Fréttablaðið - 19.11.2006, Page 2
Tvítugur karlmaður
slasaðist alvarlega fyrir utan
skemmtistaðinn Pakkhúsið á
þriðja tímanum aðfaranótt
laugardagsins þegar þrítugur
karlmaður sló hann í andlitið.
Maðurinn var fluttur á Sjúkra-
hús Suðurlands á Selfossi og var
farið með hann þaðan á slysa-
deild Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss í Fossvogi í Reykja-
vík. Ekki hafa fengist
upplýsingar um líðan mannsins.
Lögreglan á Selfossi vinnur
nú að rannsókn málsins. Ekki er
vitað hvað árásarmanninum
gekk til.
Annar alvar-
lega slasaður
Margir starfsmenn Flug-
málastjórnar telja að brotin hafi
verið lög um réttindi starfsmanna
við aðilaskipti fyrirtækja frá 2002
þegar þeim var sagt upp störfum
vegna breytingar stofnunarinnar í
opinbert hlutafélag. Flugmála-
stjóri segir að ákvörðun um upp-
sagnir hafi verið tekin sameigin-
lega af Flugmálastjórn og
samgöngu- og fjármálaráðuneyti.
Loftur Jóhannsson, formaður
Félags íslenskra flugumferðar-
stjóra, segir að samkvæmt lögum
um aðilaskipti sé einfaldlega bann-
að að segja starfsmönnum upp,
þeir eigi að færast til nýja fyrir-
tækisins og við það séu starfsmenn
mjög ósáttir. „Ástæðan fyrir upp-
sögninni er annaðhvort klúður hjá
ríkinu eða verið er að rjúfa ráðn-
ingarsambandið til að Flugstoðir
þurfi ekki að standa skil á þeim
réttindum og skyldum sem eru
skilgreind í ráðningarsamningum
starfsmanna sem eru ekki lengur
til staðar.“
Þorgeir Pálsson flugmálastjóri
þekkir til þeirra efasemda að upp-
sagnirnar samrýmist lögum um
aðilaskipti en segir það ekki túlkun
stjórnvalda. „Yfir málið fóru nán-
ast allir sem þekkja til þessara
mála hjá okkur og ráðuneytunum
og það var full samstaða um að rétt
væri að standa að þessu með þess-
um hætti. Með uppsagnarbréfi var
öllum boðið sama starf á sömu
kjörum hjá Flugstoðum.“ Þorgeir
segir einnig að ríkisstarfsmenn
eigi biðlaunarétt og hann verði
ekki virkur nema starf sé lagt
niður eða starfsmanni sagt upp.
„Þetta var því hugsað meðal ann-
ars til hagsbóta fyrir þá sem vildu
nýta sér biðlaunarétt sinn.“
Loftur minnir á að Sturla Böðv-
arsson samgönguráðherra sagði
þegar hann mælti fyrir frumvarp-
inu um stofnun Flugstoða ohf. að
engum starfsmanni Flugmála-
stjórnar yrði sagt upp störfum og
vitnaði þar í lögin um aðilaskipti.
„Hann sagði líka í Sjónvarpinu í
gær að eftir 1. janúar hafi flugum-
ferðarstjórar ekki atvinnutækifæri
hjá öðrum en Flugstoðum. Í Evrópu
vantar á þriðja þúsund flugumferð-
arstjóra svo þeir sem vinna á Íslandi
gætu fengið vinnu annars staðar á
morgun. Ég þekki til flugumferðar-
stjóra sem fengið hafa störf í Nor-
egi á næsta ári og að aðrir hyggjast
nýta sér biðlaunarétt sinn og hætta
um áramótin.“ Loftur segir marga
kollega sína vilja vinna fyrir Flug-
stoðir en þeir muni ekki þiggja það
eins og ölmusu. Ekki náðist í Sturlu
Böðvarsson í gær vegna málsins.
Starfsmenn telja
uppsagnir ólöglegar
Starfsmenn Flugmálastjórnar gagnrýna uppsagnir hart og telja að lög hafi ver-
ið brotin. Flugmálastjóri segir stjórnvöld vilja verja réttindi starfsmanna. Flug-
umferðarstjórar leita starfa í Evrópu þar sem atvinnutækifæri eru mikil.
Hörmungarnar í
Darfur-héraði í Súdan gætu
versnað til muna ef friðargæslu-
sveitir Samein-
uðu þjóðanna
og Afríku-
bandalagsins
ganga ekki
skjótt til verks,
að sögn Jan
Egeland,
yfirmanns
mannúðarmála
hjá Sameinuðu
þjóðunum.
Samþykkt
hefur verið að senda 200.000
friðargæsluliða til héraðsins.
„Þetta er stund sannleikans
fyrir Darfur,“ sagði Egeland við
blaðamenn í gær. „Mun þessi
stærsta mannúðaraðgerð heims
mistakast eða heppnast?“
Um fjórar milljónir manna í
Darfur treysta nú á alþjóðlega
neyðaraðstoð til að lifa af, en um
200 þúsund manns hafa látist í
átökunum.
Hörmungarnar
gætu versnað
Leikaraparið Tom Cruise og Katie
Holmes gekk í það heilaga í gær. Fór
athöfnin fram í fallegum miðaldakastala í
Bracciano á Ítalíu að viðstöddu fjölmenni,
auðkýfingum og dægurstjörnum á borð við
Jim Carrey, Brooke Shields og Beckham-
hjónin. Voru brúðhjón og gestir umsetin
fjölmiðlafólki enda langt síðan brúðkaup
hefur vakið aðra eins athygli.
Margmenni hafði jafnframt safnast
saman fyrir utan kastalann, enda hefur
mikil eftirvænting ríkt síðan Cruise bað
Holmes í Eiffelturninum í júní á þessu ári.
Höfðu allra hörðustu aðdáendurnir beðið
klukkutímunum saman eftir að berja
átrúnaðargoð sín augum.
Við athöfnina var kennisetningum
Vísindakirkjunnar fylgt í hvívetna, þar
sem brúðhjónin eru meðlimir hennar.
Þurftu Cruise og Holmes jafnframt að
undirgangast borgaralega athöfn þar sem
vísindatrú er ekki lögleg á Ítalíu.
Nokkra athygli vakti að Holmes klædd-
ist svörtu en Giorgio Armani hannaði
brúðarkjólinn. Var það engu að síður mál
manna að brúðurin hefði sjaldan verið
fegurri.
Íbúar Bracciano voru himinlifandi með
daginn. Mátti panta rétti á veitingahúsum
sem skírskotuðu til kvikmynda brúðhjón-
anna og naut eplakaka nefnd eftir Suri
litlu óhemju vinsælda. Föt sem minntu á
búninga sem hjónin hafa klæðst í myndum
sínum voru einnig fáanleg í bænum en
ekki fylgir sögunni hvernig þau seldust.
Heimildarmyndin
Sófakynslóðin eftir Áslaugu
Einarsdóttur og Garðar Stefáns-
son var frumsýnd við góðar
viðtökur í Háskólabíói í gær.
Myndin fjallar um aktívisma á
Íslandi og hvað fólk getur gert til
að vinna að hugsjónum sínum.
Garðar segir hugtakið
aktivisma hafa fengið nokkurs
konar viðurkenningu með þessari
fjölsóttu frumsýningu. „Aðgerð-
arstarf hefur haft neikvæða
ímynd og það er eitthvað sem
verður að berjast gegn. Aktívist-
ar eru einfaldlega það fólk sem
vill láta skoðun sína heyrast og
þetta er ört stækkandi hópur,“
segir Garðar.
Aktívismi hlaut
viðurkenningu
Hannes, Milton Friedman
var …?
Sjálfstæðismenn í
Norðvesturkjör-
dæmi samþykktu
í gær framboðs-
lista sinn fyrir
komandi alþingis-
kosningar á
kjördæmisþingi í
Borgarnesi.
Flokkurinn fékk
þrjá þingmenn
kjörna í síðustu
kosningum,
ráðherrana
Sturlu Böðvars-
son og Einar K.
Guðfinnsson, og
þingmanninn
Einar Odd
Kristjánsson.
Þeir skipa áfram þrjú efstu sæti
listans í þessari röð. Í fjórða sæti
er Herdís Þórðardóttir, fiskverk-
andi á Akranesi, sem kemur ný
inn á listann.
Kjördæmisþingið í Borgarnesi í
gær samþykkti tillögu uppstill-
ingarnefndar samhljóða og ekki
komu fram neinar athugasemdir
við uppröðunina.
Þingmenn í
efstu sætum
Vetrarríkið á landinu hefur
ekki farið fram hjá neinum undan-
farna daga en þess gætir líka
víðar. Sjófarendur verða þess
varir að óvenjulega kalt hefur
verið á undanförnu eins og far-
þegar um borð í farþegaferjunni
Herjólfi komust að í siglingum á
milli lands og Eyja.
Ölfusáin ryður frá sér klaka-
hröngli í miklu magni og er það
vel sjáanlega lagt á haf út. Vest-
manneyingar sem ferðast ítrekað
með Herjólfi hafa margir ekki
séð ummerki veturs konungs á
jafn áþreifanlegan hátt og mynd-
ir Óskars P. Friðrikssonar sýna.
Vetrarríkið er mikið á Íslandi