Fréttablaðið - 19.11.2006, Side 29

Fréttablaðið - 19.11.2006, Side 29
Öflugt fyrirtæki í forystuhlutverki Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. er framsækið og leiðandi fyrirtæki á sviði drykkjarvöru. Markmið fyrirtækisins er að vera besta markaðs- og sölufyrirtæki landsins. Hlutverk Ölgerðarinnar er að bjóða upp á heildar- lausnir á drykkjarvörumarkaði með hágæða vöru og þjónustu. Fyrirtækið er eitt elsta fyriræki landsins með sterka gæðaímynd og hefur m.a. unnið Íslensku ánægjuvogina 5 ár í röð. Á meðal vörumerkja má nefna Appelsín og Malt, Pepsi, Pepsi Max, Kristal, Smirnoff, Rosemount, Penfolds, Masi, Cato Negro, Grand Marnier, Gordons, Egils Gull, Egils Lite, Tuborg, Frissi Fríski, Doritos, Lays og Gatorade. Ölgerðin leggur ennfremur mikla áherslu á öfluga vöruþróun. Hjá fyrirtækinu starfa um 140 starfsmenn með víðtæka þekkingu, menntun og reynslu sem sameiginlega hafa skapað metnaðarfullt og jákvætt vinnuumhverfi. Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. · Grjóthálsi 7-11 · 110 Reykjavík · sími 580 9000 · www.egils.is Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. óskar eftir að ráða í eftirfarandi störf: Lyftarastarf: • Starfið felst í almennum lyftarastörfum í framleiðsludeild fyrirtækisins. Vélgæsla: • Starfið felst í umsjón með vélbúnaði í framleiðslulínu. Unnið er á vöktum aðra vikuna í dagvinnu, mán. - fös. og hina vikuna á kvöldvakt, mán. - fim. Leitað er eftir duglegum og áhugsömum einstaklingum með sterka ábyrgðartilfinningu. Einungis reyklausir einstaklingar koma til greina. Áhugasamir sendi greinagóða umsókn sem tilgreinir menntun, reynslu og fyrri störf til Ölgerðarinnar, Grjóthálsi 7-11, eða á netfangið ee@egils.is fyrir 26. nóvember nk. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál og þeim öllum svarað Nánari upplýsingar um starfið veita Elísabet Einarsdóttir starfsmannastjóri í síma 580 9029 og Hreinn Pálmason verksmiðjustjóri í síma 580 9044.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.