Fréttablaðið - 16.11.2006, Síða 72
nám, fróðleikur og vísindi
Samtök félags áhugafólks
um skólaþróun halda árs-
þing sitt í Ingunnarskóla
í Reykjavík þann 17. og 18
nóvember þar sem rætt
verður um lýðræði í skóla-
starfi. Sif Vígþórsdóttir,
formaður samtakanna og
skólastjóri í Norðlingaskóla,
segir að hugmyndir manna
um lýðræði og skólastarf
séu að breytast.
Meira en fimmtíu fyrirlesarar
verða á málþinginu sem hefst með
skráningu klukkan 13.30 á föstu-
daginn. Eiginleg dagskrá byrjar
klukkan 14.00. Aðalfyrirlesari
þennan fyrri dag verður Gerður
G. Óskarsdóttir, en erindi hennar
nefnist: Draumurinn um lýðræðis-
skóla. „Við ætlum að fjalla um það
hvað lýðræði í skólastarfi er. Aðal-
lega munum við ræða um áhrif
nemenda, foreldra og starfsfólks
á skólastarf hér á landi og hversu
mikið þetta fólk kemur að stefnu-
mörkun þess. Við ætlum að taka
það fyrir hvert við stefnum í þess-
um efnum,“ segir Sif.
Að loknum fyrirlestri Gerðar
verða haldnir þrír fyrirlestrar um
lýðræði á þremur skólastigum: á
leikskóla-, grunnskóla-, og fram-
haldsskólastigi. Sif segist vonast
til þess að málþingið muni fá þátt-
takendur til að brjóta heilann um
lýðræði í skólastarfi.“
Á laugardaginn hefst dagskrá-
in klukkan 9.30 um morguninn
með samræðu stjórnmálamann-
anna Illuga Gunnarssonar og Katr-
ínar Jakobsdóttur sem munu
hugsa upphátt um lýðræði í skóla-
starfi. Að samræðunni lokinni
verða haldnar málstofur þar sem
kynnt verða þróunarverkefni í
skólum sem tengjast þema þings-
ins. Fjölmargir fyrirlesarar munu
taka þátt í málstofunum.
Sif segir að skólastarf hafi hing-
að til verið mjög bundið af göml-
um hefðum og til að mynda hafi
ekki tíðkast að börn á grunnskóla-
stigi kæmu að því að skipuleggja
nám sitt. „Víða er það orðið þannig
að nemendur semja námsáætlun
fyrir vikuna með kennaranum
sínum. Það er hægt að fara alls
konar slíkar leiðir til þess að skóla-
starf verði gagnvirkara. Börn eru
svo frábært fólk að það verður að
leyfa þeim að hafa eitthvað að
segja um nám sitt,“ segir Sif.
Áhugasamir geta skráð sig til
þátttöku á málþinginu á vefsíð-
unni: http://www.skolathroun.is/.
Aukið lýðræði í skólum
Rannsakaði talmál ungra Íslendinga
Á árunum 2002 til 2005 gerði
Hanna Ragnarsdóttir, lektor við
Kennaraháskóla Íslands, rann-
sókn á tíu erlendum fjölskyldum
sem flust hafa hingað til lands.
Hún segir að íslenskt samfélag
og skólakerfi þurfi að taka mið af
aukinni menningarlegri fjöl-
breytni í samfélaginu því það
hafi breyst mikið á liðnum árum.
Hanna segir að ekki megi líta
framhjá því að margir skólar
hafi gert ýmislegt af sínu eigin
frumkvæði til að bregðast við
þeirri auknu fjölbreytni sem er
orðin einkenni á íslenska skóla-
kerfinu með fjölgun innflytj-
enda. Hún segir hins vegar að
víða sé komið í óefni því kennar-
ar hafi ekki fengið mikla þjálfun
til að takast á við breyttar
aðstæður. „Heildarhugsunin í
skólakerfinu þarf að breytast því
veruleikinn er orðinn flóknari
því menningarlegur bakgrunnur
og tungumálakunnátta nemend-
anna er ekki jafn einsleit og áður.
Þetta er hins vegar ekki vanda-
mál, heldur nýtt samfélagslegt
verkefni sem við þurfum að tak-
ast á við.“
Að mati Hönnu hefur samfé-
lagið ákveðnar skyldur gagnvart
þessum nemendum því þeir hafi
ákveðin mannréttindi sem ekki
megi brjóta á. Hún segir að þær
fjölskyldur sem hún rannsakaði
hafi haft töluverðar væntingar
þegar þær fluttu til Íslands en
hafi orðið fyrir vissum vonbrigð-
um með aðlögun barnanna að
skólakerfinu.
Fjölbreytnin krefst breytinga
Miele þvottavélar
Íslenskt stjórnborð
Ný og betri tromla
Verð frá kr. 114.800
-hreinn sparnaður
1.
verðlaun
í Þýskalandi
W2241WPS