Fréttablaðið - 18.11.2006, Blaðsíða 12
[Hlutabréf]
Félaginu verður skipt
upp í tvö skráð rekstrar-
félög, 365 á sviði fjöl-
miðla og afþreyingar
en Teymi á sviði upplýs-
ingatækni og fjarskipta.
Jón Ásgeir Jóhannesson
er nýr stjórnarformaður
365 en Þórdís Sigurð-
ardóttir fer fyrir stjórn
Teymis.
Hluthafar í Dagsbrún samþykktu í
gær að skipta félaginu upp í tvö
rekstrarfélög; annars vegar fjöl-
miðla- og afþreyingarfélagið 365
hf. og hins vegar upplýsingatækni-
og fjarskiptafélagið Teymi.
Verða bæði félögin skráð í
Kauphöll Íslands næstkomandi
mánudag og fá hluthafar Dags-
brúnar hlutabréf í hvoru félagi.
Við skiptinguna er fjölmiðlahlut-
inn metinn á 55 prósent af heildar-
virði Dagsbrúnar en fjarskipta-
hlutinn á 45 prósent.
Ari Edwald er forstjóri 365 en
Árni Pétur Jónsson stýrir Teymi.
Í stjórn 365, sem gefur meðal
annars út Fréttablaðið, setjast Jón
Ásgeir Jóhannesson, Árni Hauks-
son, Magnús Ármann, Pálmi Har-
aldsson og Þorsteinn M. Jónsson.
Jón Ásgeir tekur við starfi stjórn-
arformanns. Stjórn Teymis er
skipuð þeim Þórdísi J. Sigurðar-
dóttur, fyrrum stjórnarformanni
Dagsbrúnar, Guðmundi Ólasyni,
Matthíasi Páli Imsland, Þorsteini
M. Jónssyni og Þór Sigfússyni.
Þórdís, fráfarandi stjórnarfor-
maður, sagði á fundinum að upp-
stokkun Dagsbrúnar væri liður í
því að efla rekstur félagsins og
stjórnin teldi það farsæla niður-
stöðu fyrir hluthafa og starfsmenn
að eignast hluti í tveimur skráðum
félögum. „Á undanförnum tveim-
ur árum hefur verið unnið að því
að styrkja bæði fjölmiðla- og fjar-
skiptahluta Dagsbrúnar með innri
og ytri vexti. Við teljum að því
verki sé lokið og eftir standi tvö
félög sem hvort um sig búi við
sterka stöðu á markaði og eru skýr
valkostur fyrir fjárfesta.“
Ari Edwald, forstjóri 365, segir
að félagið ætli sér að selja hlut
sinn í Hands og bróðurpart bréfa í
breska útgáfu- og samskiptafyrir-
tækinu Wyndeham Press og ein-
beita sér að innanlandsmarkaði.
Velta 365 er áætluð tólf milljarðar
króna.
Lokað var fyrir viðskipti með
Dagsbrún í gær vegna skiptingar-
innar. Á fimmtudaginn sendi Dags-
brún frá sér neikvæða afkomuvið-
vörun fyrir fyrstu níu mánuði
ársins og hefur 1,5 milljarða var-
úðarfærsla verið færð vegna eign-
arhlutar í Wyndeham Press.
Greiningardeildir Glitnis og
Landsbankans reikna með miklu
tapi félagsins á 3. ársfjórðungi en
það tapaði 1,5 milljörðum króna á
fyrri hluta ársins og hafa hluta-
bréf þess lækkað um 24 prósent
frá ársbyrjun.
Stjórn bresku verslanakeðjunnar
House of Fraser ætlar að senda
birgjum bréf í næstu viku þar
sem þess er óskað að fyrirtækinu
verði veittur afsláttur af vöru-
verði auk þess sem greiðslufrest-
ur til birgja verði lengdur.
Að sögn breska dagblaðsins
Times ætlar Don McCarthy,
stjórnarformaður HoF, að fara
fram á tveggja prósenta afslátt
frá birgjum enda hafi ekki orðið
neinar breytingar á samningum
birgja og HoF síðan á sumardög-
um árið 2003. Stjórnir bresku
verslananna Debenhams, Bhs,
Arcadia og Marks & Spencer hafa
þegar óskað eftir álíka kjörum hjá
birgjum.
Times segir að stjórnir nokk-
urra verslanakeðja hafi óskað
eftir því í júní síðastliðnum að
birgjar veittu eins prósents afslátt
og framlengdu greiðslufrest sinn
úr 30 dögum í 60. Marks & Spenc-
er fór hins vegar fram á 5,5 pró-
senta afslátt.
Kaupum Baugs og fleiri fjár-
festa á HoF lauk í síðustu viku.
Breskir fjölmiðlar hafa haft eftir
Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, for-
stjóra félagsins, að breskar versl-
anir bjóði margar hverjar upp á
keimlíkt vöruúrval. Sé nauðsyn-
legt að krydda vöruúrvalið og hafi
hann þegar boðað að nokkrum
vörumerkjum í verslunum HoF
verði skipt út fyrir önnur.
House of Fraser
semur við birgja
Hagnaður fjárfestingafélagsins
Atorku Group nam rúmum 555
milljónum króna á þriðja fjórðungi
ársins samanborið við 224 milljón-
ir á sama tíma í fyrra. Séu öll félög
Atorku tekin með skilaði samstæð-
an 32,2 milljóna króna hagnaði á
tímabilinu. Félagið skilar uppgjöri
í tvennu lagi, móðurfélagi annars
vegar og samtæðu hins vegar.
Í móðurfélagsreikningi eru allar
fjárfestingar, m.a. fjárfestingar í
dótturfélögum metnar á gangvirði
en í samstæðureikningi er beitt
hlutdeildaraðferð og samstæðu-
reikningsskilum þar sem rekstrar-
leg afkoma hvers og eins dótturfé-
lags ásamt afkomu móðurfélags,
án gangvirðismat á dótturfélögum,
er lögð saman og myndar afkomu
tímabilsins.
Tvöfalda hagnaðinn
Sá hluti af fyrirtækjum innan
gömlu Dagsbrúnar sem féll ekki
að kjarnastarfsemi 365 og Teymis
hefur verið settur í eignarhaldsfé-
lagið Hands Holding sem fyrst
kallaðist K2. Hluthafar félagsins
eru Teymi, 365, Milestone og
Straumur-Burðarás. Teymi er
stærsti hluthafinn með hlut á bil-
inu 40-50 prósent.
Fyrirtæki í eigu Hands Holding
eru átta talsins í sjö löndum. Meðal
þeirra eru Hands í Noregi, Opin
kerfi, Hugur Ax, Landssteinar
Strengur, Kerfi í Svíþjóð og í Dan-
mörku.
Áætluð velta félagsins á árinu
er um nítján milljarðar króna.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins mun Sveinn Andri Sveins-
son, viðskiptafræðingur og fyrr-
um fjármálastjóri Norðurljósa,
taka við sem framkvæmdastjóri
Hands.
Markmið eigenda munu vera
þau að viðhalda og bæta núver-
andi rekstur. Einnig verða mögu-
leikar til stækkunar kannaðir
innan- sem utanlands. Talið er lík-
legt að bæði 365 og Teymi muni
minnka við hlut sinn í Hands en
aðrir hluthafar bæti við sig verði
hlutafé aukið.
Stjórn eignarhaldsfélagsins
skipa Gunnlaugur M. Sigmunds-
son, sem er formaður stjórnar,
Björgvin Ingi Ólafsson, Guðmund-
ur Ólason, Vilhjálmur Þorsteinsson
og Þórdís J. Sigurðardóttir.
Hands Holding til starfa
Peningaskápurinn …