Fréttablaðið - 19.11.2006, Page 6
Tölvunám
Stafrænar myndavélar
FAXAFEN 10
108 REYKJAVÍK
GLERÁRGATA 36
600 AKUREYRI
WWW.TSK.IS
SKOLI@TSK.IS
SÍMI: 544 2210
Flest stéttar- og
fagfélög styrkja
félagsmenn sína
myndarlega til
náms hjá okkur.
Kynntu þér rétt
þinn hjá þínu
félagi.
Stutt og hagnýtt námskeið fyrir þá sem eru að
taka fyrstu skrefin með myndavélina. Farið yfir
öll helstu grundvallaratriði og meðferð
myndanna í tölvunni. Þátttakendur glöggva sig á
stærð og upplausn mynda, skipulag myndanna í
heimilistölvunni og grundvallarlagfæringar á
myndunum.
Þá verður farið yfir heimaprentun og framköllun
myndanna, að senda þær í tölvupósti eða vista á
geisladiska til varðveislu. Vinsælt, ókeypis
myndvinnsluforrit á Netinu tekið fyrir.
Lengd 14 std. (3 kvöld) Hefst 22. nóvember.
Verð kr: 15.000.- Kennslubók innifalin. Tölvuskólinn
þinn
„Ég bjó í Cheghcher-
an sem er bær í Gowr-héraði í Mið-
Afganistan. Þarna dvaldi ég í tvær
vikur en héraðið er eitt af þeim
fátækustu í Afganistan,“ segir
Laufey sem var þar á vegum frið-
argæslunnar í samstarfi við Heil-
brigðisstofnun Þingeyjarsýslu á
Húsavík.
„Aðstæður í Cheghcheran eru
mjög frumstæðar og stærstur
hluti barna fæðist í heimahúsum.
Sem dæmi um frumstæða búsetu-
hætti má nefna að ekkert rafmagn
er á svæðinu og vatnið er varla
drykkjarhæft.“
Laufey segir að fræðslan hafi
tekið mið af þeim aðstæðum sem
fyrir voru en hún fólst í fyrirlestr-
um og verklegum æfingum. „Kon-
urnar tala litla ensku og því þurfti
túlk til að túlka úr ensku yfir á
dari, sem er mál innfæddra.“
Eva segir að mæðradauði á
þessu svæði sé með því mesta sem
gerist í heiminum og tölur geri ráð
fyrir að um 1.800 mæður deyi af
hverjum 100.000 fæðingum þar
sem börnin lifa. „Aðrar tölur gera
ráð fyrir enn hærra hlutfalli
mæðradauða eða 6.000 mæðrum af
hverjum 100.000 fæðingum lifandi
barna. Ástæður þessarar háu dán-
artíðni má rekja til frumstæðra
aðstæðna, lítillar fæðingaraðstoð-
ar frá faglærðu fólki og hás hlut-
falls ungra mæðra en þær eru allt
niður í 12-13 ára. Þá er skortur á
ýmsum matvörum eins og ávöxt-
um sem rýrir næringarmöguleika
verðandi mæðra.“
Laufey segir að hluti fræðsl-
unnar hafi snúið að getnaðarvörn-
um en þær voru bannaðar á meðan
talibanar réðu ríkjum í landinu.
„Notkun getnðarvarna er þó enn
lítið útbreidd, ég lenti í því að túlk-
urinn, sem var karlmaður, neitaði
að túlka nákvæmar lýsingar mínar
á notkun hettunnar.“
Laufey segir að í Afganistan sé
karlmönnum bannað að sinna
mæðraskoðun og fæðingarhjálp
og það útiloki aðstoð lækna. „Upp-
setning lykkjunnar og útskaf eftir
fósturlát er því oft gert við frum-
stæðar aðstæður af aðilum sem
ekki hafa nægjanlega þekkingu á
þessum hlutum.“
Laufey segir að ekki hafi verið
tekin ákvörðun um hvort framhald
verði á verkefninu en að konurnar
sem setið hafi námskeiðið geti nú
frætt þær sem bætist í hóp yfir-
setukvenna. „Ég lít á það sem for-
réttindi að hafa fengið að taka þátt
í þessu starfi og afganskar konur
voru bæði opnar og áhugasamar
um það sem ég hafði að segja
þeim.“
Fræddi ljósmæður
um ungbarnaeftirlit
Eva Laufey Steingrímsdóttir ljósmóðir er nýkomin frá Afganistan þar sem hún
fræddi hóp ljósmæðra og yfirsetukvenna um getnaðarvarnir, fæðingar og ung-
barnaeftirlit. Mæðradauði í landinu er mjög hár og aðstæður frumstæðar.
Myndun þjóðstjórn-
ar í Palestínu er í augsýn, en
Fatah- og Hamas-hreyfingarnar
munu ræða skiptingu ráðuneyta
í næstu umferð stjórnarmyndun-
arviðræðna. Ef sátt næst mun
hvor hreyfing tilnefna ráðherra-
efni, en hafa neitunarvald gegn
tillögum hinnar, sögðu samninga-
menn í gær.
Sátt hefur náðst um nýjan for-
sætisráðherra, Mohammed Sha-
bir, fyrrum yfirmann íslamska
háskólans á Gaza, en hart er deilt
um hvor hreyfingin fær yfirráð
yfir fjármála- og innanríkisráðu-
neytunum. Nú þegar hefur verið
samþykkt að Hamas-hreyfingin
fái níu ráðuneyti, en Fatah-hreyf-
ingin sex.
Með þjóðstjórn vonast hreyf-
ingarnar til að alþjóðlegum efna-
hagsaðgerðum gegn Palestínu
ljúki, en þær hafa staðið síðan
Hamas náði völdum í þingkosn-
ingunum fyrir níu mánuðum.
Fráfarandi ríkisstjórn Hamas
sagði við þetta tilefni í gær að
ályktun Sameinuðu þjóðanna
gegn loftárásum Ísraelsmanna á
Gaza gangi ekki nógu langt og að
þvingunum verði að beita gegn
Ísrael. 21 árs Palestínumaður og
sextán ára drengur voru drepnir
af hermönnum Ísraels í gær.
Deilt um skiptingu ráðuneyta
Árekstur tveggja varð við bæinn
Breiðumýri í Reykjadal um 30 kílómetra frá
Húsavík klukkan rúmlega sjö á föstudagskvöldið.
Annar ökumaðurinn, sautján ára gamall piltur, var
fastur í öðrum bílnum og var kallað á Slökkviliðið á
Akureyri til að ná honum út úr flakinu. Manninum
var náð út með klippum.
Hann var fluttur alvarlega slasaður áleiðis til
Akureyrar í sjúkrabíl. Þyrla Landhelgisgæslunnar,
TF-LIF, var kölluð út og mætti hún sjúkrabílnum við
Stórutjarnir, sem eru 50 kílómetra frá Húsavík og 45
kílómetra frá Akureyri, og flaug með manninn á
gjörgæsludeild Landspítala - háskólasjúkrahúss í
Fossvogi. Að sögn svæfingalæknis á gjörgæsludeild
var maðurinn í aðgerðum aðfaranótt laugardagsins
og er hann stórslasaður. Tvær konur voru í hinum
bílnum og voru þær fluttar á Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri. Meiðsli þeirra voru ekki alvarleg að
sögn læknis og voru þær útskrifaðar af spítalanum á
föstudagskvöldið.
Að sögn Lögreglunnar á Húsavík liggja tildrög
slyssins ekki ljós fyrir en svo virðist sem nokkur
snjókoma hafi verið og töluverð hálka á veginum.
Uppsetning lykkjunnar
og útskaf eftir fósturlát
er því oft gert við frumstæðar að-
stæður af aðilum sem ekki hafa
nægjanlega þekkingu á þessum
hlutum.
Stjórnvöld í Líbýu
slepptu nýlega nítján arabískum
föngum úr haldi, að sögn
sýrlenskra mannréttindasam-
taka. Fangarnir höfðu setið í
fangelsi í sextán ár, en þeir
sættu lífstíðardómi fyrir
samsæri um að steypa yfirvöld-
um af stóli. Tveir höfðu þegar
dáið í fangelsi.
Fjórir fanganna voru Sýrlend-
ingar, en þeir voru handteknir án
ákæru við komuna til heima-
landsins á föstudag. Ekkert er
vitað um afdrif hinna fimmtán,
sem eru frá Palestínu, Jórdaníu
og Líbanon.
Líbía lætur 19
fanga lausa
Fórst þú á tónleikana með
Sykurmolunum í gærkvöld?
Er jólaundirbúningurinn haf-
inn á þínu heimili?