Fréttablaðið - 19.11.2006, Síða 4
Tollsk‡rsluger›
Hagn‡tt og ítarlegt námskei› í ger› tollsk‡rslna, um me›fer› allra
innflutningsskjala og allar helstu reglur er var›a innflutning.
Á námskei›inu er nota› n‡tt og sérútbúi› kennsluefni, kennslubók
og ítarefni. Einnig er kennt a› nota forrit í tollsk‡rsluger› í Navision
frá Maritech.
A› námskei›i loknu eiga flátttakendur a› geta;
• fiekkt fylgiskjöl me› vörusendingum og hva›a tilgangi flau fljóna
• Gert tollsk‡rslur og reikna› út a›flutningsgjöld
• Nota› tollskrána til a› tollflokka vörur
• Haft grunnskilning á fríverslunarsamningum og gildi fleirra
• fiekkt helstu reglur var›andi innflutning, innflutningstakamarkanir og undanflágur
Lengd: 21 kennslustund. Kennt er flri›judaga og fimmtudaga og er
hægt a› velja um morgunnámskei› kl. 8:30 - 12:00 e›a
kvöldnámskei› kl. 18:00 - 21:30. Hefst 23. nóvember og l‡kur 5.
desember. Ver›: kr. 28.000,- (Allt kennslu- og ítarefni innifali›)
FAXAFEN 10
108 REYKJAVÍK
GLERÁRGATA 36
600 AKUREYRI
WWW.TSK.IS
SKOLI@TSK.IS
SÍMI: 544 2210
Magnús Stefánsson
félagsmálaráðherra er sigurvegari
prófkjörs Framsóknarflokksins í
Norðvesturkjördæmi. Kristinn H.
Gunnarsson alþingismaður, sem
einnig sóttist eftir fyrsta sætinu,
féll niður í þriðja sætið en Herdís
Sæmundardóttir varaþingmaður
hlaut annað sætið eins og hún
stefndi að. Kristinn hefur ekki tekið
ákvörðun um hvort hann tekur sæti
á listanum og fullyrðir að bandalag
hafi verið myndað gegn sér. Krist-
inn vill færa stuðningsmönnum
sínum þakkir fyrir stuðninginn en
ætlar að meta sína stöðu í rólegheit-
unum á næstu dögum. Hann segir
niðurstöðuna skýra; málefnaáhersl-
ur flokksins í kjördæminu verði
þær sem forysta flokksins hefur
staðið fyrir. „Áherslunni á félags-
hyggju og manngildið, sem ég hef
staðið fyrir, er hafnað með þessari
niðurstöðu.“ Kristinn segist ekki
hafa ákveðið hvort hann taki sæti á
listanum og að það sé staðreynd að
myndað var bandalag gegn honum.
Kristinn segir einnig að stefna for-
ystunnar hafi skilað verstu útkomu
í sveitarstjórnarkosningum í sögu
flokksins. „Það segir allt sem segja
þarf um mat kjósenda á frammi-
stöðu flokksins og það er miður að
halda eigi áfram á sömu braut.“
Magnús Stefánsson segist fyrst
af öllu vera mjög ánægður með sinn
hlut og er ánægður með þátttökuna
í prófkjörinu. „Það voru flokks-
menn sem tóku þátt og tóku afstöðu
til þeirra frambjóðenda sem voru í
boði. Þetta er þeirra niðurstaða.“
Magnús segir að hann ætli ekki að
taka þátt í umræðu um að bandalag
hafi verið myndað gegn Kristni.
„Við munum sækja fram og erum
bjartsýn á árangur. Herdís virðist
eina konan sem á raunhæfan mögu-
leika á þingsæti í kjördæminu og
við munum gera allt til að það
náist.“
Herdís Sæmundardóttir þakkar
sínu fólki stuðninginn heilshugar og
er afar ánægð að hafa náð þeim
árangri sem hún stefndi að. Hún
segir róðurinn fram undan geta
orðið þungan. „Flokkurinn hefur
ekki mælst með mikið fylgi að und-
anförnu og að honum sótt úr mörg-
um áttum. En það er allt að vinna og
flokkurinn er sterkur í kjördæm-
inu.“ Herdís segir ekkert hæft í
orðum Kristins um að bandalag hafi
verið myndað gegn honum. „Ég
leyni því ekki að ég hef ekki verið
sátt með hvernig Kristinn hefur
komið fram opinberlega með mál-
efni flokksins og ég veit ekki hvaða
meiningu hann leggur í það að ég
eða aðrir séum handgengin forystu
flokksins.“
Ekki víst að Kristinn
taki sæti á listanum
Magnús Stefánsson er sigurvegari prófkjörs Framsóknar í Norðvesturkjördæmi.
Kristinn H. Gunnarsson féll niður í þriðja sæti og segir bandalag hafa verið
myndað gegn sér. Félagshyggju var hafnað í prófkjörinu að mati Kristins.
Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, fór til
Pakistan í gær til viðræðna við
Pervez Musharraf, forseta
landsins, um hvernig hægt sé að
stemma stigu við för hryðju-
verkamanna milli landanna.
Einnig bar stríðið í Afganistan á
góma.
Embættismaður utanríkisráðu-
neytis Bretlands sagði nýlega að
hundruð manna færu milli
landanna ár hvert til að flytja
skilaboð og safna fé til hryðju-
verka. Tugur fari einnig til
landamæra Pakistan og Afganist-
an í þjálfunarbúðir.
Samstarf gegn
hryðjuverkum
Sigríður Á. Andersen,
frambjóðandi í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík,
hefur birt
upplýsingar vegna
framboðs síns.
Prófkjörið kostaði
3,7 milljónir króna
og framlög námu
3,8 milljónum. Þau
komu frá 25
félögum og 31
einstaklingi.
Meðalframlag
fyrirtækja var um 135.000 krónur
og einstaklinga um 16.000 krónur.
Sigríður segir að hæstu
framlög fyrirtækis hafi verið 300
þúsund krónur og einstaklings
250 þúsund. „Með því að birta
uppgjör prófkjörsins sýni ég
fram á hversu auðvelt það er að
birta þessar upplýsingar og að
ekki þarf lög um fjármál fram-
boða eins og rætt er um núna. Það
er líka umhugsunarefni að þeir
sem hæst tala um lög hafa ekki
birt upplýsingar sínar.“
Engin lög þarf
um fjármálin
„Þú gefur styrk“ er heiti átaks sem Sparisjóð-
urinn stendur fyrir meðal viðskiptavina sinna og
landsmanna til styrktar verkefnum átta félagasamtaka
á sviði geðheilbrigðismála.
Átakið stendur til jóla og er tilgangur þess að safna
fé til stuðnings hugmyndum samtakanna átta um
hvernig betrumbæta megi geðheilbrigðisgeirann hér á
landi. Hugmyndirnar að baki átakinu voru kynntar á
blaðamannafundi á Grillinu í gær. Rithöfundurinn
Einar Már Guðmundsson las þann kafla úr bók sinni
Englum alheimsins sem gerist á Grillinu og helstu
leikarar samnefndrar kvikmyndar buðu svo fulltrúum
félagasamtakanna til borðs með táknrænum hætti.
Á fundinum var sagt frá því að viðskiptavinir
Sparisjóðsins ráða til hvaða félaga styrkjum er varið,
ákveði þeir á annað borð að styrkja átakið. Sparisjóð-
urinn leggur þá að lágmarki 1.000 kr. til þess verkefnis
í nafni viðskiptavinarins.
Sérstakur sími, 901 1000, verður jafnframt opnaður
svo að landsmenn allir geti lagt málefninu lið, en upp-
safnaðir fjármunir skiptast jafnt á verkefnin átta.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni www.
spari.is.
Stefán Jón Hafstein
borgarfulltrúi ætlar að kanna
hvort leita eigi eftir áliti Eftirlits-
stofnunar EFTA vegna þess
hvernig staðið var að gerð
viljayfirlýsingar við hjúkrunar-
heimilið Eir um byggingu
menningarmiðstöðvar í Grafar-
vogi.
Stefán telur viljayfirlýsinguna
stangast á við fyrirliggjandi álit
lögmanna Reykjavíkurborgar um
að framkvæmdin sé útboðsskyld
á Evrópska efnahagssvæðinu.
Hann telur málsmeðferðina alla
og skýringar borgarstjóra og
formanns borgarstjórnar á henni,
mjög gagnrýniverða.
Borgarstjóri
snýr út úr
Mannæta, sem myrti
kærustu sína fyrir 27 árum, er
ennþá sjúkur og hættulegur, að
mati sænskra dómstóla, en fær
samt að fara í frí frá geðdeild og
fær þá að vera í íbúð sinni í
Malmö. Maðurinn notaði eldhús-
áhöld til að skera líkama konunn-
ar í sundur, borðaði hluta af henni
og drakk rauðvín með.
Maðurinn var handtekinn árið
1979, að sögn Aftonbladet,
grunaður um að hafa stolið
sjónvarpstæki móður sinnar. Í
ljós komu þá leifarnar af
unnustunni. Maðurinn var dæmur
til vistar á geðdeild.
Enn sjúkur
Flokksbundnir
sjálfstæðismenn hafa sagt sig úr
Sjálfstæðisflokknum eftir að Árni
Johnsen hlaut kosningu í annað
sæti á lista flokksins í Suðurkjör-
dæmi í nýafstöðnu prófkjöri.
Geir H. Haarde, forsætisráðherra
og formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, hefur staðfest þetta. Morgun-
blaðið greindi frá þessu í gær.
Ekki náðist í Andra Óttarsson,
framkvæmdastjóra Sjálfstæðis-
flokksins, vegna málsins þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir.
Árni Johnsen vildi ekki tjá sig
um málið þegar Fréttablaðið
hafði samband við hann í gær.
Úrsagnir úr
flokknum