Fréttablaðið - 19.11.2006, Blaðsíða 13
Hópbílar hf. í Hafnarfirði hlutu
umhverfisverðlaun Ferðamála-
stofu fyrir árið 2006. Sturla Böðv-
arsson samgönguráðherra afhenti
verðlaunin á ferðamálaráðstefn-
unni á Hótel Loftleiðum á fimmtu-
dag.
Sem fyrr óskaði Ferðamála-
stofa eftir tilnefningum til verð-
launanna jafnframt því sem innan
stofnunarinnar er fylgst með því
sem ferðaþjónustuaðilar eru að
gera í umhverfismálum. Alls bár-
ust átján tilnefningar í ár og urðu
Hópbílar hlutskarpastir. Í umsögn
Ferðamálastofu segir meðal ann-
ars að „allt frá árinu 2001 hefur
fyrirtækið einsett sér að vera í
fararbroddi í umhverfismálum og
árið 2004 fékk það umhverfis-
stefnu sína vottaða samkvæmt
alþjóðlega umhverfisstaðlinum
ISO 14001, umhverfisstefnan
hefur verið yfirfarin og uppfærð
árlega og er orðin hluti af stjórn-
skipulagi fyrirtækisins.“
Fyrirtækið Hópbílar hf. var
stofnað árið 1995, helstu verkefni
fyrirtækisins eru tengd ferðaþjón-
ustu og öllum þeim sem vilja ferð-
ast. Fyrirtækið tilheyrir geira þar
sem það gæti með starfsemi sinni
haft neikvæð áhrif á umhverfið en
eigendur og stjórnendur fyrirtæk-
isins hafa tekið þá meðvituðu
ákvörðun að lágmarka þau nei-
kvæðu áhrif sem af rekstrinum
leiðir enda eru einkunnarorð fyr-
irtækisins: Öryggi, umhverfi,
hagur og þægindi.
Hópbílar hlutu umhverfisverðlaunin 2006
AFMÆLI
Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt
fólk sem hefur greinst með
krabbamein og aðstandendur þess,
gefur út jólakort í ár. Kortin eru
myndskreytt af Kolbrúnu Hrund
Sigurgeirsdóttur myndlistar-
manni, sem gaf Krafti myndina.
Kortin eru seld tíu saman í
pakka á þúsund krónur. Sölufólk
verður á ferðinni með kortin en
einnig er hægt að nálgast þau í
Tekk-vöruhúsi, í Uniku og Euro-
skóm í Hafnarfirði. Þá er hægt að
senda tölvupóst á netfangið oley@
mi.is og panta kort.
Kort frá
Krafti