Fréttablaðið - 19.11.2006, Blaðsíða 8
Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • fax 511 4040 • utflutningsrad@utflutningsrad.is
www.utflutningsrad.is
Útflutningsráð í samstarfi við Transport, toll- og flutninga-
miðlun ehf. ásamt Euro Info skrifstofunni bjóða upp á fræðslufund
í gerð útflutningskjala. Leiðbeinandi er Fríða Sjöfn Lúðvíksdóttir.
Fundurinn er þátttakendum að kostnaðarlausu en skráning
fer fram í síma 511 4000 eða með tölvupósti á
utflutningsrad@utflutningsrad.is.
Nánari upplýsingar gefa Hermann Ottósson, forstöðumaður,
hermann@utflutningsrad.is og Inga Hlín Pálsdóttir, verkefnis-
stjóri, inga@utflutningsrad.is.
Gerð
útflutningsskjala
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
6
07
65
22. nóvember, kl. 8.30 – 10.00
í Borgartúni 35, 6. hæð
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Ferðamenn á
Íslandi eru helst ósáttir við verðlag
hérlendis samkvæmt könnunum
sem kynntar voru á Ferðamálaráð-
stefnu 2006 á fimmtudag. Á það
bæði við um íslenska og erlenda
ferðamenn. Ferðamálastofa lét
gera viðhorfskönnun meðal
íslenskra ferðamanna hérlendis og
Samtök ferðaþjónustunnar könn-
uðu álit erlendra ferðamanna á
gæðum íslenskrar ferðaþjónustu.
Hæst þótti erlendum ferða-
mönnum verðlag víns á veitinga-
stöðum en rúm 92 prósent þeirra
töldu það mjög hátt eða fremur
hátt miðað við gæði. Næst kom
matur á veitingahúsum en 89 pró-
sent töldu verð á honum mjög hátt
eða fremur hátt.
Íslenskir ferðamenn voru beðn-
ir um að gefa ýmsum þáttum ein-
kunn á bilinu núll til tíu. Lægstu einkunn fékk verðlagning innan-
landsflugs eða 2,9. Hæstu einkunn-
ina fékk ástand bílaleigubíla, eða
8,5. Meðaleinkunn allra þátta að
verðlagi undanskildu var 6,6. Með-
aleinkunn verðlags var 4,8.
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra segir ferðamálaáætlun
Ferðamálastofu ganga vel en grein-
in þurfi að taka sig á í gæðamálum.
„Lækkun virðisaukaskatts og mat-
arverðs er ein allra mikilvægasta
markaðsaðgerðin til lækkunar
verðs á þjónustu greinarinnar
meðal annars gagnvart erlendum
ferðamönnum. Ég held að þessi
könnun sanni að það er rétt ákvörð-
un gagnvart greininni.“
Mest kvartað
yfir háu verðlagi
Kona á fimmtugsaldri
var dæmd í 45 daga skilorðsbund-
ið fangelsi í Héraðsdómi Reykja-
víkur á föstudag fyrir að stela níu
pörum af skóm úr verslun í
Kringlunni. Fyrir dómi kom fram
að konan er á sterkum lyfjum. Að
hennar sögn eiga lyfin það til að
rugla dómgreind hennar. Þannig
hafi verið komið fyrir henni
umræddan dag enda hafi skórnir
ekki einu sinni verið í hennar
stærð. Konan hefur áður hlotið
dóm fyrir svipaðan þjófnað.
Kona stal skóm
Stór ísjaki hefur
sést út af ströndum Nýja-Sjálands.
Þegar nánar var að gætt kom í ljós
að nokkrir aðrir stórir jakar eru á
floti á svipuðum slóðum. Þetta
þykja undur og stórmerki því
ísjakar hafa ekki sést frá strönd-
um Nýja-Sjálands í meira en hálfa
öld, eða allt frá árinu 1931.
Vísindamenn vinna nú hörðum
höndum að því að komast að raun
um hvaðan sá stóri er kominn.
Vitað er að hann er kominn til
Nýja-Sjálands frá Suðurskauts-
landinu, en vísindamönnunum
leikur forvitni á að vita hvar á
Suðurskautslandinu uppruna hans
er að leita.
Á síðasta ári fréttist reyndar af
ísjökum ekki langt frá Nýja-
Sjálandi, en þeir hröktust
fljótlega burt fyrir veðri og
vindum og sáust aldrei frá
ströndinni, eins og nú er raunin.
Stóri jakinn, sem nú er kominn
á þessar slóðir, hefur sést frá
Dunedin á Suðureyju Nýja-
Sjálands.
Ísjakarnir eru orðnir fólki í
ferðaþjónustunni tekjulind því
ferðamenn borga allt upp í 500
nýsjálenska dali fyrir útsýnisflug
yfir jakana. Sú upphæð mun nema
rúmum 20 þúsund krónum.