Fréttablaðið - 19.11.2006, Side 1
Opið 13–17
í dag
Lofar að vera ekki
fullur á Eddunni
Stútfullt blað af at-
vinnuauglýsingum
Byggingarverkfræðingur/tæknifE
OPNAR Í HAFNARFIRÐI Í LOK NÓVEMBER
NÝR OG BREYTTUR
ÁSAMTTACO BELL
Við óskum eftir hressuog áhugasömu fólki tilað taka þátt fjörinu.
Leitum að fólki í heils-dags- og hlutastörf í sal,afgreiðslu og eldhús.
Tökum daglega viðumsækjendum áskrifstofu Góu og KFC að Garðahrauni 2.
Upplýsingar í síma 515 0920.
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 60751
KFC
Lögregla í Noregi telur
sama manninn vera ábyrgan fyrir
þremur morðum sem áttu sér stað í
Vestfold fylki í Noregi í gær. Morð-
inginn tók líf sitt eftir að lögregla
hafði tvívegis skotið hann í fótinn á
flótta. Þetta kom fram á vef Aften-
posten.
Um hádegi í gær stakk maður-
inn fjórtán ára son sinn til bana á
heimili hans í Nøtterøy og móðir
drengsins og sambýlismaður henn-
ar særðust alvarlega. Konan var
stungin í höfuð, háls og bak, en
maðurinn hlaut stungusár á andliti.
Voru þau flutt á sjúkrahús.
Hinn grunaði, 38 ára gamall
karlmaður, er einnig talinn ábyrg-
ur fyrir morðum á 79 ára gömlum
föður sínum og konu hans, en þau
áttu sér stað stuttu áður í bænum
Sandefjord.
Lögreglan elti manninn á bens-
ínstöð eftir seinni árásina og
reyndi að semja við hann, en þar
hleypti hann af nokkrum skotum
úr haglabyssu. Vitni sögðu mann-
inn vera „kaldan og yfirvegaðan“.
Þegar hann yfirgaf bensínstöðina
hleypti lögregla af varúðarskotum
en hæfði hann loks í fæturna á
flótta. Í kjölfarið svipti maðurinn
sig lífi á staðnum með haglabyss-
unni.
Svipti sig lífi eftir
dráp á fjölskyldu sinni
„Ég tel ekki sjálfgefið að
Kristinn taki sæti á listanum,“
segir Birgir Guðmundsson stjórn-
málafræðingur við Háskólann á
Akureyri, um úrslit prófkjörs
Framsóknarflokksins í Norðvest-
urkjördæmi. Birgi þykir einnig
sýnt að klofningur sé hjá flokkn-
um í kjördæminu. Magnús Stef-
ánsson félagsmálaráðherra er sig-
urvegari prófkjörsins en Kristinn
H. Gunnarsson alþingismaður, sem
einnig sóttist eftir fyrsta sætinu,
hafnaði í þriðja sætið. Herdís
Sæmundardóttir varaþingmaður
hlaut annað sætið eins og hún
stefndi að.
„Þó að Kristinn H. Gunnarsson
detti út fær hann samt það stóran
hluta atkvæða að ekki er hægt að
túlka úrslitin öðruvísi en að flokk-
urinn sé klofinn. Kristinn stendur
fyrir gagnrýnin sjónarmið á
stefnu flokksins og komið er upp
ákveðið vandamál hjá flokknum í
kjördæminu,“ segir Birgir.
Baldur Þórhallsson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands, segir Kristin hafa verið
fulltrúa hins almenna flokks-
manns sem hefur ekki verið hrif-
inn af stefnu flokksforystunnar og
það komi á óvart að hann njóti
ekki meira fylgis. „Ég er líka sann-
færður um að flokksforystunni er
létt, því Kristinn hefur verið þing-
flokknum mjög erfiður. Það þarf
heldur ekki að koma á óvart að
tekist sé á í prófkjörinu.“ Um þýð-
ingu úrslitanna fyrir alþingiskosn-
ingarnar í vor segir Baldur: „Vest-
firðingar eru þekktir fyrir að fara
í sérframboð ef þeim líkar ekki
val á lista. Það er óvíst hvort Krist-
inn kæmist inn á þing en það gæti
stórskaðað flokkinn í kjördæminu
ef hann færi í sérframboð.“
Birgir Guðmundsson segir
kunna að vera að aðrir frambjóð-
endur í prófkjörinu hafi sammælst
gegn Kristni. „Flokkurinn þarf að
finna leið til að friða þennan arm
sem stendur með Kristni, það er
nauðsynlegt til að halda fylginu í
kjördæminu.“
Birgir segir blikur á lofti. „Ég
held að þetta eigi eftir að spilla
fyrir flokknum og þetta kemur á
erfiðum tíma.“
Klofningi spáð í Framsókn
Stjórnmálafræðingar telja blikur á lofti hjá Framsóknarflokknum í Norðvesturkjördæmi. Úrslit prófkjörs-
ins eru túlkuð sem klofningur og flokksforystunni sé létt við að Kristinn H. Gunnarsson sé ekki í þingsæti.
Fjórir karlmenn
veittust að karlmanni á
sjötugsaldri og slógu hann í
andlitið á Flugvallarvegi við
Öskjuhlíð rétt fyrir miðnætti
aðfaranótt laugardags.
Fórnarlambið missti fjórar
tennur og slasaðist á nefi í
árásinni.
Karlmaðurinn var undir
stýri á bíl sínum á Flugvallar-
vegi þegar mennirnir fjórir
komu upp að bíl hans og spurðu
hvort hann væri samkynhneigð-
ur og réðust á hann í kjölfarið.
Lögreglan í Reykjavík
vinnur nú að rannsókn málsins
en samkvæmt vitnisburði
mannsins var árásin tilefnis-
laus.
Maður missti
fjórar tennur