur þarf minni
umönnun og fiskar gætu hentað börnum
með ofnæmi. Hér eru nokkur ráð um
val á gæludýrum.
Börn sem alast upp með dýrum eru hraust-
ari en önnur samkvæmt rannsóknum. „Þau
fá síður ofnæmi og astma og eru betur í
stakk búin til að takast á við andleg áföll,“
segir Sif Traustadóttir dýralæknir.
Ástæðan er talin vera tvíþætt. „Börn
læra um líf og dauða þegar gæludýrin deyja
og hins vegar hafa þau dýrið sem einskonar
sálufélaga og læra samkennd og ábyrgð,“
segir Sif. Foreldrar verða þó alltaf að bera
ábyrgðina á dýrinu því börnin geta ekki
valdið þessu alveg ein. „Stundum aflífum
við heilbrigð dýr útaf þessu og það getur
valdið sektarkennd hjá barninu sem kannski
hafði ekki þroska til að hugsa um dýrið, en
þó eru langflestir foreldrar sem hjálpa
börnunum sínum og hugsa vel um dýrin,“
segir Sif
Það fylgir mikil vinna hundahaldi en á sama
tíma er það mjög gefandi. Hunda þarf að
viðra daglega og þurfa sitt pláss heima.
Hundarnir eru flokkdýr og geta ekki verið
einir heima lengur en 6 tíma á dag. Það þarf
að fóðra þá daglega og það borgar sig að
vanda fóðrið því hundar geta fengið ofnæmi
af röngu fóðri. Það eru til margar tegundir
suma þarf að hreyfa meira en aðra og sumir
þurfa meiri feldhirðu. Kannið vel hvaða
tegund hentar fjölskyldunni. Bíllin þarf að
henta hundahaldi og það þarf leyfi fyrir
hundahaldi. Flesti hundar þurfa á nám-
skeiði að halda og nú kaupa margir sjúkra-
tryggingu fyrir hundinn. Við hundahald
þarf að athuga leyfi fyrir gæludýrahaldi á
heimilinu og hvort heimilisfólk sé með
ofnæmi. Uppýsingar: Hundaræktafélag
Íslands, www.hrfi.is
Byrjunarkostnaður:kr.20.000-25.000 (ekki
reiknað með verð á hundinum)
Flestir kettir eru barngóðir og þolinmóðir
og sjálfstæðir. Þeir geta verið einir heima
og eru þrifalegir. Margir heimilislausir
óskilakettir eru á Kattholti sem vantar nýja
eigendur. Sýningakettir geta þó verið dýrir
og innikettir þurfa meira aðhald. Það þarf
að fóðra þá daglega og það borgar sig að
vanda fóðrið. Dýralæknar mæla með því að
allir kettir séu geldir, nema þeir sem nota á
til undaneldis hjá ræktendum. Kisur þarf
að merkja og fara í læknisskoðun einu sinni
á ári. Við kattahald þarf að athuga leyfi
fyrir gæludýrahaldi á heimilinu og hvort
heimilisfólk sé með ofnæmi.
Upplýsingar: Kattholt www.kattholt.is,
Kattaræktarfélag íslands www.kynjakettir.
is, Byrjunar kostnaður: kr.15.000-20.000
Nagdýr eru bæði lítil og ódýr. Smærri nag-
dýr lifa vanalega um 2-4 ár, kanínur eitt-
hvað lengur. Þessi dýr er auðvelt að halda í
búrum, en þó á að hugsa fyrir því að fá eins
stórt búr og mögulegt er svo vel fari um
dýrið. Þessi dýr er auðvelt að ferðast með
innanlands og geta farið í pössun án vand-
ræða og verið ein heima á daginn. Kanínur
eru oft haldnar sem kettir innandyra og
leyft að hlaupa lausum þegar eigandinn er
heima. Það er hægt að þjálfa þær til að gera
stykkin sín í sandkassa. Kanínur geta þó
nagað rafmagnssnúr og það þarf að fylgjast
vel með þeim. Það er gott að láta gelda kan-
ínur. Þær verða gæfari og bíta minna. Búr
smárra nagdýra þarf að þrífa einu sinni í
viku til einu sinni í mán. Fer eftir hve mörg
þau eru og tegund.
Upplýsingar:Trítla gæludýrabúð www.
trítla.is- Dagfinnur dýralæknir www.dag-
finnur.is-Byrjunarkostnaður er um 8000 kr
Fuglarnir eru skemmtileg og barngóð dýr
sem verða auðveldlega tamir. Þeir eru
félagslynd flokkdýr og því ágætt að hafa
fleiri saman. Það er mikilvægt að þeir fljúgi
frjálsir reglulega innivið til að hreyfa sig.
Sumir fuglar lifa mjög lengi. Venjulegur
Gári verður oftast 6-8 ára en getur þó náð
20 ára aldri ef rétt er hugsað um hann. Lyk-
illinn er rétt fóðrun, en fugla á ekki að fóðra
eingöngu á fræjum. Þeir þurfa líka ávexti
og grænmeti. Upplýsingar um fugla:
Furðurfuglar og fylgifiskar: www.tjorvar.
is-Byrjunarkostnaður: kr.10.000
Það er gaman að hafa fallegt fiskabúr. Það
er bæði að vera með einfalt ódýrt búr en
líka flókin og dýrari. Sumir fiskar þola
betur að vera saman en aðrir og það þarf að
taka tillit til þess. Fyrir börn með ofnæmi
eru fiskar tilvalin dýr. Það þarf að fóðra þá
rétt, gróðursetja réttar plöntur, gefa nær-
ingu, skipta út vatni á tveggja vikna fresti
og nota hreinsidælu. Einnig þarf að halda
hitastiginu jöfnu í 25° og nota hitamæli.
Ljós þurfa að vera kveikt nálægt búrinu ca.
11 tíma á sólarhring. Ef ljósið er á lengur,
eða nálægt ofni eða sólarljósi myndast
óæskilegir þörungar.
Upplýsingar: Furðurfuglar og fylgifiskar:
www.tjorvar.is-Fiskabúr:www.fiskabur.is
Byrjunarkostnaður: kr.15.000
Dýraspítalar/læknar: www.dyrin.is-www.
dyraspitalinn.is, www.dagfinnur.is, www.
dyralaeknir.com
Dýrabúðir: www.dyrarikid.is, www.dyraba-
er.is, www.dyralif.is, www.tritla.is
Gæludýrahald barna
Ekki er flókið að láta lítið rými
sýnast stærra en enn auðveld-
ara er að láta lítið rými sýnast
minna.
• Með innbyggðum húsgögnum
má spara mikið pláss. Ef mögu-
leiki er reynið að hafa hillur og
skápa innbyggða.
• Með því að opna á milli her-
bergja virðast þau bæði verða
stærri. Auk þess verður rýmið
bjartara. Einnig má grípa til
þess ráðs að taka niður allar
hurðir og leyfa herbergjunum
að vera opnum.
• Ljósir litir stækka meðan dökk-
ir minnka.
• Með því að hafa sama gólfefni í
öllu rýminu virðist það stærra.
Augað finnur þá ekki mun frá
einu herbergi til annars.
• Ekki nota mörg mismunandi
mynstur. Með því að hafa mis-
munandi málningu og veggfóð-
ur í hverju einasta herbergi
virðist rýmið minnka. Reynið að
forðast öfgar á milli herbergja.
• Sýnið nægjusemi og nýtni. Ekki
kaupa endalaust af húsgögnum
sem taka gólfpláss. Látið hverja
mublu þjóna tilgangi og hugsið
til langtíma þegar fest eru kaup
á húsgögnum.
• Notaðu skápana vel. Settu upp
aukahillur fyrir skó og alls kyns
aukahluti eins og belti, bindi og
töskur. Farðu í gegnum dótið
þitt reglulega og gefðu eða
hentu því sem þú notar ekki.
Rýmið nýtt