Fréttablaðið - 16.11.2006, Síða 42
Fáir efast um að hreyfing hafi góð áhrif á heils-
una en margir gera sér eflaust ekki grein
fyrir hve víðtæk þau áhrif eru. Rann-
sóknir benda til að reglubundin og hóf-
leg hreyfing bæti bæði andlega og lík-
amlega líðan. Hætta á hjarta- og
æðasjúkdómum minnkar, einnig
er minni hætta á beinþynningu,
slitgigt, kvíða og þunglyndi auk
þess sem svefn batnar við ástund-
un líkamsþjálfunar. Hreyfing bætir
minnið, hefur jákvæð áhrif á stjórnun blóðsyk-
urs, minnkar líkur á krabbameini í ristli (og
jafnvel víðar), er forvörn gegn offitu og síðast
en ekki síst bætir hún kynlífið. Reglubundin
hreyfing bætir ekki aðeins árum við lífið heldur
lífi í árin.
Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) segir að
minnst 30 mínútna hófleg hreyfing daglega dugi til
að koma í veg fyrir ýmsa sjúkdóma og með lengri
hreyfingu aukist jákvæð áhrif á heilsuna. Í mann-
eldismarkmiðum er mælt með daglegri hreyf-
ingu í 45-60 mínútur. En hvað er hófleg hreyf-
ing?
Það er algeng skoðun að til þess að líkamsrækt hafi
eitthvert gildi þurfi að streða og erfiða mikið. Helst
þurfi að fá harðsperrur og geta kveinkað sér aðeins.
Þetta er mikill misskilningur. Rösk ganga, sund og
hjólreiðar eru afbragðsdæmi um góða og holla hreyf-
ingu sem bætir líðan og hægt er að stunda án mikillar
fyrirhafnar og erfiðis. Til að finna fyrir jákvæðum
áhrifum hreyfingar þarf ekki að vakna klukkan sex á
morgnana, fara í líkamsræktarstöð og púla þar til
maður hnígur niður áður en mætt er til vinnu.
Margt bendir til að hreyfing af miðlungsákefð,
eins og til dæmis rösk ganga, sé líklegri til að
vera stunduð reglubundið. Fyrir byrjend-
ur skiptir miklu máli að fara ekki of
geyst af stað. Þeir sem byrja af hvað
mestum ákafa eru oft líklegri til að
gefast upp, skiljanlega. Hver er til-
búinn að vera sí og æ með vöðva-
verki og eymsli? Þá er vænlegra til
árangurs að byrja rólega og auka
smám saman.
Algeng afsökun fyrir að hreyfa sig
ekki er tímaleysi. Flestir ættu nú að
geta fundið hálftíma á degi hverjum til að
hreyfa sig. Ekki er nauðsynlegt að hreyfa
sig í 30 mínútur í einu. Öll hreyfing telur
og einfaldar athafnir eins og að ganga út í
búð, hjóla milli staða og taka tröppurnar
frekar en lyftuna geta verið hluti af heilsu-
eflingu. Fyrir fólk sem vinnur kyrrsetuvinnu
er kjörið að fara í stuttan 10 mínútna göngu-
túr í hádeginu. Slíkir göngutúrar hafa ekki
eingöngu heilsueflingu sem langtímaafleið-
ingu heldur skila þeir sér strax í betri
vinnuafköstum.
Allir ættu að geta fundið sér hreyf-
ingu við hæfi og geta varið þó ekki
sé nema 30 mínútum á degi hverj-
um í að bæta eigin lífsgæði.
Unnið í samvinnu við
skrifstofu kennslu, vísinda
og þróunar á LSH.
*Tilboðsverð 2006
S
e
p
t.
2
0
0
6
Nicorette Fruitmint
Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr
reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðli. Skammtar eru
einstaklingsbundnir eftir því hve mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að
kynna sér upplýsingar um notkun í fylgiseðli. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun,
varúðarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er að lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar
aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um
lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall,
óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette
nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Nicorette
nikótínlyf nema að ráði læknis.
Handhafi markaðsleyfis: Pfizer ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, Garðabæ.
Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið.
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar.
www.nicorette.is
Nýttbragð
sem kemurá óvart
25%
afsláttur
*
Áblástur (frunsur) fá margir á
varirnar og veldur hann tals-
verðum óþægindum.
Veiran herpes simplex 1 veldur
óskemmtilegum útbrotum á
munnsvæðinu sem flestir kannast
við sem áblástur eða frunsur. Hún
smitast auðveldlega við snertingu
og getur jafnvel saklaus koss vald-
ið smiti. Oftast smitast fyrst á unga
aldri með tiltölulega vægum ein-
kennum, svo sem bólgum í munni
eða tannholdi. En smitið verður að
jafnaði verra eftir því sem fólk
smitast eldra.
Við fyrsta smit skríður veiran
eftir taugaþráðum upp í taugahnoð
sem er upp við heilann og situr
veiran í því ævilangt. Af óþekktum
ástæðum skríður hún öðru hvoru
aftur niður á munnsvæðið og veld-
ur frunsum á vörum. Hún lætur þó
ekki á sér kræla hjá öllum og eru
ástæður þess óþekktar. Ekki er
vitað af hverju hún fer af stað en
það vill oft gerast við álag, svo sem
við blæðingar hjá konum. Einnig
er mjög algengt að fólk fái áblástur
á skíðum eða í mikilli sól og birtu,
en veiran getur líka látið á sér
kræla alveg upp úr þurru án nokk-
urrar sjáanlegrar ástæðu.
Til eru tvær tegundir af herpes-
veirunni, herpes simplex 1 og herp-
es simplex 2 en sú fyrrnefnda
kemur oftast fram á vörum en sú
síðarnefnda á kynfærum. Veiran
smitast við snertingu og er stað-
bundin miðað við hvar á líkaman-
um hún smitast. Ef áblástur kemur
á varir kemur hann ekki líka á kyn-
færin nema veiran hafi smitast
sérstaklega þangað og öfugt. Vegna
þess hve auðveldlega veiran smit-
ast þá er talið að um 80 prósent
manna hafi hana í sér en aðeins 25
prósent af þeim fær áblástur reglu-
lega. Herpes getur einnig komið
upp á augnsvæðinu; þar getur hún
lagst á hornhimnuna og þarf að
leita til læknis ef það gerist.
Aumar og bólgnar varirMacrobiotic Helgarnámskeið “Healing Power of Food” í Kjallara Yggdrasill / Skólavörðustíg 16
17. Nóv 19:00-22:00
Kynningar kvöld. Talað verður alment um hvað macrobiotic er,
og hvað það getur gert fyrir þig.
18. til 19. Nóv. 10:00-18:00
Fyrirlestrar og matreiðslu námskeið. Námskeiðið verður á
ensku. Uppl. Guðmann 699-3449.