Fréttablaðið - 19.11.2006, Side 30
Hrefna Guðmundsdóttir
er í fullu starfi við að
útbúa ferilskrár fyrir fólk.
Hrefna er menntuð sem
stjórnmálafræðingur en
hefur um árabil starfað sem
fræðslu- og upplýsinga-
stjóri og á þeim vettvangi
hefur hún aflað sér góðrar
reynslu í skrifum og fram-
setningu á efni. „Ég hef í
nokkur ár sérhæft mig í
gerð ferilskráa, kynningar-
bréfa og þakkarbréfa. Í dag
er þetta fullt starf hjá mér
og ég hef fundið að það er
greinilega þörf fyrir þessa
þjónustu,“ segir Hrefna.
„Ferilskrá er mikilvægasta
markaðstækið í atvinnuleit
og tvímælalaust sterkasta
vopnið sem fólk hefur til að
komast í atvinnuviðtal. Í
ferilskránni koma fram
helstu upplýsingar um
hvern og einn og það skiptir
afar miklu máli hvernig
þær eru settar fram.
Atvinnurekendur og
atvinnumiðlanir þurfa að
fara í gegnum oft nokkur
hundraða ferilskráa vegna
hvers starfs og þeir verða
að sjá mjög fljótt hvað hver
og einn hefur upp á að bjóða.
Ferilskráin verður líka að
vekja athygli þeirra á ein-
hvern hátt, annars er hún
lögð til hliðar og hæft fólk
fær oft ekki tækfæri til að
láta ljós sitt skína.“
„Þetta eru einstaklingar
með alls konar reynslu og
menntun að baki. Það er
mikilvægt að gera sér grein
fyrir að allir hafa eitthvað
gott fram að færa og flestir
geta meira en þeir gera sér
grein fyrir. Þess vegna
skiptir miklu máli að fólk
fái starf sem hentar vel getu
þess, reynslu og svo auðvit-
að áhuga. Ferilskráin verð-
ur að vera unnin með þetta í
huga enda er hún líka oft
notuð til grundvallar í
atvinnuviðtölum. Það er því
nauðsynlegt að koma mikil-
vægum atriðum á framfæri
þar á skilmerkilegan hátt.“
„Fólk sendir mér vanalega
gögn með tölvupósti t.d.
eldri ferilskrá, ef það á
hana, eða það fyllir út upp-
lýsingaform á heimasíð-
unni. Það þarf ekki að vanda
framsetningu eða málfar og
lætur allt flakka sem því
dettur í hug að geti komið
að gagni og það getur staðið
undir. Ég vinn síðan úr þeim
gögnum og sendi til baka
ferilskrána, kynningarbréf
og þakkarbréf ef óskað er
eftir því. Oft er það heilmik-
il vinna að átta sig á hvaða
framsetning hentar og
hvaða atriði skipta máli
fyrir hvern og einn. Fólk
fær síðan ferilskrána senda
á rafrænu formi til yfir-
lestrar og ég laga hana ef
óskað er eftir breytingum. Í
heildina eru þarfir fólks
mjög mismunandi og mikil-
vægt að það viti hvar það
getur leitað sér aðstoðar
þegar kemur að því að
skipta um starf. Samkeppn-
in er mjög hörð á vinnu-
markaðnum í dag og ég tel
að þar geti það skipt sköp-
um að eiga fagmannlega
unna ferilskrá sem kemur
fólki í rétta atvinnuvið-
talið,“ segir Hrefna Guð-
mundsdóttir að lokum.
Nánari upplýsingar er að
finna á vefsíðu Hrefnu,
www.ferilskra.is
Góð ferilskrá
er mikilvæg
Orkuveita Reykjavíkur óskar eftir starfsfólki
Orkuveita Reykjavíkur er framsækið
þjónustufyrirtæki sem aflar og dreifir vistvænni
orku á sem hagkvæmastan hátt og í sátt við
umhverfið.
Á þjónustusvæði fyrirtækisins býr meira en
helmingur íslensku þjóðarinnar.
Stefna Orkuveitunnar er að veita viðskiptavinum
sínum bestu mögulegu þjónustu og sjá þeim
fyrir ódýrri orku sem framleidd er úr endur-
nýjanlegum íslenskum orkulindum. Þannig
stuðlar fyrirtækið að aukinni notkun hreinnar
innlendrar orku og leggur um leið sitt af
mörkum til nýsköpunar og framfara í landinu.
Orkuveitan er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður
fólks með mikla þekkingu. Fyrirtækið leitast við
að vera í fremstu röð hvað snertir öryggi og
vinnuumhverfi og möguleika starfsfólks við að
samræma vinnu og fjölskylduábyrgð eins og
kostur er.
Það er stefna Orkuveitu Reykjavíkur að auka
hlut kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum
innan fyrirtækisins.
Fyrirtækið er sveigjanlegt, það lagar sig að
breyttum aðstæðum
Það sýnir frumkvæði og er opið fyrir nýjungum
Það sækir fram af eldmóði
Það er traust og starfar í sátt við umhverfið
Svið Dreifingar Orkuveitu Reykjavíkur leitar að starfsfólki. Meginhlutverk Dreifingar
er að skipuleggja, byggja upp og reka veitukerfi fyrir heitt vatn, kalt vatn, rafmagn
og fráveitu.
Iðnaðarmaður óskast til starfa
Við leitum að duglegum, samviskusömum einstaklingi með færni í mannlegum
samskiptum. Skilyrði er að viðkomandi búi í Stykkishólmi eða Grundarfirði.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Vinna við viðhald og uppbyggingu á framleiðslu- og dreifikerfi í heitu
og köldu vatni á Snæfellsnesi
• Standa bakvaktir
• Aðstoðarmaður og staðgengill svæðisstjóra
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Iðnmenntun á málmiðnaðarsviði, t.d. vélvirki, pípulagningamaður
• Reynsla af t.d. málmsmíði og pípulögnum
• Reynsla af skipulagningu og stjórnun verklegra framkvæmda
• Tölvukunnátta æskileg
Framkvæmdadeild Orkuveitu Reykjavíkur óskar að ráða öflugt fólk til starfa.
Meginverkefni Framkvæmdadeildar eru viðbrögð við bilunum, ýmis endurnýjunarverk
auk smærri nýlagnaverkefna í kerfum Orkuveitunnar. Áhersla verður á að vinna við
ljósleiðarakerfi Gagnaveitu OR.
Tvö störf við ljósleiðarakerfi (lagning, blástur og splæsing)
Um öll störfin gildir að viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að fást við öll þau
fjölbreyttu verkefni sem upp geta komið, jafnt í ljósleiðarakerfinu sem og í öðrum
kerfum Orkuveitunnar eftir því sem við á.
Við leitum að duglegum, samviskusömum einstaklingum með færni í mannlegum
samskiptum. Ef þú ert eintaklingur með áðurnefnda hæfileika getur orðið um
framtíðarráðningu að ræða. Æskilegt er að viðkomandi hafi eitthvað af
eftirfarandi réttindum/reynslu en þó ekki skilyrði:
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Reynsla af lagningu, splæsingu og blæstri á ljósleiðaralögnum
• Vinnuvélaréttindi (litlar og meðalstórar vinnuvélar)
• Námskeið í jarðlagnatækni og/eða reynsla af jarðlagnavinnu
• Aukin ökuréttindi
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
3
50
20
1
1/
06
Upplýsingar og umsjón með úrvinnslu umsókna hefur Sólrún Kristjánsdóttir
(solrun.kristjansdottir@or.is) hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Umsóknarfrestur er
til og með 29. nóvember nk.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um störfin á heimasíðu Orkuveitu Reykjavíkur:
www.or.is og senda jafnframt ferilskrá. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Framleiðslusvið Orkuveitu Reykjavíkur óskar eftir að ráða:
Orkuveita Reykjavíkur er framsækið
þjónustufyrirtæki sem aflar og dreifir vistvænni
orku á sem hagkvæmastan hátt og í sátt við
umhverfið.
Á þjónustusvæði fyrirtækisins býr meira en
helmingur íslensku þjóðarinnar.
Stefna Orkuveitunnar er að veita viðskiptavinum
sínum bestu mögulegu þjónustu og sjá þeim fyrir
ódýrri orku sem framleidd er úr endurnýjanlegum
íslenskum orkulindum. Þannig stuðlar fyrirtækið að
aukinni notkun hreinnar innlendrar orku og leggur
um leið sitt af mörkum til nýsköpunar og framfara í
landinu.
Orkuveitan er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður
fólks með mikla þekkingu. Fyrirtækið leitast við að
vera í fremstu röð hvað snertir öryggi og vinnu-
umhverfi og möguleika starfsfólks við að samræma
vinnu og fjölskylduábyrgð eins og kostur er.
Það er stefna Orkuveitu Reykjavíkur að auka hlut
kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum innan
fyrirtækisins.
Fyrirtækið er:
Sveigjanlegt, það lagar sig að breyttum aðstæðum
Sýnir frumkvæði og er opið fyrir nýjungum
Sækir fram af eldmóði
Traust og starfar í sátt við umhverfið
Vélfræðing í Jarðgufuvirkjanir (64385)
Í dag rekur jarðgufuvirkjanadeildin Nesjavalla- og Hellisheiðarvirkjanir, og tekur
þátt í rannsóknum á nýjum svæðum á Hengilssvæðinu.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Hefðbundin vélfræðistörf og vöktun virkjana
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Vélfræðimenntun
• Starfsreynsla æskileg
• Tölvukunnáttu er krafist
• Frumkvæði í starfi og traust vinnubrögð
• Metnaður og áhugi og hæfni í mannlegum samskiptum
Umsjón með störfunum hafa Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) og
Hildur Sif Arnardóttir (hildur.arnardottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum.
Umsóknarfrestur er til og með 3. desember nk.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um störfin
á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
V
3
50
21
1
1/
06